Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 44
36 Skrýtið Sakamál Helgarblað 20.–23. nóvember 2015
„Góðu“ tvíburarnir
n Good-bræðurnir voru ekki englabossar n Faðir þeirra komst að því fullkeyptu
E
kki er hægt að segja að Good
(góðu)-tvíburarnir Craig
og Timmy hafi staðið undir
nafni. Þeir fæddust 23. apríl,
á degi drekabanans heilags
Georgs, 1973.
Líkt og margir tvíburar voru þeir
óaðskiljanlegir (ekki í bókstaflegri
merkingu þó), deildu herbergi,
leikföngum og áhugamálum, sem
snemma áttu eftir að snúast um
kynlíf og fíkniefni.
Níu ára að aldri voru tvíburarnir
farnir að selja fíkniefni fyrir föður
sinn, William. Skólaganga drengj-
anna varð heldur stopul enda
hlupu þeir gjarna í skarðið hvor
fyrir annan, það er að segja ef þeir
nenntu yfir höfuð að mæta í skól-
ann. Eitt árið skrópaði Craig í 46
daga og Timmy í 27 daga. Timmy
útskýrði þetta síðar: „Ég og pabbi
gerðum samkomulag – ég gerði það
sem mig langaði og hann gerði það
sem hann vildi.“
Þrumuprik í jólagjöf
Í desember 1988 gengu jólin í garð,
eins og gjarna gerist á þeim tíma
árs, og William Good, 36 ára rafvirki,
ákvað að gera vel við dáðadrengina
sína. Jólapakkar tvíburanna voru
ílangir og nokkuð þungir og án efa
fundu þeir til eftirvæntingar þegar
þeir opnuðu þá. Jólagjafirnar voru
þrumuprik, rifflar – einn á mann –
ekki endilega í anda jólanna en eitt-
hvað sem tvíburunum leist vel á.
Tveimur mánuðum síðar, 20.
febrúar 1989 nánar tiltekið, dró til
tíðinda. Þá voru William Good og
sextug móðir hans, Cleo, skotin til
bana á heimili sínu; hjólhýsi við
Murray-vatn í Suður-Karólínu í
Bandaríkjunum.
Á meðal þess sem var horfið
voru hringar af fingrum Cleo, ávís-
anahefti hennar og pallbíll.
Verk brjálæðings
Fimm dagar liðu frá morðunum
áður en lík mæðginanna fundust.
Nágranni þeirra varð áhyggjufull-
ur vegna þess að hundur mæðgin-
anna dvaldi meira hjá honum en
góðu hófi gegndi og ákvað að kanna
hvað ylli því.
Lögreglan var kölluð til og í fyrstu
var talið að brjálæðingur hefði verið
á ferðinni og orðið William og Cleo
að bana. En fljótlega kom í ljós að
tvíburarnir voru með einhverjum
hætti viðriðnir morðin.
Þremur dögum eftir að líkin
fundust voru bræðurnir handtekn-
ir í pallbíl ömmu sinnar skammt frá
heimili móður sinnar í Nashville
í Tennessee. Báðir voru þeir hátt
uppi þegar þeir voru handteknir.
Tvær útgáfur
Timmy og Craig höfðu selt skartgripi
ömmu sinnar til að fjármagna fíkni-
efnakaup. Síðan höfðu þeir fengið
vin til að falsa undirskrift hennar á
ávísanir til að kaupa meiri fíkniefni.
„Stærstur hluti fjárins fór í að
kaupa fíkniefni,“ sagði Craig við lög-
regluna.
Þótt tvíburarnir væru 15 ára var
réttað yfir þeim sem fullorðnir væru
og frásögnum þeirra af rás atburða
bar ekki saman. Craig sagði að
hann hefði séð ömmu sína og föð-
ur „falla“ en ekki séð Timmy taka
í gikkinn. Timmy fullyrti að Craig
hefði skotið mæðginin til bana.
Hvað sem því líður voru þeir
báðir sakfelldir og í maí, 1989, fékk
Timmy 55 ára dóm og sex mánuð-
um betur. Tveimur mánuðum síðar
fékk Craig lífstíðardóm.
Æ sér gjöf til gjalda, segir máls-
hátturinn en leiða má líkur að því
að William Good hafi ekki haft
þetta endurgjald í huga er hann
valdi jólagjafir handa drengjunum
sínum. n
„Ég og pabbi gerð-
um samkomulag
– ég gerði það sem mig
langaði og hann gerði
það sem hann vildi.
Craig Varð snemma vafasamur pappír. Timmy Varð líka snemma vafasamur pappír.
Pörupiltarnir hans Williams Good „Stærstur hluti fjárins fór í að kaupa fíkniefni,“ sagði Craig við lögregluna eftir að bræðurnir voru handteknir.
VW Amarok Trendline pallbíll ←
12/2012, ekinn aðeins 25 þús km. Diesel.
Álfelgur. Dráttarkrókur. Driflæsing á afturdrifi.
Heithúðun á palli. Málmlitur. Aukabúnaður
að verðmæti 536.000,- Nýr bíll kostar 8,4
með þessum búnaði.
Okkar verð:
6.490.000 KR.