Fréttatíminn - 04.12.2015, Page 30
Brúin á áhorfsmetið
í Svíþjóð og Danmörku,
þar sem 1,3 milljónir
fylgdust með þáttunum.
Í Bretlandi horfðu 1,6
milljónir á þættina sem
er met fyrir efni sem
ekki er framleitt í Bret-
landi.
Brúin er aðeins
önnur þáttaserían sem
sýnd er á BBC með
enskum texta. Sú fyrsta
var Forbrydelsen frá
Danmörku.
Brúin hefur
verið sýnd í 174 löndum í
heiminum, og alls staðar
hafa þættirnir notið
mikilla vinsælda.
Endurgerðir
hafa verið gerðar í
Bandaríkjunum, þar sem
sögusviðið er landamæri
Bandaríkjanna og
Mexíkó. Sem og í Frakk-
landi og Englandi þar
sem sögusviðið eru
göngin á milli þessara
tveggja stórvelda.
Íslenska leik-
konan María Árnadóttir
lék prest í lokaþætti
þriðju seríunnar, og
ljósmyndarinn Baldur
Bragason tók ljósmyndir
fyrir kynningarefni
seríunnar.
Upphafslag
þáttanna heitir Hollow
Talk og er flutt af dönsku
hljómsveitinni Choir Of
Young Believers, og er
tekið af plötu sveitar-
innar frá árinu 2008.
Saga Norén tekur
munntóbak í þáttunum
og er það viljandi gert af
Svíum að gera þessari
framleiðslu sinni hátt
undir höfði með von
um frekari útflutning
vörunnar. Tegund Sögu
er Jagar Pris, sem er
vinsæl meðal kvenna í
Svíþjóð.
Leikarinn Nikolas
Bro sem leikur Freddy
Holst í þriðju seríunni,
lék í kvikmynd Dags Kára
Voksne Mennesker frá
árinu 2005. Þeir kynnt-
ust í kvikmyndanámi í
Danmörku.
Brúin sigrar heiminn
Vinsældir sjónvarpsþáttanna um Brúna eiga sér varla hliðstæðu. Þættirnir sem eru samvinnu-
verkefni DR í Danmörku og SVT í Svíþjóð hafa farið sigurför um heiminn og hafa gert það að
verkum að skandinavískir sjónvarpsþættir eru það allra vinsælasta í sjónvarpsdagskrá um
allan heim, hvort sem litið er til austurs eða vesturs. Í þriðju þáttaröðinni sem var
að klárast bendir allt til þess að sú fjórða fari í framleiðslu og hefur því heims-
byggðin ekki séð Sögu Norén í síðasta sinn. Hér eru nokkrar áhugaverðar
staðreyndir um þessa langvinsælustu sjónvarpsþáttaröð í heimi í dag.
Höfundur
Hans Rosenfeldt
Rúmlega fimmtugur Svíi
sem fyrir tíma Brúarinnar
var meðhöfundur að
nokkrum sænskum
sjónvarpsseríum. Hann
hefur einnig verið vinsæll
dagskrárgerðarmaður í
útvarpi og samið nokkrar
skáldsögur. Hans ætlaði
sér að verða körfuknatt-
leiksmaður, enda er hann
rúmir tveir metrar á hæð.
Saga
Sofia Helin
Helin er 43 ára gömul
sænsk leikkona. Hún er
með gráðu í heimspeki
frá háskólanum í Lundi og
útskrifaðist sem leikkona
árið 2001. Eiginmaður
hennar er prestur og
hún fékk örið í andlitinu í
hjólreiðaslysi þegar hún
var 24 ára gömul. Hún er
tveggja barna móðir og
býr í smábæ fyrir utan Linköping.
Henrik
Thure Lindhard
Fæddur á aðfangadag árið 1974 í
Danmörku.
Útskrifaðist sem leikari árið 1998.
12 ára gamall lék hann í kvik-
myndinni um Pelle sigurvegara
eftir Bille August, sem naut mikilla
vinsælda. Síðan þá hefur hann
leikið í nokkrum kvikmyndum.
Meðal annars í Into The Wild frá
2007 og Angels And Demons með
Tom Hanks frá árinu 2009. Einnig
fór hann með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Borgias.
30 úttekt Helgin 4.-6. desember 2015
Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá
árinu 1972. Fyrirmynd hans er Jarlsberg, frægasti
ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með örlítinn
möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna. Frábær á
morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða bara einn
og sér.
www.odalsostar.is
ÓÐALSOSTUR
TIGNARLEGUR