Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Qupperneq 18
18 Fréttir Erlent Helgarblað 20.–23. nóvember 2015 Reyna allt til að bjarga stúlkunum n 20–40 þúsund börn í kynlífsiðnaði í Taílandi n Rafvirki vildi breyta lífi barnanna U ngar stúlkur, allt niður í þrettán ára gamlar, eru neyddar og misnotaðar á Taílandi í kynlífsiðnaði. Áströlskum rafvirkja, sem þar var á ferðalagi, misbauð það svo þegar félaga hans var boðið samneyti við barnunga stúlku að hann sagði upp vinnunni sinni og flutti fjölskylduna alla til Taílands til að berjast fyrir réttindum barn- anna. Rafvirkinn, Tony Kirwan, flutti til Taílands með þremur dætr- um sínum og eiginkonu og stofnaði Destiny Rescue, samtök sem berj- ast fyrir réttindum ungra kvenna og barna. Á dögunum fór frétta- maður áströlsku sjónvarpsstöðv- arinnar, Channel 7, með Kirwan í rannsóknarleiðangur og fékk að fylgjast með starfi þeirra, hvernig þau bjarga börnum úr aðstæðun- um og hjálpa þeim að koma undir sig fótunum á ný. „Börn sem eru langt undir lög- aldri ganga kaupum og sölum hér. Þeim er haldið föngnum og eru neydd til að fara á bari og í vændis- hús sem eru út um allt Taíland,“ segir Denham Hitchcock , frétta- maðurinn sem fylgdi Kirwan og fjölskyldu eftir. „Þetta var algjör vendipunkt- ur fyrir mig. Ég hafði komið til Taílands oft áður og ég vissi af þessum iðnaði, en bara úr fjarlægð. Þegar maður kemst nær þessu þá sést hvað þetta er skelfilegt. Það eru margir Ástralir sem nýta sér þetta. Ég er að tala um menn sem fara inn á þessa bari og í þessi vændishús og óska sérstaklega eftir stúlkum sem eru undir lögaldri. Ég þurfti á öllu mínu að halda til að ganga ekki á eftir þeim og draga þá út,“ segir hann. Kynlífsiðnaðurinn í Taílandi er vel þekktur og einn stærsti sinn- ar tegundar. Talið er að um fjór- ir milljarðar ástralskra dollara skili sér í hagkerfið vegna hans og þá er ótalið það sem er stundað á svört- um markaði. Þóttust vera viðskiptavinir Hitchcock segir frá því þegar þeir voru að vinna og fylgjast með að- stæðum án þess að kynna sig sér- staklega sem blaðamenn. „Við sátum þarna og þóttumst vera við- skiptavinir. Stúlkurnar voru leidd- ar fram fyrir okkur og svo fluttar út. Mér leið illa yfir því að vera að fylgjast með því sem var í gangi,“ segir hann. Talið er að um tutt- ugu til fjörutíu þúsund börn séu neydd í kynlífsþrælkun um allt Taíland. Dæmi eru um að foreldr- ar hafi jafnvel selt börnin sín til manna sem stunda mansal eða þá að börnin eru neydd til að starfa og afla þannig peninga fyrir fjöl- skylduna. Hitchcock tók þátt í björgun fimmtán ára stúlku. Hún hafði þá verið neydd til starfa í tvö ár í þessum iðnaði. „Við fengum að fylgjast með henni, hún var flutt á milli staða frá 13 ára aldri og neydd í kynlífs- þrælkun. Hún brauðfæðir fjöl- skyldu sína í þessu „starfi“,“ segir hann og bætir við að hún sé sú eina sem afli fjár í fjölskyldunni. Til að bjarga henni þurftu Hitchcock og félagar að kaupa hana af mönnum sem stunda mansal. Þeim var svo komið í skjól. Í kjölfarið réðust 20 lögreglumenn inn á barinn þar sem stúlkan starfaði, handtóku dólgana og þá sem höfðu stundað viðskipti við þá. Morðhótanir Fleiri leiðir eru notaðar til þess að ná til stúlknanna. Tony Kirw- an og samstarfsfólk hans reyn- ir að ávinna sér traust stúlkunnar, aðstoða hana og sannfæra um að koma sér út úr þessum heimi með ráðum og dáð. „Það er þá í þeirra höndum að ganga út úr þessum að- stæðum. Þær þurfa að ganga út af vændishúsinu eða barnum,“ seg- ir Hitchcock. „Við biðum í von og óvon, nöguðum neglurnar og von- uðum að hún tæki rétta ákvörðun.“ Kirwan og Hitchcock sættu morðhótunum og var ráðist á þá með byssum. „Þeir sem reka þessa klúbba taka þessu mjög alvarlega. Það eru margir sem hagnast mjög mikið á þessum aðstæðum,“ segir hann og bendir á að börnin fá lítið greitt, áfengið gefur mikið í aðra hönd og því er hægt að stórgræða á mansalinu. Þeir vilja því ekki gef- ast svo auðveldlega upp og þykir athygli fjölmiðla afar slæm. Ótrúleg fórn Hitchcock talar fallega um Kirwan og fjölskyldu hans. „Þau hafa skil- ið líf sitt í Ástralíu alveg eftir og flutt allt sitt til Taílands til að bjarga öðr- um. Þvílík fórn. Destiny Rescue er að skila árangri, þeir loka stöðum fyrir fullt og allt og fólk er ákært fyrir mansalið,“ segir hann og bæt- ir því við að Kirwan eigi þrjár dæt- ur og hugsi um þær í hvert sinn sem hann reynir að koma öðrum til bjargar. „Þegar hann fer á þessa klúbba og þykist vera kúnni hugs- ar hann um dætur sínar og það er ansi mikil hvatning,“ segir hann. Kirwan og fjölskylda hans hafa unnið með Destiny Rescue í fimmt- án ár. Destiny Rescue hugsar jafn- vel um þær í nokkur ár, þangað til þær geta staðið á eigin fótum. Alls 1.300 stúlkum hefur verið bjargað. Hitchcock segir að stúlkurnar séu margar mjög brotnar þegar þær komast í skjól. „En þær eru samt ótrúlega sterkar,“ segir hann. „Þær fá tækifæri til að öðlast nýtt líf.“ n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Tony Kirwan Tony hætti að starfa sem rafvirki fyrir 15 árum og flutti fjölskyldu sína til Taílands til að bjarga börnum. „Þau hafa skilið líf sitt í Ástralíu alveg eftir og flutt allt sitt til Taílands til að bjarga öðr- um. Þvílík fórn GÓLFMOTTUR Við leigjum út gólfmottur í anddyri. Haltu fyrirtækinu hreinu og minnkaðu ræstingakostnað. Við sækjum og sendum. Fáðu verðtilboð! 511 1710 svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.