Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 27
Kynningarblað - Bílablaðið 3Helgarblað 16.–19. október 2015
Jepplingarnir renna út af Planinu
Afar hagstætt verð á bílum í stærsta sýningarsal landsins með notaða bíla
P
lanið bílasala er með glæsi-
legan sýningarsal að Korpu-
torgi og þar má sjá afar fjöl-
breytt úrval af nýjum og
notuðum bílum, ferðavögn-
um, hjólhýsum, vélsleðum, fjórhjól-
um og margs konar öðrum farar-
tækjum. Viðskiptavinir geta vænst
þess að finna það sem þeir leita að
hjá Planinu og ef það er ekki til stað-
ar útvega starfsmenn það.
„Fólk sækir mjög mikið í jeppl-
inga núna,“ segir Ásgeir Ásmunds-
son, sölumaður hjá Planinu, en
fyrirtækið býður slíka bíla á mjög
hagstæðu verði. „Við getum alltaf
boðið besta verðið enda erum við
að selja bíla frá bílaleigunum sem
kappkosta að koma bílunum frá sér,“
segir Ásgeir.
„Hér er öll flóran inni en við
erum að keyra þetta eftir árstíð-
um. Bílar og ferðavagnar eru áber-
andi núna,“ segir Ásgeir. Hann segir
að Planið kappkosti að bjóða upp á
það sem fólk sækir í hverju sinni og
úrvalið sé mjög fjölbreytt, til dæm-
is flottir sportbílar, sparneytnir smá-
bílar, stórir fjölskyldubílar, jeppar og
jepplingar.
Sýningarsalurinn á Korputorgi er
stærsti sýningarsalur landsins með
notaða bíla og því vinsæll viðkomu-
staður hjá þeim sem eru að spá í að
kaupa sér bíl eða önnur farartæki.
Opið er mánudaga til fimmtudaga
frá kl. 10 til 18, föstudaga 10 til 17 og
laugardaga frá kl. 12 til 16.
Símanúmerið er 517 0000 og net-
fang planid@planid.is n
Planið bílasala Mikið úrval
af nýjum og notuðum bílum.
Europartar: Varahlutamiðlun sem
færir þér varahluti heim að dyrum
Í miðpunkti Evrópu
V
ið bjóðum allt að 70%
lægra verð,“ segir Frið-
björn Ó Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Europarta.
Fyrirtækið er staðsett í
Berlín og býður upp á þægilega
pöntunarleið og ráðgjöf í gegnum
netspjall og fyrirspurnakerfi á vefsíð-
unni www.europartar.is.
„Við gefum eitt heildarverð til
viðskiptavinar, aðeins eitt verð sem
gildir. Við flytjum inn varahluti fyrir
einstaklinga og keyrum þá heim til
þeirra,“ segir Friðbjörn. „Við bend-
um fólki líka á rétta staði til þess að
nálgast sinn varahlut á viðráðan-
legu verði ef við getum ekki boðið
því hann.“
En hvers vegna er fyrirtækið staðsett
í Berlín?
„Hér er miðpunktur Evrópu. Hér
er gott að vera til þess að taka á móti
varahlutum alls staðar frá og miðla
þeim til Íslands. Þjóðverjinn kemur
einnig ansi sterkur inn þegar kem-
ur að bílum og hlutum í þá. Við höf-
um myndað náið samstarf við helstu
birgja í Þýskalandi og löndunum
í kring. Síðan við byrjuðum höf-
um við fundið fyrir mikilli vöntun á
varahlutum á heimsmarkaðsverði á
Íslandi.“
Á að færa út kvíarnar?
„Það er á teikniborðinu.“
Hver er afgreiðslutíminn?
„Við miðum við 3–7 virka daga og
það er cargoflug daglega.“ Friðbjörn
bætir við að fólk ætti að kynna sér
helstu innflutningsvörur fyrirtækis-
ins á www.europartar.is áður en fyr-
irspurn er send.
Á heimasíðu Europarta segir:
Europartar ehf. er varahlutamiðl-
un sem er staðsett í Berlín. Okkar
meginstefna er að bjóða einstakling-
um og fyrirtækjum notaða eða nýja
hágæða varahluti á viðráðanlegu
verði. Við bjóðum heimsendingu
þegar varahluturinn er kominn til
landsins og sendum hann annað-
hvort heim eða á verkstæði.
Við sendum á hótel eða aðra
áfangastaði innan EU ef pantað er
með góðum fyrirvara. Europartar
eru staðsettir í Þýskalandi og hafa
myndað brú í varahlutamiðlun á
milli Evrópu og Íslands og kapp-
kosta að bjóða góða og skjóta þjón-
ustu. n