Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Blaðsíða 44
Helgarblað 16.–19. október 201536 Lífsstíll Verið alltaf velkomin í Kolaportið! Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17. Næg bílastæði við Kolaportið Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína! Kolaportið er umkringt af bílastæðahúsum. Vesturgata · Mjóstræti Fjöldi stæða 106 Ráðhúsið · Tjarnargata 11 Fjöldi stæða 130 Traðarkot · Hverfisgata 20 Fjöldi stæða 270 Kolaportið · Kalkofnsvegur 1 Fjöldi stæða 270 K V IK A Stjörnurnar vilja mikið hár Heitasta tískan í hári í Hollywood er mikið hár og maður þarf alls ekki að vera keppandi í fegurðar­ samkeppni í Texas með greiðuna og hárspreyið á lofti til að vera með. Nýja leiðin að miklu hári er fjölbreytt. Maður getur ein­ faldlega sett snúð á kollinn úr parti af hárinu en leyfa megninu af hárinu að vera slegið, setja allt hárið í hátt tagl og jafnvel flétta taglið eða skarta nokkrum hornum úr hári líkt og um hár­ band væri að ræða. Ariana Grande Söngkonan Ariana Grande er drottning háu taglanna. Mikið af hári Bandaríska tónlistar- konan Janelle Monáe. Lítur upp til Beyoncé og Khloé n Samkvæmisdansarinn Malín Agla elskar föt S tíllinn minn er fjölbreyttur. Stundum klæði ég mig ein­ falt en stundum er ég djörf og jafnvel kynþokkafull. Svo get ég verið voðalega hvers­ dags inni á milli,“ segir samkvæmis­ dansarinn Malín Agla Kristjánsdóttir sem tók vel í það að opna fataskáp­ inn fyrir lesendur DV. Breyti fötum Malín Agla segist lengi hafa haft áhuga á fötum og tísku en neitar því að elta uppi alla strauma og stefn­ ur. „Ég fylgist með tískunni en hef minn eigin stíl og klæðist því sem ég vil klæðast hverju sinni. Ég hef líka mjög gaman af því að sauma föt og breyta fötum. Oft þegar ég finn mér ekkert í búðunum redda ég mér með því að breyta einhverju.“ Flytur til Noregs Malín Agla, sem er tvítug, hefur æft og keppt í samkvæmisdönsum frá unga aldri og mun í næsta mánuði flytja til Nor­ egs til að vera nær dansfé­ laganum sín­ um, Tobiasi. „Þetta er mjög indæll strákur. Við höfum þekkst mjög lengi þar sem við höf­ um hist reglulega á mót­ um. Hann hætti nýlega með dansfélaga sínum og vantaði nýjan og þar sem við erum með sama þjálfarann stakk hann upp á því að við mynd­ um dansa saman. Þetta gerðist á sama tíma og ég var að undirbúa mig fyrir Ungfrú Ísland­ keppnina og strax eftir keppnina flaug ég til Noregs og hitti hann. Og nú er ég bara að fara að flytja.“ Hæfileikaríkasta stelpan Malín Agla var valin hæfileikarík­ asta stelpan í keppninni Ungfrú Ís­ land sem fram fór í síðasta mánuði og er alsæl með titilinn. „Ég er Miss Talent Ísland og þykir mjög vænt um þann titil. Ég hafði verið í danspásu í hálft ár en þessi viðurkenning ýtti mér aftur út í dansinn. Ég er afskap­ lega ánægð og hefði ekki viljað vinna neitt annað,“ segir Malín sem saum­ aði kjólinn sjálf sem hún klæddist í keppninni. Stefnir á nám Malín Agla starfar sem þjónn á Vega­ mótum. „Draumurinn er að fara í skóla í framtíðinni. Kannski skelli ég mér í nám í Noregi. Allavega mun ég pottþétt halda áfram að hanna mína eigin kjóla og hver veit nema ég detti inn í þann bisness; að hanna og sauma samkvæmisdanskjóla. Ég hef allavega mjög gaman af því.“ Mamma fyrirmynd Aðspurð um fyrirmyndir í tískunni nefnir hún mömmu sína. „Ég hef alltaf litið upp til mömmu þegar kemur að tísku og fatnaði. Það var hún sem kenndi mér að versla og kveikti þannig áhugann. Annars hef ég líka mikinn áhuga á stíl Hollywood­stjarnanna. Beyoncé kemur sterk inn og Khloe Kardashi­ an er einnig í miklu uppáhaldi.“ n Malín Agla Malín segist hafa erft fataáhugann frá mömmu sinni. „Þetta gerðist á sama tíma og ég var að undir- búa mig fyrir Ungfrú Ísland-keppnina og strax eftir keppnina flaug ég til Noregs og hitti hann Peysa frá mömmu Peysan er úr Warehouse en Malín aAgla stal henni úr skáp móður sinnar. „Þetta er þægilegasta, mjúkasta og hlýjasta peysa í heimi.“ Frábær flík Malín Agla saumaði sér þennan flotta samfesting sjálf. Uppáhalds Þessi fallegi rauði kjóll er í uppáhaldi hjá Malín Öglu. „Hann er í „pin up“-stíl og var keyptur í Zöru.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.