Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.12.2015, Page 14

Fréttatíminn - 04.12.2015, Page 14
Ert þú að rannsaka orku og umhverfi? Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar styrkir náms menn og rannsóknarverkefni á sviði um hverfis- og orkumála. Ísland er ríkt af endurnýjanlegum orkuauðlindum. Þess vegna felast mikil verðmæti í íslensku hugviti til að auka þekkingu á orku og umhverfismálum. Til úthlutunar úr Orkurannsóknasjóði árið 2016 eru í heild allt að 56 milljónir króna. Styrkir til efnilegra nemenda í meistara- eða doktorsnámi á sviði umhverfis- eða orkumála. Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og orku - mála, veittir til að mæta kostnaði vegna vinnu sérfræðinga, þátttöku meistara- og doktorsnema og öðrum útgjöldum. Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur eru á landsvirkjun.is/orkurannsoknasjodur. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2016. Þ orgrímur Þráinsson fæddist í Reykjavík og bjó þar fyrstu sjö æviárin. Þá lá leiðin í Kópavoginn í nokkur ár en ellefu ára gamall flutti hann í Ólafsvík og bjó þar til 23 ára aldurs. Hann sótti þó menntaskóla í Reykjavík á vetrum en á sumrin var hann fyrir vestan enda hafði hann vanist því frá því hann var lítill drengur að verja sumrunum hjá afa sínum og ömmu á Staðastað á Snæfellsnesi. Knattspyrnuferillinn hófst með Víkingi í Ólafsvík og með því liði spilaði Þorgrímur til tvítugs þegar hann gekk til liðs við Val. Hann spilaði stöðu bakvarðar og þótti standa sig vel í vörninni. „Þorgrím- ur var nokkuð röskur og klókur bakvörður,“ segir einn mótherja hans úr fótboltanum. „Það var erfitt að komast framhjá honum og styrkur hans sem leikmanns lá meira í varnarleiknum en í sóknar- leiknum.“ Seinustu árin með Val var Þorgrímur fyrirliði liðsins og það hlutverk hæfði honum vel. „Þorgrímur var leiðtogi á velli, stjórnaði vörninni með félögum sínum. Mikill styrkleiki í hans leik var einnig sá að hann hafði alla tíð góða leikmenn í kringum sig,“ segir sami mótherji, sem reyndar er einnig góður vinur. Eftir nám við Sorbonneháskóla í París lagði Þorgrímur fyrir sig blaðamennsku, var meðal annars ritstjóri Íþróttablaðsins um hríð og einnig þar þótti hann standa sig vel. „Hann var lunkinn blaðamaður og ég held að sú reynsla hafi ýtt honum út í að fara að skrifa bækur,“ segir samstarfsmaður úr blaða- mennskunni. Fyrsta unglinga- bókin, Með fiðring í tánum, kom út 1989 og síðan hefur Þorgrímur verið einn okkar afkastamesti og vinsælasti barnabókahöfundur. Hann hefur þó ekki hlotið náð fyrir augum úthlutunarnefndar listamannalauna, hefur 25 sinnum verið synjað um úthlutun en aðeins tvisvar fengið þriggja mánaða laun. „Ég veit hann hefur tekið það nærri sér,“ segir gömul vinkona. „Hann er ekki skaplaus maður. Auðvitað sárnaði honum þessi höfnun, enda er hún alveg fáránleg. Hann hefur oft verið á topp fimm í vali þjóðar- innar á bestu rithöfundum í fjöl- miðlum og það er bara kjánalegt af elítunni að hunsa hann.“ Mikið hefur verið rætt um góð- mennsku Þorgríms eftir að hann tilkynnti um væntanlegt forseta- framboð og öllum sem rætt er við ber saman um að þar sé engu logið. „Þorgrímur er mjög hjálpsamur en þiggur sjaldan aðstoð sjálfur. Hann segir engum frá góðverkum sínum sem eru daglegt brauð hjá honum en ástæða fyrir því að ég veit af einhverjum þeirra er að fólk sem ég hitti á förnum vegi segir mér frá einhverju sem hann hefur gert eða ég fæ skilaboð um það á facebókinni,“ segir eiginkona hans. „Þó Þorgrímur sé þekktur fyrir ytri fegurð og fágun þá er hans innri fegurð ekki minni,“ segir gamall vinur. „Hann er traustur og trúverð- ugur og þú hreinlega veist ekki fyrr en þú hefur sagt honum þín dýpstu leyndarmál og vandamál. Þau eru vel geymd hjá Þorgrími og oft leyst á staðnum í góðu spjalli.“ Þorgrímur er þó ekki almáttug- ur, eins og halda mætti af lýsingum fólks á honum, matargerð er til dæmis ekki hans sterkasta hlið. „Ég held að hann sé með lélegt bragðskyn því hann hefur lítinn áhuga á mat og borðar eingöngu til að lifa af,“ segir eiginkonan. „Hann eldar en maturinn hans er lítið spennandi og einhvern tímann tók það hann fjóra klukkutíma að búa til grjónagraut; hann þurfti þrisvar sinnum að fara út í búð að kaupa meiri mjólk og skipta um pott nokkrum sinnum. Hann er mjög flinkur í mörgu og nokkuð vel að sér á mörgum sviðum en tæknimál eru ekki hans sterkasta hlið. Ég held hann kunni varla að kveikja á sjónvarpinu á heimilinu.“ Þegar leitað er svara við því hvort fólki þyki Þorgrímur eiga erindi í forsetaembættið eru svörin á eina lund. „Ég held að framboð hans verði til góðs fyrir umræðuna,“ segir fyrrum samstarfskona. „Hann tekur allt annan pól í hæðina en aðrir. Hann er ekki pólitískur í hefðbundnum skilningi, nema við köllum það pólitík að vera heittrú- aður Valsari, en hann er mjög ástríðufullur og heitur í þeim mál- efnum sem hann trúir á, ekki síst þeim sem snúa að börnum, lestri og lífsviðhorfum, sem er auðvitað ákveðin pólitík. Hann leggur sig allan fram um að lifa og miðla, í Þorgrímur Þráinsson Fæddur í Reykjavík 8. janúar 1959 Foreldrar: Þráinn Þorvaldsson og Soffía Margrét Vídalín Þorgrímsdóttir Maki: Ragnhildur Eiríksdóttir Börn: Kristófer 23 ára, Kolfinna 19 ára, Þorlákur Helgi 15 ára Nám og starfsferill: Lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1980 og stundaði nám í frönsku við Sorbonne háskóla í París 1983- 1984. Hann var blaðamaður hjá Fróða frá 1985 og ritstjóri Íþróttablaðsins og ritstjórnarfulltrúi barnablaðsins ABC frá 1989. Í lok árs 1996 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Tóbaks- varnanefndar. Knattspyrnuferill: Þorgrímur lék með meistaraflokki Vals í knattspyrnu frá 1979 til 1990 og gegndi fyrirliðastöð- unni síðustu fimm tímabilin. Áður lék hann með Víkingi frá Ólafsvík. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari á knattspyrnuferlinum með Val og tvisvar sinnum bikarmeistari. Þorgrímur lék alls um 180 leiki í efstu deild og 17 landsleiki fyrir Íslands hönd. Þá varð hann bikar- meistari í frjálsíþróttum með FH árið 1988 en hann keppti í spjótkasti. Rithöfundarferill: Þorgrímur hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og unglinga og var fyrsta bók hans Með fiðring í tánum sem kom út 1989 og varð metsölubók á sínum tíma. Hann hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 1997 fyrir bókina Margt býr í myrkrinu og aftur árið 2010 fyrir bókina Ertu Guð, afi?. Fyrsta skáldsaga hans fyrir fullorðna, Allt hold er hey, kom út 2004. Árið 2013 var hann útnefndur Borgar- listamaður Reykjavíkur og gegndi því hlutverki í eitt ár. Fallegur, heilbrigður og heiðarlegur en glataður kokkur Þorgrímur Þráinsson rithöfundur tilkynnti í síðustu viku að hann hygðist bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Fréttin vakti mikla athygli og hefur fólk keppst við að tjá skoðun sína á Þorgrími á samfélagsmiðlum síðan. Flestum ber þar saman um að þessi þekkti knatt- spyrnumaður og elskaði rithöfundur sé gull af manni og við eftirgrennslan reynist sú vera raunin. Helst á fólki að skilja að það eina sem hann geri ekki vel sé að elda mat. gegnum sitt líf, starf og ekki síst skriftir, ákveðnum lífsgildum sem hann stendur algjörlega heill á bak við. Hann er fallegur, heilbrigður, heiðarlegur og hjálpsamur. Er það ekki markmið okkar allra?“ Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatimi nn.is 14 nærmynd Helgin 4.-6. desember 2015
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.