Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Blaðsíða 8
Helgarblað 16.–19. október 20158 Fréttir Komdu og tryggðu þér þinn bíl fyrir veturinn Bílaleiga AVIS BÍLARNIR ERU KOMNIR Á BÍLASÖLU REYKJAVÍKUR Bíldshöfða 10 S: 5878888 br.isl l Opið Laugardag 12-16 Virka daga 10-18 BILASALA REYKJAVIKUR „Nokkuð langur tími“ n Engin tímatakmörk á gjaldþrotaskiptum n Aðhaldsúrræði þó til staðar, segir dómstjóri É g get sagt, af minni reynslu, þá er þetta nokkuð langur tími,“ segir Ólafur Ólafsson, dóm- stjóri Héraðsdóms Norður- lands eystra, um þann tíma sem tekið hefur að ljúka skiptum á þrotabúi athafnamannsins Magn- úsar Þorsteinssonar sem DV fjallaði um í síðasta blaði. Magnús var úrskurðaður gjald- þrota í Héraðsdómi Norðurlands eystra þann 4. maí 2009 en tæplega sex og hálfu síðar er skiptum ekki enn lokið. Magnús líkti þessu við skuldafangelsi og gerði alvarlegar athugasemdir við skiptastjóra máls- ins. Ólafur segir að hann muni eftir fréttaflutningi og þekki dæmi þess sjálfur að svo langdregin mál komi upp. „Þetta var kannski algengara á síðustu öld að mál tóku allt of langan tíma. En þetta er óvenjulengi, svona að heyra það.“ Engin takmörk samkvæmt lögum DV lék því forvitni á að vita hvort það væri virkilega svo að engin tak- mörk væru fyrir því hversu langan tíma gjaldþrotaskipti geti tekið. Mál Magnúsar er vissulega umfangsmik- ið, lýstar kröfur nema rúmlega 20 milljörðum, og teygir anga sína víða líkt og skiptastjóri hans benti á í um- fjöllun DV á þriðjudag. En almennt virðist sem engin viðmið eða tak- markanir séu á því hversu langan tíma svona uppgjör getur tekið. Þó eru til staðar ákveðnir öryggisventl- ar, ef svo má að orði komast. Aðhaldsúrræði til staðar Ólafur tekur fram að hann geti ekki tjáð sig um einstaka mál, en almenn sé það þannig á Norðurlandi eystra að leitað er til lögmanna á svæðinu til að athuga hvort þeir hafi áhuga á að taka mál að sér. Einnig séu hugs- anleg tengsl, hagsmunaárekstrar og hugsanlegt vanhæfi af ýmsum ástæðum skoðað. Ef ljóst þykir að málin séu umfangsmikil sé horft til reynslumikilla lögmanna. Ólafur kveðst hafa þann háttinn á að í janúar á hverju ári sendi hann erindi til allra lögmanna sem fengið hafa bú og eru orðin sex mánaða eða eldri þar sem þeir eru krafðir skýr- inga á því hvers vegna málið taki svo langan tíma. „Komi ekki fram skýr- ingar þá fær viðkomandi lögmaður ekki fleiri mál. Þetta eru mín fyrstu viðbrögð,“ segir Ólafur um það að- hald sem sé til staðar. Hægt að kvarta til dómara En síðan sé önnur leið, sem þó sé sjaldgæfari, og snýr að 76. grein laga um gjaldþrotaskipti. Þar er kveðið á um að kröfuhafar eða aðrir, líka þrota- þolar sjálfir, geti gert athugasemd- ir við drátt á máli til dómarans sem skipaði skiptastjórann. Þá er viðkom- andi lögmaður kvaddur með form- legum hætti fyrir dómara, ásamt þeim sem kvartaði, og lögmaður- inn krafinn skýringar. Ólafur segir að ýmsar ástæður geti verið fyrir því að mál dragist á langinn. „Í fyrsta lagi ófullnægjandi upp- lýsingar frá skiptaþola, stundum næst jafnvel ekki í menn þar sem þeir eru fluttir utan. Önnur skýr- ing er að málið sé umfangsmikið og þriðja skýringin að það séu dóms- mál í gangi sem skiptastjórinn er að standa í til að reyna að ná inn eignum í búið. Þetta getur tafið fyr- ir skiptalokum. Komi ekki fram full- nægjandi skýringar, þá er skýrt í lög- um að hægt sé samkvæmt kröfu og með úrskurði, að víkja viðkomandi skiptastjóra frá.“ n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is „Þetta er óvenjulengi 13. október 2015 Fréttir 11 10 Fréttir Vikublað 13.–15. október 2015 Vikublað 13.–15. október 2015 Skráðu þig í Safnarann og þú gætir eignast eigulegt listaverk að andvirði allt að 400.000 kr. Svona eignast þú listaverk • Þú leggur inn 1.000 kr. eða meira í Safnarasjóðinn mánaðarlega. • Þú ferð í pottinn og á Menningarnótt eru heppnir safnarar dregnir út. • Í úrvalspottinum er fjöldi listaverka eftir marga af fremstu listamönnum þjóðarinnar. • Heildarverðmæti listaverkanna er á þriðju milljón króna. • Þú getur margfaldað líkurnar á að komast í úrvalspottinn með því að greiða hærri upphæð. • Sé númerið þitt ekki dregið út getur þú notað inneignina til að fá listaverk eða tekið inneignina þína út í formi gjafabréfs. • Upphæðin sem þú leggur inn tapast aldrei. Frekari upplýsingar og skráning á heimsíðunni okkar www.safnarinn.is Samstarfsaðilar Safnarans eru: Fastur í „skuldafangelsi“ kröfuhafa í sex og hálft ár n Magnús Þorsteinsson var úrskurðaður gjaldþrota í maí 2009 n Skiptum á búinu ekki enn lokið n Magnús segir skiptastjórann óhæfan Þ ó að sex og hálft ár séu síðan athafnamaðurinn Magnús Þorsteinsson var úrskurðað- ur gjaldþrota í Héraðsdómi Norðurlands eystra er skipt- um ekki enn lokið á þrotabúi hans. Lögmenn sem DV ræddi við muna ekki dæmi þess að bú einstaklings hafi verið jafnlengi í gjaldþrotaskipt- um og líklega fari mál Magnúsar langleiðina með að vera Íslandsmet. Magnús segir í samtali við DV að hann sé búinn að vera í skuldafang- elsi lengur en margur hafi setið inni og að alþjóðlegir stórbankar hafi verið gerðir upp á skemmri tíma. Hann er allt annað en sáttur með skiptastjórann sem sjálfur gefur þær skýringar í samtali við DV að málið sé afar umfangsmikið og teygi anga sína víða erlendis. Félagið sem setti Magnús í þrot Það var þann 4. maí 2009 sem hér- aðsdómur úrskurðaði Magnús gjaldþrota að kröfu Straums-Burðar- áss og skipaði Ingvar Þóroddsson, héraðsdómslögmann á Akureyri, sem skiptastjóra. Forsaga þess var að fjárfestingafélagið BOM ehf. tók tæplega 1.200 milljóna króna lán hjá bankanum til þess að kaupa hlut í Icelandic Group árið 2005. Magn- ús keypti BOM árið 2007 og skrifaði undir sjálfskuldarábyrgð upp á 930 milljónir króna í tengslum við þau viðskipti. BOM fjárfestingar ehf. var úr- skurðað gjaldþrota 16. mars 2012 og lauk skiptum á þrotabúi félags- ins í júní sama ár með því að ekkert fékkst upp í lýstar kröfur sem námu tæpum 2,7 milljörðum. Félagið átti meðal annars 3,7 prósenta hlut í Icelandic Group sem Magnús var um tíma stór hluthafi í. Í Morgun- blaðinu var BOM ehf. kallað félagið sem setti Magnús í þrot vegna þess að það var vegna láns til þess félags sem Straumur-Burðarás krafðist gjaldþrotaskipta yfir honum. En þó að Magnús hafi verið úr- skurðaður gjaldþrota, rúmum þremur árum áður en skiptum lauk á þrotabúi BOM, þá hafa skipti á búi Magnúsar dregist fram úr hófi og er ekki enn lokið. Umsvifamikill í útrásinni Magnús er líklega þekktastur sem viðskiptafélagi feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors en þeir stofnuðu drykkjarvöru- verksmiðjuna Bravo Brewery í St. Pétursborg í Rússlandi. Í ársbyrjun 2002 keypti Heineken-bjórframleið- andinn verksmiðjuna á 400 millj- ónir dala. Björgólfsfeðgar og Magn- ús sneru síðan vellauðugir aftur til Íslands sem Samson-hópurinn og keyptu kjölfestuhlut í Landsbank- anum. Magnús átti síðan sem fyrr segir einnig stóran hlut í Icelandic Group, var aðaleigandi Avion Group, sem meðal annars átti Eimskip. Magnús var því einn umsvifamesti fjárfestir á Íslandi fyrir hrun, en líka sá fyrsti hinna svokölluðu útrásarvíkinga til að vera úrskurðaður persónulega gjaldþrota. Tugmilljarða gjaldþrot viðskiptafélaga Nokkrum mánuðum síðar, á ár- inu 2009, var viðskiptafélagi hans, Björgólfur Guðmundsson, úrskurð- aður gjaldþrota. En skiptum á þrota- búi Björgólfs lauk þann 27. maí í fyrra, tæpum fimm árum eftir gjald- þrot. Lýstar kröfur í bú hans námu 85 milljörðum króna og er talað um það sem stærsta persónulega gjald- þrot Íslandssögunnar. Samkvæmt upplýsingum DV nema lýstar kröf- ur í þrotabú Magnúsar rúmlega 20 milljörðum króna sem gerir það að næststærsta persónulega gjaldþroti sögunnar hér á landi. Sjö ára skuldafangelsi „Auðvitað er það þannig að ég tók ábyrgð á mínum gjörðum með því að gangast í sjálfskuldarábyrgð fyrir ýmsum hlutum og greiddi það „ultimate“ gjald sem nokkur business-maður getur greitt fyrir það og var úrskurðaður gjaldþrota,“ segir Magnús í samtali við DV. „En á sama tíma þá voru þær eignir sem ég átti, aðallega Eimskip og Icelandic Group og annað slíkt, teknar af mínum aðalskuldunaut, sem var Landsbankinn, og hafa síð- an verið seldar fyrir miklar upphæð- ir. En að vera í skuldafangelsi í nærri sjö ár er langur tími, þegar aðrir eru kannski lokaðir inni í styttri tíma, ég veit hreinlega ekki hvort er betra.“ Líklega Íslandsmet DV bar mál Magnúsar undir lög- menn sem segjast ekki muna ann- an eins drátt á gjaldþrotaskiptum og líklega fari málið langleiðina með að vera Íslandsmet í óuppgerðu búi. Aðspurðir um þýðingu þessa drátt- ar fyrir skuldara benda þeir á að viðkomandi sé verulega heftur til athafna meðan á gjaldþrotaskiptum stendur og í raun séu athafnafrelsi og mannréttindi einstaklings veru- lega skert á meðan. „Mig hefur alltaf langað til að vera Íslandsmeistari í einhverju, en aldrei óskað mér að vera það í þessu,“ segir Magnús kíminn. „Þetta er að taka lengri tíma en það tók að gera upp Lehman Brothers, það er ekki leiðum að líkjast.“ Fyrning háð skiptalokum En það er ekki aðeins sá tími sem gjaldþrotaskiptin hafa tekið. Við þann tíma sem vinna skiptastjóra mun taka munu alltaf bætast tvö ár hið minnsta. Því skuldir sem ekki fást greiddar við gjaldþrotaskipti fyrn- ast á tveimur árum frá skiptalokum. Ef fyrning er ekki rofin með viður- kenningardómi falla allar skuldir, sem ekki fengust greiddar við gjald- þrotaskipti, niður að liðnum tveim- ur árum. En þar sem skiptum á búi Magnúsar er ekki enn lokið, tæplega sex og hálfu ári frá gjaldþroti hans, þýðir að fyrningarfresturinn er ekki enn farinn að telja. Það þýðir að þó að skiptum ljúki á morgun er ljóst að hann verður ekki laus úr viðjum síns persónulega gjaldþrots fyrr en hátt í níu árum eftir að til þess kom. Skilj- anlega talar Magnús því um skulda- fangelsi. Eins og leigubílstjóri án ökuskírteinis „Það er nú bara drjúgur hluti af starfsævi venjulegs manns og maður yngist ekkert,“ segir Magnús. Hann segir að málið hafi haft veruleg áhrif á hann. „Ég get lýst þessu eins og að vera leigubílstjóri sem hefur ekki öku- skírteini. Ég hef mína atvinnu af því Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is að stunda viðskipti og núna hef ég í rauninni ekki leyfi til þess. Auðvitað hefur þetta mikil áhrif á mig. Mað- ur tekur að sér einhver verkefni og getur gert það í einhvern ákveðinn tíma, en maður getur ekki gert það svo árum eða áratugum skiptir.“ Segir skiptastjóra óhæfan Magnús er harðorður í garð skiptastjórans sem ekki hefur tekist að ljúka skiptunum og vandar hon- um ekki kveðjurnar. „Það er héraðsdómur sem skip- ar greinilega óhæft fólk, sem er þá þessi skiptastjóri. Dómurinn virðist þá ekki hafa neitt vald til að fylgja því eftir að hann vinni sína vinnu. Og það að vera, eins og lagalega heitið er, þrotamaður í sjö ár, sá maður – hvort heldur sem það er ég eða einhver annar – hefur nákvæmlega engan rétt. Þannig að þessi óhæfi lögmaður getur þá bara setið og lif- að á þessu þrotabúi eins lengi og það endist, ef hann innheimtir þá eitt- hvað, það er að segja.“ Aðspurður hvort hann hafi leit- að eða fengið einhverjar skýringar á þessum drætti á uppgjörinu segir Magnús að það hafi verið reynt. „Að sjálfsögðu hefur verið spurt eftir því en þær skýringar eru mjög haldlitlar og talað um einhverja rannsóknarvinnu og því um líkt sem mér getur ekki annað en fund- ist hjákátlegt. Því hvernig er hægt að standa í einhverri rannsóknarvinnu í tæp sjö ár þegar verið er að ganga frá þrotabúum bankanna, sem eru miklu stærri mál að ég held.“ Óskiljanlegt hvað tefji Þar sem ekki sé vitað til neinna flókinna aðgerða sem skiptastjór- inn hafi þurft að grípa til, ekki vit- að til að neinar aðgerðir Magnúsar, hvorki fyrir né eftir gjaldþrotaskipti, hafi verið til opinberrar rannsókn- ar vegna refsiverðrar háttsemi, þyk- ir Magnúsi óskiljanlegt hvað það er sem tefji. „Ég hef aldrei verið kallaður fyrir sérstakan saksóknara, ég hef aldrei verið kallaður fyrir dóm að nokkru leyti eða nokkurn hlut í sambandi við mín viðskipti.“ Magnús segir að þetta sé ekki endilega spurning um hann persónulega, enda vilji hann enga vorkunn. „Þetta er spurning um að fólk sem lendir í þessari ógæfu – og menn lenda í og koma til með að lenda í – þeir hafa engan rétt og þetta getur haldið svona áfram og síðast en ekki síst þá er nú hver og einn mannlegur.“ Samkvæmt upplýsingum DV eru það kröfuhafarnir í málum sem þessum sem hafa mest um það að segja hversu langt er gengið í að hafa uppi á eignum og hversu langan tíma það taki. Kröfuhafar geta viljað halda málum sem þess- um opnum og gera allt sem þeir geta til að fá peninga upp í kröfur sínar. Umfangsmikið mál og flókið DV leitaði skýringa hjá skiptastjór- anum, Ingvari Þóroddssyni, á því hvað valdi því að svo langan tíma hafi tekið að ljúka skiptum á búinu. Ingvar segir að fyrst og fremst sé málið umfangsmikið og teygi anga sína um víðan völl í útlöndum. „Þetta er mjög umfangsmikið og teygir sig til útlanda, mjög víða, þetta er ekki bara Ísland og næsta nágrenni,“ segir Ingvar sem kveðst ekki vilja svara fyrir þá yfirlýsingu Magnúsar að hann sé óhæfur til verksins. Hann telur ekki óeðlilegt hversu langan tíma það hafi tekið að ljúka skiptum á búinu. Verkið sé umfangsmikið, flækjustigið hátt og nefnir einnig dómsmál sem fyrr á þessu ári kom niðurstaða í. „Það var dómsmál sem fjall- aði um eign á erlendri grundu sem lauk núna í byrjun mars og það er ekki enn búið að selja þá eign sem það mál snerist um. Sú eign er í sölumeðferð og það var raunveru- lega ekki fyrr en í apríl sem hægt var að fara að undirbúa sölu.“ Aðspurður hvort ekki sjái fyrir endann á gjaldþrotaskiptunum eft- ir öll þessi ár, segir Ingvar að vissu- lega sé svo. n „Að vera í skulda- fangelsi í nærri sjö ár er langur tími, þegar aðrir eru kannski lokaðir inni í styttri tíma, ég veit hreinlega ekki hvort er betra. Magnús Þorsteinsson „Þannig að þessi óhæfi lögmaður getur þá bara setið og lif- að á þessu þrotabúi eins lengi og það endist, ef hann innheimtir þá eitt- hvað. Magnús Þorsteinsson „Þetta er mjög um- fangsmikið og teygir sig til útlanda, mjög víða, þetta er ekki bara Ís- land og næsta nágrenni. Ingvar Þóroddsson Í skuldafangelsi Sex og hálft ár eru liðin síðan Magnús Þorsteinsson var úrskurðaður gjaldþrota en skiptum á búinu er ekki enn lokið. Lýstar kröfur í búið nema rúmlega 20 millj- örðum. Skiptastjóri segir málið umfangsmikið. Mynd RÓbERT REynISSon Samson–hópurinn Magnús Þorsteinsson, Björgólfur Thor og faðir hans, Björgólfur Guðmund sson, seldu drykkjarvöruverksmiðju sína í St. Pétursborg fyrir mikið fé. Þeir sneru til Íslands og keyptu kjölfestuhlut í Landsbank anum. Af þremenningunum eru Magnús og Björgólfur gjaldþrota á meðan Björgólfur Thor hefur náð vopnum sínum á nýjan leik. Mynd RÓbERT RE ynISSonSími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af Þrotamaður í sex og hálft ár Magnús Þorsteinsson er ósáttur með að skiptum sé ekki enn lokið á búi hans, tæpu sex og hálfu ári eftir að Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði hann gjaldþrota. Dómstjóri viðurkennir að þetta sé langur tími, en fyrir því geti verið ýmsar ástæður. Mynd AðSEnd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.