Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.12.2015, Page 48

Fréttatíminn - 04.12.2015, Page 48
Ljúf og falleg saga um einmana kanínu sem ákveður að byggja brú í von um að nna vini hinum megin við lækinn. Bergrún Íris hlaut tilnefningu til Norrænu barnabókaverðlaunanna fyrir bókina Vinur minn, vindurinn. E mmeline Goulden Pank-hurst (1858-1928) var fremst meðal jafningja þegar kom að kvenréttindakonum á Bret- landi og barðist alla ævi hatrammri baráttu fyrir hugsjónum sínum. Hún var leiðtogi innan kvenrétt- indahreyfingarinnar þar í landi og stofnaði stjórnmálasamband kvenna sem krafðist kosningarétt- ar fyrir konur. Hún fór í mótmæla- göngur og lenti oft í fangelsi með dætrum sínum. Emmeline fæddist í Manchester og ólst þar upp en Robert faðir hennar var róttækur viðskiptajöfur og Sophia móðir hennar var mikill kvenréttindas- inni sem tók Emmeline með á kvenréttindafundi, en foreldrarnir voru báðir fylgjandi kosninga- rétti kvenna. Emmeline var send í skóla í París 15 ára gömul og dvaldi þar næstu fjögur árin. Þá var að bíða giftingar enda töldu foreldrar hennar, þrátt fyrir skoðanir sínar á kosningarétti kvenna, að þær systur ættu ekki að stunda neina vinnu. Þegar hún var tvítug giftist hún lögfræðingnum Richard Mars- den Pankhurst (1834-1898) sem þá var 44 ára gamall. Öll fjölskyldan í baráttunni Richard var ákafur kvenréttindas- inni og róttæklingur. Hann kom því til leiðar að ógiftar konur í eigin húsnæði fengju kosningarétt til borgarstjórnar í Manchester árið 1869, og sat í nefnd sem samdi lög um séreignarrétt kvenna sem voru samþykkt í breska þinginu árið 1870. Þau hjónin eignuðust fimm börn og urðu dætur þeirra þrjár, Christabel (1880-1958), Sylvia (1882-1960) og Adela (1885-1961), allar þekktar kvenréttindakonur. Ári eftir að yngsta dóttirin fæddist fluttist fjölskyldan til Lundúna, en sneri sjö árum síðar aftur til Manchester. Emmeline rann til rifja hve slæmur allur aðbúnaður var meðal kvenna sem unnu í verk- smiðjum þar í borg. Hún taldi að eini möguleikinn fyrir betri aðbún- aði á vinnustöðum kvenna væri að þær fengju kosningarétt og gætu Konurnar sem hófu baráttuna Barátta kvenna fyrir réttindum sem nú eru víðast talin sjálfsögð kostaði blóð, svita og tár, niðurlægingu og útskúfun. Í bókinni Þær ruddu brautina – Kvenréttindakonur fyrri tíma er að finna æviágrip kvenna sem hófu baráttuna víða um heim og ruddu brautina fyrir kvenfrelsisbaráttu seinni ára. Kolbrún S. Ing- ólfsdóttir segir í bókinni sögu kvenna sem stóðu í baráttunni framan af, einkum á 19. öld og fram yfir heimsstyrjöldina síðari. Einnig fjallar hún í stuttu máli um sögu kvenréttindabaráttu í ríkjum Evrópu, Ameríku og víðar. Hér gripið niður í kaflann um breskar kvenréttindakonur. þannig beitt áhrifum sínum. Þau Richard voru bæði félagar í Independent Labour Party (Óháða verkamannaflokknum) sem var stofnaður árið 1893, en tilraunir Richards til að komast á þing báru ekki árangur. Árið 1889 stofnaði Emmeline Women’s Franchise League (Kvenréttindabandalagið) ásamt manni sínum. Eftir að hún varð ekkja stofnaði hún árið 1903 Women’s Social and Political Union eða WSPU (Félags- og stjórnmála- samband kvenna) og kröfðust konurnar í þessu nýja félagi sams konar kosn- ingaréttar og karlar höfðu. Ætlunin var að fá verkakonur til að berjast fyrir kosningarétti en frá árinu 1894 máttu giftar konur kjósa til borgar- og bæjar- stjórna á Englandi. Christabel var ritari hjá WSPU og Sylvia kom til liðs við flokk- inn árið 1906. Kraf- an um kosningarétt þróaðist síðan frá því að vera stéttbundin og bundin við eignir, og tók að snúast um kosningarétt fyrir allar konur 21 árs og eldri. Blöskraði barátta kvenna Upp úr 1905-1906 misstu fjölmiðlar áhuga á að birta fréttir eða greinar af baráttu kvenréttindakvenna og stóð það áhugaleysi fram að fyrri heimsstyrjöldinni. Mörgum blöskraði einnig þessi valda- barátta kvenna, kröfugöngur og hungurverkföll auk óspekta þegar þær brutu glugga í verslunum og í bústað forsætisráðherrans með grjótkasti. Margar þeirra lentu í fangelsi um lengri eða skemmri tíma, meira að segja rosknar konur eins og Emmeline sem lenti þrisvar í fangelsi 1908-1909, þá orðin fimmtug, og var matur píndur ofan í hana. Þann 18. nóvember 1910 komu um 300 kvenréttindakonur á vegum WSPU saman við þinghúsið og vildu ná fundi með forsætis- ráðherra og mótmæla því að frum- varp um kosningarétt kvenna hefði verið tekið af dagskrá þingsins. Þar mættu þær harðri mótstöðu frá lögreglumönnum sem börðu þær, klipu og töluðu með niðurlægjandi hætti til þeirra. Um 200 konur voru í kjölfarið fangelsaðar. Dagurinn var eftir þetta kallaður Black Friday. Árið 1912 voru mæðgurnar dæmdar í þriggja ára fangelsi fyrir óspektir á almannafæri og í þing- sölum. Á árunum 1912-1914 fór Emmeline inn og út úr fangelsum og hóf alltaf hungurverkfall og var þá sleppt en átti að koma aftur þegar henni batnaði. Hún stóð hins vegar ekki við það og var þá hand- tekin aftur. Þetta varð síðar þekkt sem „Cat and Mouse“-aðferðin og var óspart notuð. Lifði það að sjá konur fá kosn- ingarétt Öll barátta fyrir kosningarétti lá niðri meðan á fyrri heimsstyrjöld- inni stóð enda taldi Emmeline að ekkert mætti standa í vegi fyrir sigri Breta. Emmeline fékk kven- réttindakonur lausar úr fangelsi, studdi stríðsyfirlýsingu Breta og vildi að félagskonur í WSPU legðu sitt af mörkum á styrjaldarárunum. Sama ár og heims- styrjöldin hófst safn- aði Emmeline saman 30.000 konum í göngu til að hvetja atvinnurekendur til að ráða konur í störf þeirra karla sem kallaðir höfðu verið í herinn. Þegar stríðinu lauk héldu Emmeline og Christabel áfram baráttunni á heimavígstöðvunum. Sylvia sneri hins vegar við blaðinu og sneri baki við WSPU árið 1914. Hún var andvíg þátttöku Breta í fyrri heimsstyrjöldinni og þar af leiðandi ósátt við stuðning WSPU við þá enda var hún afar vinstri sinnuð og hreifst af skoðunum kommúnista. Emmeline ritaði ævisögu sína, My own Story (Mín eigin saga), sem kom út árið 1914. Árið 1915 var nafninu á fréttablaði WSPU breytt úr The Suffragette í Brit- annia og það varð þjóðernissinn- aðra en áður. Árið 1917 stofnuðu Emmeline og Christabel stjór- nmálaflokkinn Women’s Party sem stundaði kvennabaráttu en einnig var markmið flokksins að ljúka stríðinu við Þjóðverja með samn- ingum og afvopna þá. Flokkskonur vildu sömu laun fyrir sömu vinnu og karlar, jafnrétti hjóna við gift- ingu og í skilnaðarmálum, sama umráðarétt yfir börnunum, sama rétt og tækifæri í opinberu starfi og koma á betri fæðingaraðstoð fyrir konur. Emmeline lifði þann merka áfanga að allar breskar kon- ur, 21 árs og eldri, fengu kosn- ingarétt árið 1928, en lést aðeins nokkrum vikum síðar. Mörgum blöskraði einnig þessi valda- barátta kvenna, kröfugöngur og hungurverkföll auk óspekta þegar þær brutu glugga í verslunum og í bústað forsætisráðherrans með grjótkasti. Emmeline Goulden Pankhurst var fremst meðal jafningja þegar kom að kvenréttinda- konum á Bretlandi. Sama ár og heimsstyrjöldin hófst safnaði Emmeline saman 30.000 konum í göngu til að hvetja atvinnu- rekendur til að ráða konur í störf þeirra karla sem kall- aðir höfðu verið í herinn. 48 bækur Helgin 4.-6. desember 2015
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.