Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.12.2015, Page 52

Fréttatíminn - 04.12.2015, Page 52
Þrautalending á Þorláksmessu N Nú er jólamánuðurinn hafinn og þá er betra að hafa eyrun opin. Mín ágæta eig- inkona segir stundum við mig, þegar hún flettir blöðum á þessum árstíma og sér auglýsingar, að þetta eða hitt gæti verið gaman að eiga. Þegar undirtektir eigin- mannsins eru takmarkaðar eða hann annars hugar, eins og stundum gerist, þá bætir hún gjarna við: „Þú getur bara gefið mér þetta í jólagjöf.“ Það finnst mér tilvalið þegar ég heyri ábendinguna, enda á ég oft í vandræðum með val á slíkri gjöf þegar nær dregur jólum, en gallinn er sá að mér hættir til að gleyma því, þegar á hólminn er komið, hver tillagan var. Ég kann ekki við að spyrja konuna að því á Þorláksmessu hvað hún hafi verið að tala um í upphafi aðventunnar og reyni því að bjarga mér eftir öðrum leiðum. Best hefur mér reynst, eftir að dætur okkar komust á fullorðinsár, að ráðfæra mig við þær. Þar taka betur eftir leyndum og ljósum ábendingum móður sinnar en eiginmannsnefnan, en vandinn er sá að þær hafa báðar stofnað sín heimili og eru því sjaldnast viðstaddar þegar ábendingin er sett fram. Því verð ég að treysta á mat dætranna á því hvað móður þeirra langar helst í – og hvað hún hafi hugsanlega bent mér á að kaupa. Í fyrra var ég þó ekki í neinum vafa, vissi nákvæmlega hvað ég átti að kaupa. Mín góða kona átti nefnilega forláta vasa, dökkgráan með gylltu skrauti. Þennan vasa keypti hún af leirlistakonu á Akur- eyri á sínum tíma og hafði á honum dá- læti, enda stillti hún honum upp á besta stað í stofunni okkar, á litlu borði við hlið- ina á rauða sparistólnum sem við splæst- um einu sinni í fyrir tvenn mánaðarlaun. Ég er að jafnaði dagfarsprúður og heldur umhverfisvænn þannig að konan taldi vasann óhultan á þessum stað, að minnsta kosti fyrir mér. Það var frekar að hún óttaðist að barnabörnin hlypu hann niður í þeim ærslum sem eðlilega fylgja börnum, einkum ef þau koma mörg sam- an. Hún var því á varðbergi með fíniríið og kom vasanum stundum í skjól þegar mest gekk á hjá skaranum. Hún taldi hins vegar enga hættu á ferð þegar ég settist í fína stólinn síðla á aðventunni í fyrra og teygði vel úr mér. Stóllinn er þeirrar náttúru að snúa má honum í hringi og því vissara að fylgjast með ef barnabörnin freistast til að taka of marga og snögga snúninga í hægindinu. Þau voru hins vegar víðs fjarri þegar áköf snúningsþrá sótti á mig í stólnum góða og ég lét undan þeirri löngun með þeim afleiðingum að ég slengdi hægri handleggnum í fína vas- ann. Í svokallaðri slómósjón sá ég vasann fara í boga af borðinu í gólfið – með óhjá- kvæmilegum afleiðingum fyrir listunninn leirvasa. Ég horfði á brotin á gólfinu annars veg- ar og konuna hins vegar. Hún sagði ekki margt, það þurfti ekki. Strax næsta dag gúglaði ég listakonuna á Akureyri, hringdi og sagði mínar farir ekki sléttar. Hún hafði skilning á stöðu minni en vandinn var sá að mörg ár voru liðin frá því að hún skóp vasa konu minnar úr leir, dökkgráan og gylltan. Nú eru allir mínir vasar, sagði hún, með hvítum glerungi. Þarna vandað- ist málið en ég átti samt engan annan leik í stöðunni en að biðja listakonuna að senda mér þegar í stað með flugi sinn fallegasta vasa, þótt hvítur væri. Vasann sótti ég á flugvöllinn á Þorláks- messu og hann fékk eiginkona mín í jólagjöf en ég áttaði mig fljótt á því að hann skipaði ekki sama sess og sá brotni. Hvíti vasinn fór ekki í það öndvegi sem sá grái hafði prýtt. Hann hefur, satt best að segja, aldrei komist úr eldhúsinu þar sem hann fékk náðarsamlegast pláss við hliðina á ólífuolíunni og piparstauknum. Hann er óæðri, það dylst mér ekki. Sá dökkgrái er hins vegar kominn aftur á sinn stað eftir viðgerð. Brotin var hægt að líma saman af listfengi, sem betur fer. Allir eru því sáttir. Barnabörnin tipla á tánum framhjá vasanum og ég gæti að skönkunum þegar ég sest í fína stólinn. Það er því ólíklegt að ég þurfi að hringja neyðarhringingu í listakonuna á Akur- eyri fyrir þessi jól. Þess utan er ég með eyrun sperrtari nú en endranær ef frúin gefur mér ábendingu um hugsanlega jólagjöf. Strax í september brá ég við skjótt er ég varð var við dálæti hennar á rauðum skrautfugli með langan gogg sem hún sá í hönnunarbúð. Ég keypti flygildið, lét pakka því inn í skartpappír og gaf konunni það sama kvöld með ósk um gleðileg jól. Hún tók framtakinu með jafnaðargeði, þótt aðeins væri kominn níundi mánuður ársins. Í nýliðnum nóvember nefndi hún tvær listaverkabækur við mig. Ég lét ekki segja mér það tvisvar, brá mér í bóka- búð og keypti báðar og afhenti nýjum eiganda. Þetta breytir samt engu. Þótt konan sé sátt við þessar gjafir verður því ekki neitað að þær eru löngu komnar í hennar hendur og því ekki eiginlegar jólagjafir. Þær gefur maður hvorki í september né nóvember. Því verð ég að leggja við hlustir það sem eftir lifir desember ef hún bendir á eitthvað fallegt, með beinum eða óbeinum hætti, í þeirri von að fyrir þessi jól reki ég hvorki griparm né ganglim í annan og minni vasa sem hún á – dökkbláan frá löngu dánum afabróður í Ameríku – og þykir enn vænna um en þann gráa. Sá vasi verður ekki bættur með öðrum, hvorki hvítum né gráum. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *999 kr. bókunargjald leggst ofan á hverja bókun og töskugjald er ekki innifalið. ALICANTE flug f rá 16.999 kr. apr í l -maí 2016 * TENERIFE flug f rá 14.999 kr. j anúar -mars 2016 * GRAN CANARIA flug f rá 14.999 kr. febrúar -maí 2016 * BOSTON flug f rá 14.999 kr. j anúar - mars 2016 * WASHINGTON, D.C. flug f rá 14.999 kr. j anúar - mars 2016 * WOW FYRIR ALL A! GERÐU VERÐSAMANBURÐ 52 viðhorf Helgin 4.-6. desember 2015
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.