Fréttatíminn - 04.12.2015, Blaðsíða 60
Notaleg stemning í Lyfsalanum
V ið erum lítið fjölskyldufyrir-tæki og hér ríkir sannkölluð fjölskyldustemning,“ segir
Svavar Jóhannesson, eigandi Lyf-
salans í Glæsibæ. „Á meðan foreldr-
arnir versla geta börnin leikið sér á
leiksvæði þar sem er meðal annars
kastali.“
Persónuleg og góð þjónusta
Í Lyfsalanum er að finna gott úrval
af gæðavítamínum og fæðubótar-
efnum, auk almennra apóteksvara.
„Starfsfólk Lyfsalans býr yfir góðri
þekkingu á ýmsu tengdu lyfjum,
sjúkdómum og réttindum sjúk-
linga, en einnig hefur alveg komið
fyrir að það séu rædd prjónamál
yfir afgreiðsluborðið. Við bjóðum
upp á lausnir, ekki vandamál, og
hér getur fólk fengið fyrsta flokks
ráðgjöf og þjónustu,“ segir Svavar.
Í Lyfsalanum er einnig hægt að fá
mældan blóðþrýsting og blóðsykur.
„Við tökum á móti hverjum og ein-
um með bros á vör og markmiðið er
að veita bestu mögulegu þjónustu
hverju sinni. Við leggjum áherslu
á afslappað umhverfi og persónu-
lega þjónustu. Á þessum tveimur
árum sem við höfum starfað höfum
við eignast fullt af góðum vinum
og erum þeim öllum afar þakklát.“
Ýmislegt í jólapakkann
Í Lyfsalanum er einnig að finna ým-
islegt sniðugt í jólapakkann. „Við
bjóðum upp á úrval af gjafapakkn-
ingum fyrir bæði kynin og allan
aldur. Svo er aldrei að vita nema
við bjóðum upp á heitt súkkulaði og
heimabakaðar smákökur ef þann-
ig liggur á okkur,“ segir Svavar,
sem hlakkar til að taka á móti við-
skiptavinum Lyfsalans í desember.
„Í Glæsibæ er mjög gott aðgengi
fyrir fatlaða, næg bílastæði og ró-
legt og afslappað andrúmsloft. Við
hönnun á Lyfsalanum var einmitt
tekið mið af því að hafa rúma og
góða aðstöðu. Svo erum við stað-
sett alveg við vestur innganginn og
höfum meira að segja útsýni yfir
Esjuna.“
Unnið í samstarfi við
Lyfsalann
Lyfsalinn í Glæsibæ er sjálf-
stætt starfandi apótek. „Við
leggjum áherslu á persónu-
lega þjónustu í afslöppuðu
umhverfi,“ segir Svavar
Jóhannesson, eigandi Lyf-
salans. Mynd/Hari
Lyfsalinn er sjálfstætt starfandi apótek sem fagnar tveggja ára
starfsafmæli í janúar. Í Lyfsalanum er að finna ríkulegt úrval
af vítamínum fæðubótarefnum og almennum apóteksvörum á
hagkvæmu verði. Einnig er boðið upp á fyrsta flokks ráðgjöf og
þjónustu í notalegu umhverfi í Glæsibæ.
Frábær jólastemning í Glæsibæ
J ólaundirbúningurinn er kom-inn á fullt hjá flestum enda eru nú aðeins tuttugu dagar
til jóla. Flestir hafa í mörg horn að
líta, auk jólagjafanna þarf að huga
að skreytingum, jólakortum, mat
og fleiru.
Þegar mikið liggur við er þægi-
legt að geta nálgast marga hluti á
einum stað og í Glæsibæ við Álf-
heima er að finna margar skemmti-
legar verslanir, veitingastaði og
þjónustuaðila. Ekki skemmir fyrir
að þeir eru allir undir sama þakinu
svo ekki þarf að hafa áhyggjur af
snjónum.
Í Glæsibæ er hægt að finna versl-
anir sem selja íþróttavörur, úti-
vistarfatnað og -græjur, gleraugu,
úr, skartgripi, snyrtivörur, blóm,
barnaföt, barnavörur og ýmsar
heilsuvörur. Að auki eru þar bakarí
og veitingastaðir, matvöruverslun,
apótek og sitthvað fleira.
Engin venjuleg blómabúð
S: 568-9120
Verslun fyrir
flotta foreldra
www.tvolif.is
www.facebook.com/barnshafandi
Tvö Líf / Glæsibæ / Sími 5178500
60 jól í Glæsibæ Helgin 4.-6. desember 2015