Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Qupperneq 21
Umræða 21
M
arkmið Samhjálpar er að
veita bjargir þeim einstak-
lingum sem halloka hafa
farið í lífinu, vegna sjúk-
dóma, fátæktar eða
annarra samfélagslegra vandamála og
með því stuðla að velferð og sjálfsbjörg
þeirra. Höfuðstöðvar samtakanna eru
að Hlíðasmára 14, 3. hæð 201 Kópa-
vogi. Þar eru skrifstofur, göngudeild og
úthringiver til húsa. Í Hlíðasmára fer
hluti forvarna- og eftirmeðferðarstarfs-
ins fram.
Samhjálp félagasamtök hafa starfað
að góðgerðarmálum og hjálparstarfi
í rúm fjörutíu ár með góðum árangri
og allan þann tíma staðið vaktina fyrir
þá aðila sem minna mega sín og hafa
átt við áfengis- og vímuefnavanda að
stríða. Á vegum samtakanna eru rekin
nokkur úrræði og ber fyrst að nefna
meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot í
Mosfellsdal en þar eru að staðaldri um
30 einstaklingar í meðferð og að jafnaði
eru 60 til 70 á biðlista. Hlaðgerðarkot er
meðferðarheimili en ekki sjúkrastofn-
un. Margir sem þangað leita hafa orð
á því að þar gangi starfsmenn ekki um
í hvítum sloppum heldur er þar heim-
ilislegt og kærleikurinn er hafður að
leiðarljósi. Á síðustu árum hefur yngra
fólk leitað í auknum mæli eftir með-
ferð í Hlaðgerðarkoti. Nú er svo komið
að yfir 50 prósent skjólstæðinga Hlað-
gerðarkots eru á aldursbilinu 18 til 39
ára.
Því miður annar meðferðarheim-
ilið ekki þeim mikla fjölda sem þang-
að leitar og því er nauðsynlegt að leysa
þann vanda og byggja við og stækka
meðferðarheimilið.
Árið 1974 keypti Samhjálp Hlað-
gerðarkot af Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur og byrjaði rekstur með-
ferðarheimilis þar. En meðferðarstarf
Samhjálpar byrjaði í bílskúr á Sogaveg-
inum haustið 1972. Elsti hluti af húsa-
kynnum Hlaðgerðarkots er kominn til
ára sinna (er frá árinu 1955) og þarfn-
ast aukins viðhalds. Að fara í það stóra
verkefni að byggja við Hlaðgerðarkot
er viðamikil og kostnaðarsöm aðgerð.
Því er fyrirhuguð landssöfnun á Stöð
2 í opinni dagskrá laugardagskvöldið
21. nóvember nk. ætluð til stuðnings
því verkefni. Brýn nauðsyn er að fjölga
innlagnarýmum vegna mikillar þarfar
og eftirspurnar. Fyrsti áfangi nýrrar
byggingar verður þó aðeins til að bæta
úr brýnni nauðsyn Hlaðgerðarkots.
Landssöfnun á Stöð 2
21. nóvember
Samhjálp mun standa fyrir landssöfn-
un í samstarfi við 365 miðla ehf. og
verður hún í beinni útsendingu laugar-
dagskvöldið 21. nóvember á Stöð 2 í
opinni dagskrá. Ýmsir tónlistarmenn
og skemmtikraftar munu koma fram
í þættinum og gefa þeir allir vinnu
sína til styrktar málefninu. Þá munu
einnig ýmsir skjólstæðingar, vinir og
velunnarar Samhjálpar segja reynslu-
sögur sínar á söfnunarkvöldinu. Hægt
er að leggja inn á söfnunarreikning
„Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum“,
banki: 0322-26-58000, kt. 551173-0389.
Einnig er hægt að nálgast nánari upp-
lýsingar varðandi söfnunina á www.
samhjalp.is
Eftirmeðferðar- og áfangahús
Samhjálp rekur einnig eftirmeðferðar-
og áfangahúsin Brú, en þar eru 19
einstaklingsíbúðir og Spor þar sem
18 herbergi eru. Stuðningsheimilið
að Miklubraut 18 er rekið samkvæmt
samningi við Reykjavíkurborg. Til þess
að komast að í áfangahúsinu þurfa
umsækjendur að hafa lokið meðferð
í Hlaðgerðarkoti eða á öðrum með-
ferðarstofnunum. Þeir þurfa að ráða
sig í starf að lágmarki fjórum vikum eft-
ir að þeir flytja inn eða skrá sig í nám
eða endurhæfingarúrræði. Markmið
þeirrar félagslegu aðhlynningar sem
veitt er á áfangaheimilunum er að gera
skjólstæðingum kleift að temja sér nýja
lífshætti og varanlegt bindindi á eigin
ábyrgð. Íbúum er skylt að sækja AA
fundi og viðtöl hjá ráðgjafa á göngu-
deild Samhjálpar. Þeir sem koma inn á
Spor eru gjarnan að koma úr meðferð
en það er þó ekki skilyrði fyrir búsetu
þar, menn verða þó að hafa verið edrú
í að minnsta kosti tvær vikur fyrir kom-
una þangað. Íbúar Spors eru skyldugir
til að sækja dagskrá sem felur m.a. í sér
morgunfundi fjórum sinnum í viku og
einn AA fund. Að auki er íbúum boð-
ið upp á einkaviðtöl eftir þörfum á
göngudeild Samhjálpar.
Kaffistofa Samhjálpar
Ekki má gleyma Kaffistofu Samhjálp-
ar í Borgartúni 1. Þar er boðið upp á
morgunkaffi, meðlæti og heita máltíð
um kl. 13.30, alla daga ársins, helgar
jafnt sem helgidaga. Matargestir eru að
jafnaði 180 á dag allt árið um kring. Á
síðasta ári gaf Samhjálp yfir 65 þúsund
máltíðir á Kaffistofunni.
Þakklæti
Rekstur Samhjálpar væri ekki mögu-
legur ef ekki kæmu til styrkir og gjafir
frá fyrirtækjum, félagasamtökum og
einstaklingum. Færi ég undirritaður
öllum sem lagt hafa þessu góða mál-
efni lið bestu þakkir. n
Helgarblað 20.–23. nóvember 2015
Það vantar fleiri kvenpersónur
í glæpabókmenntirnar
Við fórum í
algjöra afneitun
Haltu
kjafti
Lilja Sigurðardóttir sendi nýlega frá sér bókina Gildran. – DV Svanhildur Jakobsdóttir um veikindi eiginmanns síns heitins. – DVAndri Freyr Viðarsson við samstarfskonu sína í beinni útsendingu. – DV
Myndin Útreiðar Margir iðka hestamennsku fyrst og fremst að vetri. Það getur verið napurt í norðangarra og þá gildir að vera rétt búinn. mynd Sigtryggur Ari
Verið alltaf velkomin í Kolaportið!
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17.
Næg bílastæði við
Kolaportið
Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína!
Kolaportið
er umkringt af
bílastæðahúsum.
Vesturgata · Mjóstræti
Fjöldi stæða 106
Ráðhúsið · Tjarnargata 11
Fjöldi stæða 130
Traðarkot · Hverfisgata 20
Fjöldi stæða 270
Kolaportið · Kalkofnsvegur 1
Fjöldi stæða 270
K
V
IK
A
Samhjálp tryggir um 80 manns næturgistingu
Vörður Leví traustason
Framkvæmdastjóri Samhjálpar
Aðsent
mynd EyÞór ÁrnASon