Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Blaðsíða 43
Helgarblað 16.–19. október 2015 Skrýtið 35 mánudaginn 19. október, kl. 18 Listmuna-­ uppboð í Gallerí Fold Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Forsýning á verkunum alla helgina föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17 Jóhannes S. KjarvalGunnlaugur Blöndal Þórarinn B. Þorláksson Ásgrímur Jónsson T æpum áttatíu kílómetr­ um fyrir utan höfuðborg Bandaríkjanna, Wash­ ington, stendur húsaþyrp­ ing sem í fljótu bragði læt­ ur ekki mikið yfir sér. Þyrpingin er í Virginíuríki, nánar tiltekið í Blue Ridge­fjöllum, og er óhætt að segja að staðurinn sé ekki fyrir hvern sem er. Í neyðartilfellum, ef stríð brýst út eða heimsendir er yfirvofandi, verða helstu fyrirmenni Bandaríkj­ anna flutt þangað. Neyðarmiðstöð fyrir Bandaríkin Mount Weather er nafnið á staðn­ um en nafnið er dregið af veð­ urathugunarstöð sem var reist á staðnum seint á 19. öld. Á tím­ um síðari heimsstyrjaldarinnar gegndi staðurinn ákveðnu hlut­ verki; þar var þjónustumiðstöð og tilraunastofa fyrir bandaríska her­ inn. Á þeim tíma voru bara tvær byggingar þar en í dag standa mun fleiri byggingar á lóðinni sem í heild telur 176 hektara. Árið 1993 var ráðist í uppbyggingu á svæð­ inu og þjónar svæðið nú þeim til­ gangi að vera eins konar neyðar­ miðstöð fyrir öll Bandaríkin. Þegar jarðskjálftar, flóð, fellibylir eða aðr­ ar náttúruhamfarir gera vart við sig tekur starfsfólk í Mount Weather við hjálparbeiðnum. 56 þúsund fermetrar Eftir stríðslok fór lítið fyrir Mount Weather en árið 1959 var lokið við byggingu neðanjarðarhvelfingar sem er hvorki meira né minna en 56 þúsund fermetrar. Sem fyrr segir fór tiltölulega lítið fyrir Mount Weather í bandarísku pressunni framan af tuttugustu öldinni. Það var ekki fyrr en árið 1974 að augu fjölmiðla fóru að beinast að staðnum en þá brotlenti Boeng 727­flugvél skammt frá lóðinni. Bandaríska blaðið Was­ hington Post fjallaði um staðinn og þá kom á daginn að hann gegndi því hlutverki sem hann gegnir enn þann dag í dag; að vera eins konar hvelfing sem fyrirmenni yrðu flutt í ef neyðaratvik kæmu upp. Notuð hinn 11. september 2001 Árin 1979 til 1981 bjuggu forsvars­ menn the National Gallery of Art til áætlun sem fól í sér að verðmæt málverk og önnur listaverk yrðu flutt í hvelfinguna með þyrlu. Áætlun­ in var gerð til að koma í veg fyrir að verðmætur menningararfur Banda­ ríkjanna kæmist í óvinahendur. Sem betur fer hefur ekki oft komið til þess að hvelfingin hafi verið not­ uð. Þó var greint frá því eftir hryðju­ verkaárásirnar þann 11. september 2001 að helstu fyrirmenni banda­ rískra stjórnmála hefðu verið flutt í hvelfinguna. Þessar upplýsingar komu fram í gögnum sem Wikileaks birti árið 2009. Leynilegur staður Eins og kannski gefur að skilja er Mount Weather, eða hvelfingin undir, háleynilegur staður og ekki eru til myndir innan úr hvelf­ ingunni. Þær hafa að minnsta kosti ekki komið fyrir augu almennings. Árið 2001 kom út heimildamynd, Bunkers, þar sem verkfræðingar og pólitískir greinendur vörpuðu ljósi á þá starfsemi sem fram fer í Mount Weather. n Heimsenda- hvelfingin í Virginíu n 56 þúsund fermetra neðanjarðarbyrgi Mount Weather Þarna undir leynist risastór hvelfing. Fluttur í hvelfinguna? Greint var frá því eftir hryðjuverkaárásirnar þann 11. september 2001 að helstu fyrirmenni bandarískra stjórnmála hefðu verið flutt í hvelfinguna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.