Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Page 10
Helgarblað 20.–23. nóvember 201510 Fréttir
Láttu þér líða vel
Opnunartími
Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00
Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00
meccaspa.is
Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma)
Gildir f
yrir alla
r
tegund
ir af nu
ddi við
afhend
ingu þe
ssa
miða.
20%
afsláttu
r
Hjúkrunar-
fræðingur fær
26 milljónir
Landspítalanum hefur verið gert
að greiða hjúkrunarfræðingi
sem starfaði á spítalanum 26,5
milljónir króna vegna ágreinings
um starfslokasamning. Konan
hóf störf á Borgar spítalanum
árið 1989 . Hún varð síðar
yfirmaður starfsmannamála
Landspítalans, framkvæmdastjóri
mannauðssviðs og starfsmanna-
stjóri. Lýsti hún því fyrir dómi að
hún hefði verið kölluð á fund hjá
Birni Zoëga, þáverandi forstjóra
Landspítalans, í maí 2014 þar sem
hann óskaði eftir því að hún léti af
störfum og gerður yrði samningur
við hana í því sambandi. Hinn
31. maí 2014 var undirritaður
samningur sem kvað meðal
annars á um að hún myndi verða
forstjóra spítalans til ráðgjafar um
starfsmannamál til ársins 2017
og sinna öðrum tilfallandi verk-
efnum. Þá kvað samningurinn
á um að hún fengi sambærilegt
starf á Landspítalanum fyrir 31.
maí 2017 eða annars staðar hjá
ríkinu. Hún myndi ekki snúa aftur
til starfa sem starfsmannastjóri
spítalans en áfram njóta launa
starfsmannastjóra til loka maí
2017. Það var svo í byrjun janúar
að settur forstjóri spítalans, Páll
Matthíasson, óskaði eftir fundi
við konuna. Tjáði hann henni að
Birni hefði verið óheimilt að gera
við hana starfslokasamning og
að fjármálaráðuneytið hefði sent
Landspítalanum bréf með þeim
tilmælum að leysa málið með
öðrum hætti. Fór svo að endir var
bundinn á starfslokasamninginn.
Við þetta var konan ósátt og fór
í mál við spítalann. Dómari mat
það svo að spítalanum hefði
verið óheimilt að binda endi á
ráðningarsamninginn og þarf
spítalinn að greiða konunni
bætur, samtals rúmar 26,5
milljónir króna.
S
ífellt hefur komið betur í ljós
hversu miklum búsifjum fjár-
hundaflokkurinn, sem lék
lausum hala á beitilöndum
ofan Mosfellsbæjar, olli í
sumar. Nú er ljóst að hundarnir drápu
og særðu illa hátt í 150 lömb. Bændur
sem beittu fé á svæðið í sumar hafa
verið að heimta það af fjalli alveg
fram til þessa dags og er myndin nú
að verða skýrari.
DV fjallaði um hundana 9. október
og kom þá fram að hátt í hundrað
lömb hefðu að öllum líkindum verið
drepin af hundunum. Nú liggur hins
vegar fyrir að lömbin eru mun fleiri
en haldið var þá. Samkvæmt upp-
lýsingum sem DV hefur aflað meðal
fjáreigenda á svæðinu er ljóst að hátt
í 200 lömb skiluðu sér ekki af fjalli í
haust. Árlega verða afföll en þetta er
langt umfram það sem þekkist. Talan
150, er því sá fjöldi lamba sem áætla
má að hundarnir hafi drepið. Lang-
mest vantar af fé frá tveimur bæjum.
Það eru Hraðastaðir í Mosfellsdal,
en þar vantar um 60 lömb og svipað
virðist uppi á tengingum á Heiðarbæ
I í Þingvallasveit. Jóhannes Svein-
björnsson bóndi segir að 85 lömb
hafi ekki skilað sér og það sé mjög
óvanalegt. „Það er ekkert óalgengt
að þrjátíu til fjörtíu lömb vanti á
haustin, en þetta er miklu meira en
ég hef séð áður,“ segir Jóhannes í
samtali við DV. Tólf lömb þurfti að
aflífa eftir að þau skiluðu sér af fjalli
og sláturhúsið gerði athugasemdir
við sex lömb þar sem greinilega voru
ummerki eftir dýrbítana.
Lömbin illa leikin
Jóhannes segir tjónið mjög tilfinnan-
legt og hann hefur hugsað sér að
leitað réttar síns í málinu. Bjarni
Bjarnason, bóndi á Hraðastöðum
og fjallkóngur á svæðinu, missti um
sextíu lömb í hundaflokkinn í sumar.
Þá liggur fyrir að fleiri bændur sakna
fjár. Bæði úr Ölfusi og Grafningi hafa
borist staðfestingar á bitnum lömb-
um og einnig eru afföll langt umfram
það sem hefðbundið getur talist.
DV hefur upplýsingar um sjö bæi
sem misst hafa lömb vegna dýrbít-
anna. Mesta staðfesta tjónið er á
Hraðastöðum og Heiðarbæ eins og
fyrr segir. Lömbin hafa verið illa leik-
in og sum hver hálfétin. Engu lík-
ara er en hundarnir hafi sérhæft sig
í árásunum. Þannig var mjög mikið
um að vinstra eyrað hafi verið rifið af
lömbunum. Ljót og djúp bitsár var að
finna á afturlöppum rétt við hækil-
inn. Drep hefur komist í fætur eftir
árásir hundanna og ekkert var til ráða
annað en að aflífa lömbin.
„Hundar breytast í villidýr“
Bjarni, fjallkóngur á Hraðastöðum,
hefur gefið skýrslu hjá lögreglu vegna
málsins og ráðfært sig við lögfræðing.
Málið uppgötvaðist í smalamennsku í
haust. „Við komum að þremur hund-
um sem voru búnir að fella kind. Við
höfðum samband við hundaeftirlits-
mann í Mosfellsbæ. Tveir hund-
ar voru klófestir en sá þriðji slapp,“
segir Bjarni. Allt virðist benda til þess
að hundaflokkurinn hafi stundað
þessar árásir allt síðan fé var rekið á
fjall um miðjan júní. Lömb hafa fund-
ist dauð á víðavangi og nokkuð ver-
ið um tilkynningar þess efnis í sumar
og haust. Erfitt hefur verið að greina
hvaðan sum lömbin eru, þar sem eyr-
un hefur vantað á mörg þeirra.
„Við viljum hvetja hundaeigendur
til þess að fylgjast vel með dýrum sín-
um. Það er staðreynd að hundar geta
á mjög stuttum tíma breyst í villidýr.
Við sáum það gerast í sumar. Eðlið
er svo sterkt í þessum dýrum,“ sagði
Jóhannes á Heiðarbæ í samtali við
DV. Í svipaðan streng tók fjallkóngur-
inn. „Fólk verður að taka ábyrgð á
hundum sínum og það gengur ekki
að þeim sé sleppt lausum á svona
svæðum.“ n
Hundarnir drápu
um 150 lömb
n Mun meira en bændurnir hafa séð áður n Komu að þremur hundum
Illa leikin Mörg lömb þurfti að aflífa að sögn fjallkóngsins, Bjarna Bjarnasonar, bónda á
Hraðastöðum.
Gríðarleg afföll Heiðarbæj-
arrétt var gerð upp í sumar. Hér
tekur Jóhannes bóndi á Heiðar-
bæ I við skilti úr hendi oddvitans
af því tilefni. Stórtækir dýrbítar
settu svartan blett á smala-
mennsku þetta sumarið.
Eggert Skúlason
eggert@dv.is
9. október 2015