Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Qupperneq 26
2 Bílablaðið - Kynningarblað Helgarblað 16.–19. október 2015
A
kstursíþróttir eiga sér langa
sögu á Íslandi. Í ár eru
fimmtíu ár síðan fyrsta tor-
færan var haldin, fjörutíu ár
síðan fyrsta rallkeppnin var
haldin, Kvartmíluklúbburinn hélt
upp á fjörutíu ára afmæli sitt í sumar
og á síðasta ári hélt Bílablúbbur Ak-
ureyrar upp á sín fjörutíu ár..
Fyrsta keppni í torfæruakstri á Ís-
landi fór fram í landi Reykjahlíðar
í Mosfellsdal þann 2. maí 1965. Bif-
reiðaklúbbur Reykjavíkur stóð fyr-
ir keppninni og stóð Egill Gunnar
Ingólfsson uppi sem sigurvegari á
Willys CJ5 árgerð 1964. Jóel Jóelsson,
garðyrkjumaður í Reykjahlíð, veitti
BKR leyfi fyrir keppninni á landar-
eign sinni og mátti litlu muna að
menn þyrftu að sæta fangelsisvist
fyrir athæfið því slík keppni var með
öllu bönnuð að sögn lögreglu. Eins
og menn vita hefur íslenska torfæran
síðar náð að verða vinsælt sjónvarps-
efni og keppt í henni í öðrum lönd-
um, sérstaklega á Norðurlöndunum.
Bílaklúbbur Akureyrar var stofn-
aður 1974 og gekk starfsemin í fyrstu
mest út á sýningar á bílum félags-
manna. Fyrsta formlega torfæru-
keppnin var haldin á Akureyri 1976
og síðan hefur orðið mikil upp-
bygging á svæðinu.
Yfirvöld og skriffinnar þeirra voru
lengi vel sterklega á móti aksturs-
íþróttum en þó tókst að halda fyrstu
rallkeppni á Íslandi 24. maí 1975.
FÍB stóð fyrir keppninni sem fór
fram eftir reglum FIA. Skilyrði var að
hraðinn færi aldrei yfir 70 km/klst!
Keppnin vakti mjög mikla athygli.
Hinn landskunni Ómar Ragnarsson
tók þátt í keppninni með Jón bróð-
ur sinn sem aðstoðarökumann. Þeir
óku á Fiat 127 árgerð 1974 og áttu
þeir bræður eftir að vera áberandi í
sportinu næstu árin.
Stofnfundur Kvartmíluklúbbsins
var haldinn 6. júní 1975 fyrir fullu
húsi í Laugarásbíói. Strax þetta sama
ár fór klúbburinn að halda bílasýn-
ingar og sandspyrnukeppnir. Sand-
spyrnurnar voru haldnar að Hrauni
í Ölfusi og mættu þar allir helstu
spyrnubílar landsins ásamt mikl-
um fjölda áhorfenda. Fljótlega var
farið að undirbúa byggingu keppn-
isbrautar í kvartmílu og vorið 1980
var brautin formlega opnuð í hraun-
inu við Straumsvík.
Árið 2008 var hafin vinna við að
koma akstursíþróttum undir hatt
Íþrótta- og ólympíumsambands Ís-
lands. Þá stofnuðu félögin í sam-
vinnu við Landssamband íslenskra
akstursfélaga sérstaka nefnd til að
fylgja því eftir. Akstursíþróttasam-
band Íslands, AKÍS, var síðan stofnað
20. desember 2012. Auk áðurnefndra
félaga er sambandið myndað af
Akstursíþróttafélagi Suðurnesja,
Akstursíþróttafélagi Hafnarfjarð-
ar, Bílaklúbbi Skagafjarðar, Aksturs-
íþróttafélaginu Start, Torfæruklúbbi
Suðurlands og Stimpli Aksturs-
íþróttafélagi.
Markmið sambandsins er að
sameina akstursíþróttafélögin á Ís-
landi með áherslu á öryggi áhorf-
enda, keppenda og starfsmanna.
AKÍS er fullgildur aðili að FIA, sem
er Alþjóðlega akstursíþróttasam-
bandið. Aðildin opnar möguleika
fyrir íslenska akstursíþróttamenn að
sækja keppnir erlendis og við getum
líka haldið alþjóðlegar keppnir á Ís-
landi. AKÍS er þannig virkur þátttak-
andi í öflugu íþróttastarfi á Íslandi
og á alþjóðlegum vettvangi. Efst í
huga er að farið sé eftir reglum og að
traustur búnaður sé notaður.
Um þessar mundir eru haldnar í
kringum 50 akstursíþróttakeppnir á
hverju ári og geta menn valið milli
fjölbreyttra greina. Drift er nýjasta
greinin og þar er takmarkið að spóla
eða dansa í gegnum beygjur og eru
gefin stig fyrir línur, gráður og stíl.
GoKart er upplögð íþrótt fyrir byrj-
endur. Þar gilda svipaðar reglur og
í Formúlu 1 og geta menn ímynd-
að sér að vera á ráspól með mönn-
um eins og Schumacker og fleirum
sem hófu ferilinn í GoKarti. Rally er
svo auðvitað hreinn kappakstur á
lokuðum sérleiðum sem eru hluti af
vegakerfi landsins og 70 km hraða-
múrinn er löngu horfinn. Rallycross
er kappakstur á hringbraut þar
sem keppendur eru ræstir á sama
tíma. Árekstrar eru tíðir og keppn-
in oft gríðarlega spennandi. Spyrna
er keppni þar sem tveir keppend-
ur ræsa hlið við hlið. Hér er gott að
hafa slatta af hestöflum! Torfæra er
keppni á jeppum þar sem eknar eru
stuttar en afar erfiðar brautir. Hér eru
veltur og tilþrif aðalmálið.
Mikill kraftur er nú í starfi aksturs-
íþróttafélaga og spennandi að fylgj-
ast með og taka þátt í þessari hröðu
íþrótt! n
Akstursíþróttir í sókn