Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 6
Helgarblað 16.–19. október 20156 Fréttir Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is DÆ MI 85A frá HP 15.715 kr. 85A samheitahylki 6.590 kr. TÓNER Í HP PRENTARA Leyfðu okkur að gefa þér ráðgjöf í rekstri prentara H eilbrigðisráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni, bíða ósvöruð 2.000 símtöl. Ástæðan er átak ungmennaráðs UNICEF á Íslandi, en ungmennin vilja vekja athygli á viðvarandi úrræðaleysi í geðheilbrigðismálum barna og ung- linga. Sérstaklega er vakin athygli á því að fjöldi barna á biðlistum er óviðunandi en sem dæmi má nefna að 16 mánaða bið er eftir tíma hjá Þroska- og hegðunarstöð. Hópurinn gerði stuttmyndina Heilabrot sem hefur vakið sterk við- brögð og hefur verið sýnd í fram- haldsskólum landsins. „Myndin málar upp undarlega mynd af heilbrigðiskerfi, þar sem fótbrotið barn er sent heim af bráða- móttöku og sagt að koma aftur eft- ir fjóra mánuði. Það sorglega er að því miður er þetta veruleiki margra barna sem þurfa hjálp vegna geð- ræns vanda,“ segir Hjördís Eva Þórðardóttir, réttindafræðslufulltrúi UNICEF á Íslandi. Á samfélagsmiðlum hafa fjöl- margir deilt reynslu sinni af biðlist- um og flækju í kerfinu, til dæmis undir myllumerkinu #viðerumbrjál- uð en hægt er að senda sögur til UNICEF beint sem verða sendar til ráðherra, nafnlaust. Samhliða átakinu stendur ung- mennaráðið fyrir táknrænni aðgerð þar sem fólki er boðið að sýna mál- efninu stuðning með því að hringja í númerið 620-9112 og skilja eftir ósvöruðu símtali hjá heilbrigðisráð- herra. Ungmennaráðið mun síðan afhenda ráðherranum símann með ósvöruðu símtölunum til að minna hann á að kalli margra barna um hjálp er ósvarað. Númerið er venju- legt gsm-númer þannig að það að hringja í það kostar jafnmikið og að hringja örstutt símtal í venjulegt gsm-númer. n Missti af rúmlega 2.000 símtölum Slæm staða í geðheilbrigðismálum barna Hringdu í ráðherra Myndirðu segja barni að harka af sér fótbrot? spyr ungmennaráð UNICEF. Mynd Sigtryggur Ari I llugi Gunnarsson menntamála- ráðherra greiddi 45 þúsund krón- ur fyrir hálfan dag í laxveiði í Vatnsdalsá í fyrra. Samkvæmt af- riti af kvittun fyrir greiðslu veiði- leyfisins, sem aðstoðarmaður Illuga sendi DV eftir að blaðið hafði ósk- að eftir því, veiddi ráðherrann í ánni þann 29. ágúst 2014, en keypti hvorki fæði né gistingu. Ráðherrann hefur hvorki staðfest né neitað því að Hauk- ur Harðarson, stjórnarformaður Orku Energy, nú Arctic Green Energy Cor- poration (AGEC), hafi verið við veiðar í ánni þann sama dag. „Alls ekki lágt verð“ Ráðherrann tjáði sig um veiðiferðina í fyrsta skipti 8. október síðastliðinn. Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, spurði þá úr ræðustól Alþingis hver hefði greitt fyrir hana. Ástæðan var fjölmiðlaumfjöllun um tengsl ráð- herrans við AGEC. Illugi svaraði að hann væri með kvittun fyrir „sínum greiðslum“. Í forsíðuviðtali við Frétta- blaðið daginn eftir, þar sem fullyrt var að Haukur hefði einnig verið við veiðar á sama tíma og Illugi, vildi Ill- ugi ekki svara því hvort stjórnarfor- maðurinn, og einn af nánustu vinum ráðherrans, eins og hann orðaði það sjálfur, hefði verið með í ferðinni. Ill- ugi hefði fengið afslátt þar sem hann hefði komið inn á síðustu stundu vegna forfalla annarra veiðimanna. Pétur Pétursson, leigutaki Vatns- dalsár, segir í samtali við DV að hann viti ekki hvort Illugi og Haukur hafi báðir verið við veiðar í ánni á sama tíma né hverjir það voru sem forföll- uðust. „Þessi upphæð, 45 þúsund krónur, er alls ekki lágt verð fyrir hálfan dag ef ekki er tekinn matur eða neitt með því. Það getur komið upp sú staða að menn forfallast og þá er oft samið niður um verð ef maður getur losað menn undan ábyrgðinni og lágmark- að tap þeirra,“ segir Pétur. Leigir af Hauki Eins og komið hefur fram neyddist Illugi til að selja Hauki íbúð sína við Ránargötu í Reykjavík vegna fjár- hagserfiðleika. Illugi leigir íbúðina af Hauki en umfjöllun um tengsl hans við AGEC komust í hámæli eftir að greint var frá þátttöku nokkurra full- trúa fyrirtækisins í opinberri heim- sókn menntamálaráðherrans, sem starfaði hjá Orku Energy árið 2011, í opinberri heimsókn menntamála- ráðherrans til Kína. Stundin greindi í apríl síðastliðn- um frá því að Illugi hefði farið í laxveiði í Vatnsdalsá sumar- ið 2014 og fullyrti að Haukur hefði verið þar á sama tíma. DV spurði Ill- uga um tengsl hans við Hauk í apr- íl síðastliðnum. Í svari sem barst 20. apríl sagðist ráðherrann hafa kynnst stjórnendum fyrirtækisins eftir að hann tók að sér verkefni fyrir Orku Energy í Singapúr. Upplýsti hann þá ekki um kaup Hauks á íbúðinni við Ránargötu né leigusamninginn sem þeir gerðu með sér. Illugi hefur ítrek- að hafnað því að um óeðlileg hags- munatengsl hans við jarðvarmafyrir- tækið sé að ræða. n Illugi greiddi 45.000 fyrir hálfan veiðidag Menntamálaráðherrann keypti laxveiðileyfi í Vatnsdalsá í lok ágúst 2014 Haraldur guðmundsson haraldur@dv.is ráðherrann Illugi Gunnarsson hefur sagt að honum finnist gaman að veiða en að hann hafi ekki verið til- búinn til að greiða 200 þúsund krónur fyrir dag í Vatnsdalsá. Mynd Sigtryggur Ari Kvittunin Hér má sjá kvittunina sem DV var send þegar blaðið óskaði eftir stað- festingu á því að Illugi hefði sjálfur greitt fyrir umrædda veiðiferð. Lögsækja netverja fyrir ummæli Sævar Þór Jónsson, lögmaður hjá Lögmönnum Sundagörðum, hefur tekið að sér að stefna net- verjum sem hafa gengið hvað harðast fram gegn stjórnend- um Útvarps Sögu. Þetta kemur fram í pistli sem hann skrifar á vefsvæði Eyj- unnar. Orð- rétt segir um þetta: „Stjórn- endur út- varpsstöðv- arinnar Útvarps Sögu hafa falið mér að sækja þá til ábyrgð- ar sem harðast hafa gengið fram gegn persónum þeirra með óvægnum og ómálefnalegum hætti. Það á ekki að líðast í lýð- ræðisríki að fólk þurfi að sitja undir persónulegum árásum á opinberum vettvangi eins og internetinu og þurfa að þola særandi og ærumeiðandi um- mæli ítrekað.“ Ekki er ljóst gegn hverjum lögsóknirnar beinast, né hversu mörgum, en mikil umræða hefur verið um Útvarp Sögu, meðal annars gagnrýndi Bubbi Morthens Útvarp Sögu harð- lega. Hann birti færslu um mál- ið á Twitter þar sem sagði: „Útvarp Saga er með könnun treystir þú Bubba Morthens, næsta ætti að vera er Arnþrúður karlsdóttir fyllibitta“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.