Fréttatíminn - 04.12.2015, Blaðsíða 14
Ert þú að rannsaka
orku og umhverfi?
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar styrkir
náms menn og rannsóknarverkefni á sviði
um hverfis- og orkumála.
Ísland er ríkt af endurnýjanlegum orkuauðlindum.
Þess vegna felast mikil verðmæti í íslensku hugviti
til að auka þekkingu á orku og umhverfismálum.
Til úthlutunar úr Orkurannsóknasjóði árið 2016
eru í heild allt að 56 milljónir króna.
Styrkir til efnilegra nemenda í meistara- eða
doktorsnámi á sviði umhverfis- eða orkumála.
Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og orku -
mála, veittir til að mæta kostnaði vegna vinnu
sérfræðinga, þátttöku meistara- og doktorsnema
og öðrum útgjöldum.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur eru á
landsvirkjun.is/orkurannsoknasjodur. Öllum umsóknum
verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2016.
Þ orgrímur Þráinsson fæddist í Reykjavík og bjó þar fyrstu sjö æviárin. Þá lá leiðin í
Kópavoginn í nokkur ár en ellefu
ára gamall flutti hann í Ólafsvík
og bjó þar til 23 ára aldurs. Hann
sótti þó menntaskóla í Reykjavík á
vetrum en á sumrin var hann fyrir
vestan enda hafði hann vanist því
frá því hann var lítill drengur að
verja sumrunum hjá afa sínum og
ömmu á Staðastað á Snæfellsnesi.
Knattspyrnuferillinn hófst með
Víkingi í Ólafsvík og með því liði
spilaði Þorgrímur til tvítugs þegar
hann gekk til liðs við Val. Hann
spilaði stöðu bakvarðar og þótti
standa sig vel í vörninni. „Þorgrím-
ur var nokkuð röskur og klókur
bakvörður,“ segir einn mótherja
hans úr fótboltanum. „Það var
erfitt að komast framhjá honum
og styrkur hans sem leikmanns lá
meira í varnarleiknum en í sóknar-
leiknum.“ Seinustu árin með Val
var Þorgrímur fyrirliði liðsins og
það hlutverk hæfði honum vel.
„Þorgrímur var leiðtogi á velli,
stjórnaði vörninni með félögum
sínum. Mikill styrkleiki í hans leik
var einnig sá að hann hafði alla
tíð góða leikmenn í kringum sig,“
segir sami mótherji, sem reyndar
er einnig góður vinur.
Eftir nám við Sorbonneháskóla
í París lagði Þorgrímur fyrir sig
blaðamennsku, var meðal annars
ritstjóri Íþróttablaðsins um hríð
og einnig þar þótti hann standa sig
vel. „Hann var lunkinn blaðamaður
og ég held að sú reynsla hafi ýtt
honum út í að fara að skrifa bækur,“
segir samstarfsmaður úr blaða-
mennskunni. Fyrsta unglinga-
bókin, Með fiðring í tánum, kom
út 1989 og síðan hefur Þorgrímur
verið einn okkar afkastamesti og
vinsælasti barnabókahöfundur.
Hann hefur þó ekki hlotið náð
fyrir augum úthlutunarnefndar
listamannalauna, hefur 25 sinnum
verið synjað um úthlutun en aðeins
tvisvar fengið þriggja mánaða laun.
„Ég veit hann hefur tekið það nærri
sér,“ segir gömul vinkona. „Hann
er ekki skaplaus maður. Auðvitað
sárnaði honum þessi höfnun, enda
er hún alveg fáránleg. Hann hefur
oft verið á topp fimm í vali þjóðar-
innar á bestu rithöfundum í fjöl-
miðlum og það er bara kjánalegt af
elítunni að hunsa hann.“
Mikið hefur verið rætt um góð-
mennsku Þorgríms eftir að hann
tilkynnti um væntanlegt forseta-
framboð og öllum sem rætt er við
ber saman um að þar sé engu logið.
„Þorgrímur er mjög hjálpsamur
en þiggur sjaldan aðstoð sjálfur.
Hann segir engum frá góðverkum
sínum sem eru daglegt brauð hjá
honum en ástæða fyrir því að ég
veit af einhverjum þeirra er að fólk
sem ég hitti á förnum vegi segir
mér frá einhverju sem hann hefur
gert eða ég fæ skilaboð um það á
facebókinni,“ segir eiginkona hans.
„Þó Þorgrímur sé þekktur fyrir ytri
fegurð og fágun þá er hans innri
fegurð ekki minni,“ segir gamall
vinur. „Hann er traustur og trúverð-
ugur og þú hreinlega veist ekki fyrr
en þú hefur sagt honum þín dýpstu
leyndarmál og vandamál. Þau eru
vel geymd hjá Þorgrími og oft leyst
á staðnum í góðu spjalli.“
Þorgrímur er þó ekki almáttug-
ur, eins og halda mætti af lýsingum
fólks á honum, matargerð er til
dæmis ekki hans sterkasta hlið.
„Ég held að hann sé með lélegt
bragðskyn því hann hefur lítinn
áhuga á mat og borðar eingöngu til
að lifa af,“ segir eiginkonan. „Hann
eldar en maturinn hans er lítið
spennandi og einhvern tímann tók
það hann fjóra klukkutíma að búa
til grjónagraut; hann þurfti þrisvar
sinnum að fara út í búð að kaupa
meiri mjólk og skipta um pott
nokkrum sinnum. Hann er mjög
flinkur í mörgu og nokkuð vel að
sér á mörgum sviðum en tæknimál
eru ekki hans sterkasta hlið. Ég
held hann kunni varla að kveikja á
sjónvarpinu á heimilinu.“
Þegar leitað er svara við því hvort
fólki þyki Þorgrímur eiga erindi í
forsetaembættið eru svörin á eina
lund. „Ég held að framboð hans
verði til góðs fyrir umræðuna,“
segir fyrrum samstarfskona.
„Hann tekur allt annan pól í hæðina
en aðrir. Hann er ekki pólitískur í
hefðbundnum skilningi, nema við
köllum það pólitík að vera heittrú-
aður Valsari, en hann er mjög
ástríðufullur og heitur í þeim mál-
efnum sem hann trúir á, ekki síst
þeim sem snúa að börnum, lestri
og lífsviðhorfum, sem er auðvitað
ákveðin pólitík. Hann leggur sig
allan fram um að lifa og miðla, í
Þorgrímur Þráinsson
Fæddur í Reykjavík 8. janúar 1959
Foreldrar: Þráinn Þorvaldsson og
Soffía Margrét Vídalín Þorgrímsdóttir
Maki: Ragnhildur Eiríksdóttir
Börn: Kristófer 23 ára, Kolfinna 19 ára,
Þorlákur Helgi 15 ára
Nám og starfsferill: Lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1980 og stundaði nám í frönsku
við Sorbonne háskóla í París 1983-
1984. Hann var blaðamaður hjá Fróða
frá 1985 og ritstjóri Íþróttablaðsins
og ritstjórnarfulltrúi barnablaðsins
ABC frá 1989. Í lok árs 1996 var hann
ráðinn framkvæmdastjóri Tóbaks-
varnanefndar.
Knattspyrnuferill: Þorgrímur lék með
meistaraflokki Vals í knattspyrnu frá
1979 til 1990 og gegndi fyrirliðastöð-
unni síðustu fimm tímabilin. Áður lék
hann með Víkingi frá Ólafsvík. Hann
varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari á
knattspyrnuferlinum með Val og tvisvar
sinnum bikarmeistari. Þorgrímur lék alls
um 180 leiki í efstu deild og 17 landsleiki
fyrir Íslands hönd. Þá varð hann bikar-
meistari í frjálsíþróttum með FH árið
1988 en hann keppti í spjótkasti.
Rithöfundarferill: Þorgrímur
hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og
unglinga og var fyrsta bók hans Með
fiðring í tánum sem kom út 1989 og
varð metsölubók á sínum tíma. Hann
hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin
1997 fyrir bókina Margt býr í myrkrinu
og aftur árið 2010 fyrir bókina Ertu
Guð, afi?. Fyrsta skáldsaga hans fyrir
fullorðna, Allt hold er hey, kom út 2004.
Árið 2013 var hann útnefndur Borgar-
listamaður Reykjavíkur og gegndi því
hlutverki í eitt ár.
Fallegur, heilbrigður
og heiðarlegur en
glataður kokkur
Þorgrímur Þráinsson rithöfundur tilkynnti í síðustu viku að hann hygðist bjóða sig fram til
embættis forseta Íslands. Fréttin vakti mikla athygli og hefur fólk keppst við að tjá skoðun
sína á Þorgrími á samfélagsmiðlum síðan. Flestum ber þar saman um að þessi þekkti knatt-
spyrnumaður og elskaði rithöfundur sé gull af manni og við eftirgrennslan reynist sú vera
raunin. Helst á fólki að skilja að það eina sem hann geri ekki vel sé að elda mat.
gegnum sitt líf, starf og ekki síst
skriftir, ákveðnum lífsgildum sem
hann stendur algjörlega heill á bak
við. Hann er fallegur, heilbrigður,
heiðarlegur og hjálpsamur. Er það
ekki markmið okkar allra?“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatimi nn.is
14 nærmynd Helgin 4.-6. desember 2015