Fréttatíminn - 04.12.2015, Blaðsíða 20
Guðrún SæmundSen
Aldur og fyrri störf: Fædd árið 1982 í Stokk-
hólmi en ólst upp í Reykjavík frá 1 árs aldri. Fór í
viðskiptafræði í HR og útskrifaðist 2006 með B.Sc.,
lauk master í alþjóðaviðskiptum frá Grenoble Gra-
duate School of Business 2009. „Ég var í starfsnámi
hjá EFTA 2009 á sama tíma og ég lauk við masters-
ritgerðina, fór svo að vinna í fjármálageiranum og
þaðan yfir í ferðabransann, til loka árs 2014.“
Starf: Starfar sem menningar- og vísindafulltrúi
hjá franska sendiráðinu og sem Pole fitness þjálfari
hjá Eríal Pole.
Búsetuhagir: Einhleyp.
Uppáhaldsrithöfundur: Kristín Marja Baldurs-
dóttir og Sofi Oksanen.
Besta kaffihús í Reykjavík: Kaffitár í Banka-
stræti.
Í jólagjafahandbók Lyfju finnur þú fjölbreytt úrval af fallegum
og nytsamlegum gjafavörum fyrir alla fjölskylduna.
Nældu þér í eintak af jólagjafahandbókinni í næstu verslun Lyfju.
- Lifi› heil
Allir fá þá eitthvað fallegt...
Lágmúla
Laugavegi
Nýbýlavegi
Smáralind
Smáratorgi
Borgarnesi
Grundarfirði
Stykkishólmi
Búðardal
Patreksfirði
Ísafirði
Blönduósi
Hvammstanga
Skagaströnd
Sauðárkróki
Húsavík
Þórshöfn
Egilsstöðum
Seyðisfirði
Neskaupstað
Eskifirði
Reyðarfirði
Höfn
Laugarási
Selfossi
Grindavík
Keflavík
www.lyfja.is
Þ
etta er bók sem byggir að einhverju leyti á
minni eigin reynslu svo lesandinn á örugg-
lega eftir að hugsa hvað úr sögunni sé raun-
verulegt,“ segir Guðrún Sæmundsen, 33 ára
Hafnfirðingur, sem gaf nýverið út sína fyrstu
skáldsögu. Bókin nefnist „Hann kallar á mig“ og er að
sögn Guðrúnar bersögul samtímasaga sem fjallar um fíkn,
ofbeldi, vináttu og svik.
Notar eigin upplifun í skáldskapinn
„Sagan er dramatísk og spennandi en það er líka
léttleiki í henni. Þetta er örugglega oft á tíðum
áhrifamikil lesning enda eru þetta raunsannar
lýsingar. Ég hef heyrt frá fólki sem fannst á köflum
erfitt að lesa söguna, því hún snerti djúpt en
síðan gat það hlegið að húmornum. En það er
einmitt það sem mig langar að gera, hrista
upp í fólki. Ég reyni að lýsa vel tilfinn-
ingum, hugsunum og hegðunarbreyt-
ingum söguhetjunnar og því hvernig
fíknin breytir henni og samskiptum
hennar við alla sem þykir vænt
um hana. Þeir sem þekkja mig
geta alveg pikkað út einhver
karaktereinkenni, því að
einhverju leyti er ég að
nota mína eigin upp-
lifun, en sögupers-
ónur og aðstæður
eru skáldaðar. Ég
myndi segja að
þetta væri mikil
saga með sterk
skilaboð. Hún
fjallar um það
Kvíðinn
ágerðist
eftir því
sem ég
drakk
meira
Guðrún Sæmundsen
hefur alla tíð skrifað
ljóð og smásögur
og nýlega gaf hún
út sína fyrstu
skáldsögu, Hann
kallar á mig.
Þó bókin sé
skáldskapur
þá byggir hún
á reynslu og
raunverulegum
upplifunum
Guðrúnar sjálfrar
sem barðist við
alkóhólisma og
kvíða í nokkur ár.
Hún segist ekkert
skafa af reynslu sinni
í bókinni sem hafi í
upphafi valdið henni kvíða,
því samfélagið eigi það til að
dæma konur hart. Í dag viti hún
þó að efnið sé of gott til í liggja
ofan í skúffu.
20 viðtal Helgin 4.-6. desember 2015