Fréttatíminn - 04.12.2015, Blaðsíða 52
Þrautalending á Þorláksmessu
N
Nú er jólamánuðurinn hafinn og þá er
betra að hafa eyrun opin. Mín ágæta eig-
inkona segir stundum við mig, þegar hún
flettir blöðum á þessum árstíma og sér
auglýsingar, að þetta eða hitt gæti verið
gaman að eiga. Þegar undirtektir eigin-
mannsins eru takmarkaðar eða hann
annars hugar, eins og stundum gerist,
þá bætir hún gjarna við: „Þú getur bara
gefið mér þetta í jólagjöf.“ Það finnst mér
tilvalið þegar ég heyri ábendinguna, enda
á ég oft í vandræðum með val á slíkri gjöf
þegar nær dregur jólum, en gallinn er sá
að mér hættir til að gleyma því, þegar á
hólminn er komið, hver tillagan var.
Ég kann ekki við að spyrja konuna að
því á Þorláksmessu hvað hún hafi verið
að tala um í upphafi aðventunnar og reyni
því að bjarga mér eftir öðrum leiðum.
Best hefur mér reynst, eftir að dætur
okkar komust á fullorðinsár, að ráðfæra
mig við þær. Þar taka betur eftir leyndum
og ljósum ábendingum móður sinnar en
eiginmannsnefnan, en vandinn er sá að
þær hafa báðar stofnað sín heimili og eru
því sjaldnast viðstaddar þegar ábendingin
er sett fram. Því verð ég að treysta á mat
dætranna á því hvað móður þeirra langar
helst í – og hvað hún hafi hugsanlega
bent mér á að kaupa.
Í fyrra var ég þó ekki í neinum vafa,
vissi nákvæmlega hvað ég átti að kaupa.
Mín góða kona átti nefnilega forláta vasa,
dökkgráan með gylltu skrauti. Þennan
vasa keypti hún af leirlistakonu á Akur-
eyri á sínum tíma og hafði á honum dá-
læti, enda stillti hún honum upp á besta
stað í stofunni okkar, á litlu borði við hlið-
ina á rauða sparistólnum sem við splæst-
um einu sinni í fyrir tvenn mánaðarlaun.
Ég er að jafnaði dagfarsprúður og
heldur umhverfisvænn þannig að konan
taldi vasann óhultan á þessum stað, að
minnsta kosti fyrir mér. Það var frekar að
hún óttaðist að barnabörnin hlypu hann
niður í þeim ærslum sem eðlilega fylgja
börnum, einkum ef þau koma mörg sam-
an. Hún var því á varðbergi með fíniríið
og kom vasanum stundum í skjól þegar
mest gekk á hjá skaranum. Hún taldi hins
vegar enga hættu á ferð þegar ég settist
í fína stólinn síðla á aðventunni í fyrra
og teygði vel úr mér. Stóllinn er þeirrar
náttúru að snúa má honum í hringi og því
vissara að fylgjast með ef barnabörnin
freistast til að taka of marga og snögga
snúninga í hægindinu. Þau voru hins
vegar víðs fjarri þegar áköf snúningsþrá
sótti á mig í stólnum góða og ég lét undan
þeirri löngun með þeim afleiðingum að
ég slengdi hægri handleggnum í fína vas-
ann. Í svokallaðri slómósjón sá ég vasann
fara í boga af borðinu í gólfið – með óhjá-
kvæmilegum afleiðingum fyrir listunninn
leirvasa.
Ég horfði á brotin á gólfinu annars veg-
ar og konuna hins vegar. Hún sagði ekki
margt, það þurfti ekki. Strax næsta dag
gúglaði ég listakonuna á Akureyri, hringdi
og sagði mínar farir ekki sléttar. Hún hafði
skilning á stöðu minni en vandinn var sá
að mörg ár voru liðin frá því að hún skóp
vasa konu minnar úr leir, dökkgráan og
gylltan. Nú eru allir mínir vasar, sagði
hún, með hvítum glerungi. Þarna vandað-
ist málið en ég átti samt engan annan leik í
stöðunni en að biðja listakonuna að senda
mér þegar í stað með flugi sinn fallegasta
vasa, þótt hvítur væri.
Vasann sótti ég á flugvöllinn á Þorláks-
messu og hann fékk eiginkona mín í
jólagjöf en ég áttaði mig fljótt á því að
hann skipaði ekki sama sess og sá brotni.
Hvíti vasinn fór ekki í það öndvegi sem
sá grái hafði prýtt. Hann hefur, satt best
að segja, aldrei komist úr eldhúsinu þar
sem hann fékk náðarsamlegast pláss við
hliðina á ólífuolíunni og piparstauknum.
Hann er óæðri, það dylst mér ekki.
Sá dökkgrái er hins vegar kominn aftur
á sinn stað eftir viðgerð. Brotin var hægt
að líma saman af listfengi, sem betur fer.
Allir eru því sáttir. Barnabörnin tipla á
tánum framhjá vasanum og ég gæti að
skönkunum þegar ég sest í fína stólinn.
Það er því ólíklegt að ég þurfi að hringja
neyðarhringingu í listakonuna á Akur-
eyri fyrir þessi jól. Þess utan er ég með
eyrun sperrtari nú en endranær ef frúin
gefur mér ábendingu um hugsanlega
jólagjöf. Strax í september brá ég við
skjótt er ég varð var við dálæti hennar
á rauðum skrautfugli með langan gogg
sem hún sá í hönnunarbúð. Ég keypti
flygildið, lét pakka því inn í skartpappír
og gaf konunni það sama kvöld með ósk
um gleðileg jól. Hún tók framtakinu með
jafnaðargeði, þótt aðeins væri kominn
níundi mánuður ársins.
Í nýliðnum nóvember nefndi hún tvær
listaverkabækur við mig. Ég lét ekki
segja mér það tvisvar, brá mér í bóka-
búð og keypti báðar og afhenti nýjum
eiganda.
Þetta breytir samt engu. Þótt konan
sé sátt við þessar gjafir verður því ekki
neitað að þær eru löngu komnar í hennar
hendur og því ekki eiginlegar jólagjafir.
Þær gefur maður hvorki í september
né nóvember. Því verð ég að leggja við
hlustir það sem eftir lifir desember
ef hún bendir á eitthvað fallegt, með
beinum eða óbeinum hætti, í þeirri von að
fyrir þessi jól reki ég hvorki griparm né
ganglim í annan og minni vasa sem hún
á – dökkbláan frá löngu dánum afabróður
í Ameríku – og þykir enn vænna um en
þann gráa.
Sá vasi verður ekki bættur með öðrum,
hvorki hvítum né gráum.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
*999 kr. bókunargjald leggst ofan á hverja bókun og töskugjald er ekki innifalið.
ALICANTE flug f rá
16.999 kr.
apr í l -maí 2016
*
TENERIFE flug f rá
14.999 kr.
j anúar -mars 2016
*
GRAN CANARIA flug f rá
14.999 kr.
febrúar -maí 2016
*
BOSTON flug f rá
14.999 kr.
j anúar - mars 2016
*
WASHINGTON, D.C. flug f rá
14.999 kr.
j anúar - mars 2016
*
WOW
FYRIR
ALL A!
GERÐU VERÐSAMANBURÐ
52 viðhorf Helgin 4.-6. desember 2015