Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Blaðsíða 38
Helgarblað 16.–19. október 201530 Sport „Vá, hvað get ég gert meira?“ Þ að er alltaf allt á fullu stími hjá fótboltakonunni, en Mist tekst að finna tíma rétt fyr- ir landsleik A-landsliðs karla við Tyrki til að hitta blaða- mann á kaffihúsi í Kringlunni. Þar sem ég sit og bíð eftir henni velti ég því fyrir mér hvort kaffihús á Stjörnutorgi hafi endilega verið heppilegur staður til viðtals. Grátandi barn á næsta borði veldur mér tals- verðum áhyggjum en blessað barnið lætur svo af látunum og á sömu mín- útu gengur Mist inn, akkúrat á réttum tíma, enda vön sektarsjóðsgreiðslum í boltanum. Það liggur beinast við að spyrja hana hvort hennar sólarhringur sé eitthvað lengri en okkar hinna. Hún brosir og segist þrífast best þegar mikið sé að gera þótt hún valdi stund- um skipulagsslysum. „Þetta get- ur stundum verið svolítið krefjandi,“ segir hún. Byrjaði fjögurra ára Mist mætti fyrst á æfingu hjá Aftur- eldingu þegar hún var fjögurra ára gömul. Nú rúmum 20 árum seinna er hún enn að. Hún byrjaði að spila með sjöunda flokki þar sem systir hennar var að þjálfa. Þegar Mist komst í ann- an flokk var ákveðið að setja af stað meistaraflokkslið kvenna og freista þess að koma hópnum upp í úrvals- deild. „Við vorum mikið spútnik-lið og það er frekar sjaldgæft að lið nái þeim árangri að komast upp um deild á fyrsta árinu þeirra, hvað þá að ná að halda sér þar eins og við gerðum,“ segir Mist og bætir við að almennt rokki liðin milli deilda í nokkurn tíma. Mosfellingarnir komu hins vegar, sáu og sigruðu og höfnuðu í sjötta sæti sumarið 2007. Mist spilaði með þeim eitt sum- ar í úrvalsdeild og færði sig svo yfir til KR þar sem hún spilaði í tvö sum- ur. Þaðan lá leiðin yfir í Val þar sem hún fann festu og hefur spilað með liðinu fjögur tímabil. „Ég tengist Val mjög sterkum böndum enda hef ég spilað þar lengst af minn meistara- flokksferil. Mér þykir mjög vænt um þetta félag og finnst þetta vera minn heimaklúbbur. Ég er samt alin upp í Aftureldingu og ræturnar verða alltaf þar,“ segir Mist. „Það var svolítið skrítið að alast upp í Aftureldingu því þar var enginn meistaraflokkur kvenna. Ég hafði fyr- ir vikið engar fyrirmyndir. Það fór því eiginlega framhjá mér að ég gæti haldið áfram í boltanum. Þetta hafði verið þannig að þú fórst upp í annan flokk – svo hættirðu í fótbolta. Þannig var þetta þegar ég var krakki, umfjöll- unin um kvennaboltann var mjög lítil og landsliðið vakti ekki það mikla athygli að ég gæti séð það fyrir mér að það væri einhver framtíð í þessu,“ segir hún. Foreldrar hennar voru þó mjög duglegir við að benda henni á knattspyrnukonuna, og náfrænku Mistar, Margréti Ólafsdóttur, sem spilaði meðal annars með atvinnu- mannaliði í Bandaríkjunum og með íslenska landsliðinu. „Magga frænka var svona eina fyrirmyndin sem ég hafði og gat speglað mig í,“ segir Mist og segir að hún harmi það að hafa ekki haft fleiri. Árangur Aftureldingar skapaði mörg tækifæri fyrir Mist en fram- ganga hennar vakti mikla athygli. Hún var í kjölfarið valin í U-19 lands- liðið. Liðið vann sér inn þátttökurétt á lokakeppni EM og augu A-lands- liðsþjálfarans beindust að liðinu. „Allt í einu snerist lífið bara um fót- bolta,“ segir Mist sem áttaði sig á því að þarna væri að skapast sóknartæki- færi fyrir hana á vellinum. „Ég á erfitt með að gera fram- tíðarplön og ég er meira í því að setja mér lítil markmið, en þarna hafði ég allt að vinna. Þegar ég var fyrst valin í U-19 hugsaði ég með mér: „Vá, hvað get ég gert meira?““ Mist hafði samband við hlaupa- þjálfara, vann náið með landsliðs- þjálfaranum og ákvað að bæta sig hvað best hún gat. „Þetta voru allt lítil markmið sem ég setti eitt í einu, ég velti því fyrir mér hvað það væri sem ég vildi gera og hvernig ég ætlaði að nálgast það. Við það opnuðust fleiri og fleiri dyr,“ segir hún. Ein af stærstu stundunum innan vallar komu svo þegar hún varð bikar meistari með Val árið 2011. Atvinnumennska og menningarsjokk Sumarið 2012 áttaði Mist sig á því að hún hafði vakið athygli utan land- steinanna og henni bárust tilboð um atvinnumennsku. „Ég hafði alltaf ver- ið með það á bak við eyrað að fara í háskóla í Bandaríkjunum,“ segir hún en hafnaði þremur slíkum boðum. „Svo bauðst þetta, að fara í atvinnu- mennskuna, og það heillaði mig strax.“ Hún sló til og skellti sér til Noregs til að spila með geysisterku lið Avaldsnes þar sem fyrir voru þrír Íslendingar. „Það var krökkt af at- vinnumönnum í þessu liði og það voru jafnvel atvinnumenn utan hóps. Það voru leikmenn frá fimm heims- álfum í liðinu og ég lærði ótrúlega margt á þessu,“ segir hún. Mist lík- aði atvinnumennskan vel og áður en árið var liðið var henni boðið til Bras- ilíu þar sem hún spilaði í nokkrar vik- ur. „Okkur bauðst að stökkva þarna út í nokkrar vikur og spila. Þetta var skemmtileg upplifun og opnaði augu mín, en þetta var mikið menningar- sjokk. Þetta var allt annað en ég hafði búist við og mun hrárra en ég hafði gert mér grein fyrir.“ Kaffi og dagblaðalestur Eftir ævintýrið í Brasilíu lá leiðin heim og óvissan tók við. Mist bárust fjölmörg tilboð og hún var í samn- ingaviðræðum við nokkur lið og mátaði eitt þeirra. Hún vissi ekki al- veg hvernig hún vildi haga málunum og gekk ekki frá neinum samning- um. „Fyrstu vikurnar fannst mér al- veg æðislegt að vakna á morgnana: sitja, lesa blöðin með pabba, drekka kaffi og gera ekki neitt. Það var alveg frábært að vera heima í faðmi fjöl- skyldunnar,“ segir Mist og bætir því við að hún sé afar heimakær. Skyldi kannski engan undra enda yngst í Líf Mistar Edvardsdóttur fótboltakonu er púsluspil. Hún sinnir fullu starfi sem markaðsfulltrúi hjá Toyota, er á lokaönn í viðskiptafræði í háskól- anum og er fyrirliði Vals í meistaraflokki kvenna. Mist á glæstan feril að baki í fótboltanum, vakti fyrst athygli með Aftureldingu en hefur verið fyrirliði undan- farið ár og burðarás í liði Vals á síðustu tímabilum auk þess að prófa atvinnu- mennsku í Noregi. Þegar hún greindist svo með krabbamein sumarið 2014 hélt hún sínu striki og spilaði nánast heilt sumar af miklum krafti, þrátt fyrir krefjandi lyfjameðferð, sannfærð um að hún gæti verið ein þeirra fyrirmynda sem hana sárvantaði þegar hún var yngri. Sumarið var krefjandi hjá Val og nú leitar hún allra leiða til að gera betur á næsta tímabili.bili. Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Ég hafði fyrir vikið engar fyrirmyndir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.