Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.12.2015, Side 21

Fréttatíminn - 04.12.2015, Side 21
fréttablaðið 4x30 hversu mikilvægt það er að halda alltaf áfram, sama hvað bjátar á,“ segir Guðrún sem byrjaði fyrst að vinna í bókinni árið 2011, árið sem hún hætti að smakka áfengi. Snjóboltaáhrif kvíða og drykkju „Ég var fúnkerandi alkóhólisti í nokkur ár. Ég vann mína vinnu, kláraði nám og gerði allt sem ég þurfti að gera, en áfengið fylgdi mér alltaf og ég réð engan veginn við það. Ég hef alltaf verið kvíðin og á tímabili félagsfælin og átti erf- itt með að vera í kringum mikið af fólki. Mér leið best undir áhrifum og það ágerðist með tímanum. Kvíða og drykkju fylgja þessi snjóboltaáhrif, kvíðinn ágerist með meiri drykkju og á endanum hættir áfengið að slaka á kvíð- anum sem gerir það að verkum að maður drekkur alltaf meira. Á end- anum er hægt að segja að ástandið sem maður sækir í sé „blackout“, sem er náttúrulega bara ógeð. Ég var meðvituð um það að flest vandamál í mínu lífi voru tengd áfengi en gerði mér þó engan veginn grein fyrir því að ég gæti verið alkóhólisti. Áður en ég hætti að drekka þá var alkóhólisti fyrir mér einhver sem hafði misst allt, átti hvergi heima og væri það sem í daglegu tali er kallaður róni, en maður getur auðvitað verið með fordóma fyrir því sem maður þekk- ir ekki. Ég hafði nokkrum sinnum reynt að hætta sjálf en gat það ekki og byrjaði alltaf aftur. Og í hvert einasta skipti sem ég byrjaði aftur varð neyslan miklu verri.“ Missti vinnuna og byrjaði að skrifa „Fyrsta árið eftir að ég varð edrú neitaði ég allri utanaðkomandi hjálp við að ná bata því ég hafði enga trú á því að ég þyrfti aðstoð. En það var fyrst þá sem ég upp- lifði geðveikina sem fylgir þessum sjúkdómi. Þetta eina ár er það langerfiðasta sem ég hef upplifað í mínu lífi. Þá koma allar erfiðu til- finningarnar fram en það er ekki hægt að deyfa sig og svo er þetta líka svo róttæk lífsbreyting. Það var svo ekki fyrr en ég var algjör- lega andlega búin sem ég loksins sá að ég þurfti hjálp. Ég átti ekkert eftir. Það var svo mamma sem fór að ýja að því við mig hvort ég þyrfti ekki bara aðstoð og opnaði í raun augu mín fyrir því.“ Það var á þessu erfiðasta ári í lífi Guðrúnar sem hún byrjaði að skrifa söguna. „Ég fór að skrifa niður hugmyndir og ætli ég hafi ekki í upphafi verið að skrifa mig frá ákveðnum hlutum. Sagan var samt engan veginn fullmótuð á þessum tíma, ég var bara að skrifa fyrir sjálfa mig. Það hefur alltaf verið stór hluti af mér að skrifa. Sem krakki sat ég alltaf við skrif- borðið heima að skrifa og semja ljóð. Það er til fullt af ljóðum og smásögum eftir mig frá því ég var lítil en síðustu árin hef ég mest verið að semja ljóð því mér finnst svo gott að setja mína eigin líðan í þetta knappa form,“ segir Guðrún sem ákvað svo að nýta þessi ómót- uðu brot í söguna sem nú hefur litið dagsins ljós. „Þegar ég missti vinnuna í fyrra þá kom eitthvað svo sterkt til mín að nú ætti ég að ljúka við söguna. Tilfinningin lét mig ekki í friði, svo ég bara settist niður og byrjaði að skrifa. Og þeg- ar ég byrjaði þá opnaðist fyrir eitt- hvert flæði og ég hætti ekki fyrr en ég var orðin sátt með söguna. Ég hef fengið svakalega hvatn- ingu frá fjölskyldu og vinum sem virðast hafa ótrúlega trú á mér. Margir segjast hafa verið að bíða eftir sögu frá mér því flestir vita að ég hef alla tíð verið að skrifa.“ Var hrædd um sjálfa sig Guðrún segist vera breytt mann- eskja í dag og að skrifin hafi hiklaust hjálpað sér að vinna sig út úr líferni sem nú sé að baki. „Öll neikvæð reynsla er hluti af þeim verkefnum sem lífið lætur manni í té hverju sinni, til að læra af og þroskast. Ég er ótrúlega þakklát fyrir þetta allt saman. Í dag er him- inn og haf á milli þess hver ég er og hver ég var. Mig langar aldrei í áfengi og þessi ákvörðun að hætta að drekka er sú flottasta sem ég hef tekið í lífinu. Þegar ég hugsa til baka þá er ég svo þakklát fyrir að það hafi ekki komið eitthvað slæmt fyrir mig í þessu ástandi sem ég var oft í. Þessu lífi fylgir svo mikið ábyrgðarleysi, maður hendir bara öllu frá sér og verður alveg sama. Ég var orðin virkilega hrædd um sjálfa mig þegar ég loksins ákvað að hætta þessu.“ Samfélagið gagnrýnir konur harðar en karla Í dag starfar Guðrún í franska sendiráðinu auk þess að kenna Pole fitness. Hún stendur í ströngu þessa dagana við að kynna bókina sína sem hún gefur sjálf út eftir hópfjármögn- un á Karolina fund. Hún segir kvíðann og óöryggið að baki en það sé þó skrýtið að standa skyndilega í sviðsljósinu. „Mér fannst óþægileg tilhugsun að setja sjálfa mig í forgrunn þegar ég byrjaði að kynna bókina. En svo fékk ég að heyra það að það væri algengt að konur hugsuðu þannig, vildu ekki vera að trana sér fram. Mér fannst það áhugavert og ég held að það sé að einhverju leyti rétt. Einhverra hluta vegna eigum við konur það til að vanmeta eigin getu. Kannski því við erum hræddar við gagn- rýni, vegna þess að samfélagið gagnrýnir okkur harðar en karlana. Þetta er mjög pers- ónuleg og bersögul saga, ég skef ekkert af tilfinningum né ofbeldis- eða kynlífslýsingum svo ég var dálítið stressuð yfir því og viðbrögðum annara. En svo er þetta bara of gott efni til að láta þannig pælingar stoppa sig. Fólki má bara finnast það sem því sýnist.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Þetta er mjög persónuleg og bersögul saga, ég skef ekkert af tilfinningum né ofbeldis- eða kyn- lífslýsingum svo ég var dálítið stressuð yfir því og viðbrögðum annara. viðtal 21 Helgin 4.-6. desember 2015
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.