Fréttatíminn - 04.12.2015, Side 92
92 bækur Helgin 4.-6. desember 2015
RitdómuR LitLaR byLtingaR ...
Arnaldur aftur á toppinn
Það var harður slagur um fyrsta sætið á Met-
sölulista Eymundsson þessa vikuna en það
endaði með því að Arnaldur Indriðason náði
aftur fyrsta sætinu með bókina Þýska húsið.
Yrsa Sigurðardóttir og Sogið er í öðru sæti.
1 Þýska húsið ArnAldur IndrIðAson
2 Sogið YrsA sIgurðArdóttIr
3 Stóri skjálfti Auður JónsdóttIr
4 Stríðsárin 1938 - 1945 Páll BAldvIn BAldvInsson
5 Þín eigin goðsaga ÆvAr Þór BenedIktsson
6 Mamma klikk! gunnAr HelgAson
7 Endurkoman ólAfur JóHAnn ólAfsson
8 Amma óþekka og tröllin í fjöllunum J.k. kolsöe
9 Dagbók Kidda klaufa 7 Jeff kInneY
10 Eitthvað á stærð við alheiminn Jón kAlmAn stefánsson
metsöLuListi eymundsson
FjöRuveRðLaunin HaLLdóRa K. tHoRoddsen tiLneFnd
É g sendi að sjálfsögðu bókina inn til þess að hún yrði tilnefnd,“ seg-ir Halldóra K. Thoroddsen hlæj-andi þegar hún er spurð hvort
hún hafi átt von á því að nóvella hennar
Tvöfalt gler yrði tilnefnd til Fjöruverð-
launanna.
Sagan birtist í þriðja árgangi tímaritrað-
arinnar 1005 sem út kom í maí og er með
öllu uppseldur. Halldóra segir þó öll bóka-
söfn landsins eiga eintak og því sé hæg-
ur vandi fyrir þá sem vilja lesa söguna að
bregða sér þangað. „Á friðarhátíðinni fram-
undan getur fólk farið á bókasafn í friði og
ró og lesið bókina mína.“
Aðalpersóna sögunnar er rúmlega sjötug
kona sem nýlega hefur misst mann sinn og
er nú orðin ástfangin á ný. Í umsögn dóm-
nefndarinnar sem tilnefndi bókina er til-
vitnun í höfundinn þar sem kemur fram að
bókin fjalli um ástir gamalmenna, en Hall-
dóra er ekki alveg tilbúin að skrifa undir þá
lýsingu. „Jú, jú, þetta er ástarsaga,“ segir
hún. „En hún fjallar líka um allt mögulegt
annað. Ég hefði alveg eins getað skrifað
um lítið barn. Í okkar þjóðfélagi höfum við
tvo hópa í einangrun; börn og gamalmenni.
Hún er vissulega þetta gömul stelpan sem
ég er að skrifa um en það er nú bara eitt
stykki líf sem sagan fjallar um.“
Halldóra er þekktust sem ljóðskáld en
hefur einnig gefið út örsögur og smásögur.
Tvöfalt gler er lengsta útgefna verk hennar
til þessa, kveikti það löngun til að skrifa
stærri verk? „Hugmyndin kom til mín eins
og aðrar ljóðahugmyndir en þessi kona
komst ekki fyrir í ljóði og fékk því litla bók.
Ég hef ekkert velt því fyrir mér að fara að
skrifa stærri bækur, ég fæ bara hugmyndir
og svo kemur í ljós hvað þær þurfa mikið
pláss.“
Spurð hvort henni finnist að enn sé þörf
á sérstökum bókmenntaverðlaunum fyrir
konur kemur grallarinn upp í Halldóru og
hún segir að það sé alltaf þörf fyrir verð-
laun sem hún sé tilnefnd til. „Og, jú, ég
held það sé þörf á því að vekja athygli á
bókum kvenna því við erum nú ekkert
alveg komnar út úr karlasamfélaginu og
bókmenntaheimurinn er auðvitað karl-
lægur, við vitum það. Við konurnar erum
bara gestir þarna og erum eitthvað að ybba
okkur. Við erum ekkert komnar þarna upp
á dekk. Ég ætla hins vegar ekki fólki sem
les bækur þá heimsku að setja það fyrir sig
þótt höfundurinn sé með píku. Ég þekki
engan sem hefur þá hugsun að leiðarljósi
þegar hann velur sér lesefni.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Gestir sem ybba sig
Á aðventuupplestri á Glúfrasteini á sunnudaginn,
6. desember, munu fjórir rithöfundar lesa upp
úr nýútkomnum bókum sínum. Þórunn Jarla
Valdimarsdóttir les úr bók sinni Stúlka með höfuð
sem er sjálfstætt framhald af Stúlku með fingur og
Stúlku með maga, þar sem Þórunn notaði heimildir
og skáldlega túlkun til að segja sögu móður sinnar
og formæðra. Þórdís Gísladóttir les úr ljóðabók sinni
Tilfinningarök þar sem ljósi er varpað á líf fólks sem
lesandinn telur sig ef til vill kannast við. Hallgrímur
Helgason les upp úr Sjóveikur í München. Bókin lýsir
örlagavetri í lífi Hallgríms, hans fyrsta utan föður-
lands og móðurhúsa. Soffía Auður Birgisdóttir les
upp úr Ég skapa þess vegna er ég. Um skrif Þórbergs
Þórðarsonar. Bókin byggir á margra ára rannsóknum og er yfirgripsmikil
heildarútekt á höfundarverki Þórbergs.
Hallgrímur í kvennafans
Snjóblinda eftir Ragnar Jónasson er ein
af fimm bestu frumraunum ársins í Bret-
landi að mati vefjarins Crime Fiction Lo-
ver. Þá útnefndi dagblaðið Independent
hana sem eina af átta bestu glæpasögum
ársins sem lesendur blaðsins ættu að lesa
nú um jólin.
Snjóblinda var gefin út á ensku fyrr á
þessu ári og náði efsta sætinu á met-
sölulista Amazon Kindle í Bretlandi og
Ástralíu. Viðtökurnar hafa verið framar
vonum og ákvað breski útgefandinn að
flýta útgáfu Náttblindu Ragnars og kom hún út í í síðustu viku
á ensku. Fátítt er að tvær bækur sama höfundar komi út á
sama árinu í Bretlandi.
Snjóblinda meðal
bestu frumrauna
Litlar byltingar - draumar um betri daga er fyrsta
skáldsaga Kristínar Helgu Gunnarsdóttur fyrir
fullorðna en hún er löngu landsþekktur og dáður
barnabókahöfundur. Kristín ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur í þessari sögu heldur sam-
anstendur bókin af brotakenndum svipmyndum úr
ævi fjölda kvenna á mismunandi tímum og er nokk-
urs konar óður til hinnar íslensku konu og þolgæðis
hennar. Rammi sögunnar er spjall aðalpersónunnar
Glóu við mun yngri frænku sína, Höllu, þegar sú
fyrrnefnda sér fram á að dögum hennar fari fækk-
andi. Hennar kenning er sú að ævisaga einnar konu
verði að innifela sögur þeirra kvenna sem gengu á
undan og þannig verður form bókarinnar til.
Hugmyndin er vissulega góð en gallinn er sá að
þær konur sem við fáum að kynnast í Litlum bylt-
ingum eru hver annarra klisjukenndari og sögur
þeirra sömuleiðis. Hér er unga uppreisnarstúlkan
af hippakynslóðinni sem gefur dauðann og djöful-
inn í hefðbundið strögl á Íslandi og flyst til Kaup-
mannahafnar þar sem hún drekkur rauðvín, reykir
gras, elskar konur og klæðist litríkum fötum, sjó-
mannsekkjan sem neitar að láta tíðarandann á fyrri
hluta tuttugustu aldar kúga sig og berst fyrir að
koma börnum sínum sjálf til manns, bóndakonan
á litla býlinu þar sem fleiri börn deyja en þau sem
komast á legg, unglingsstúlkan sem fellur fyrir
fagurgala eldri manns og verður ófrísk, unga ráð-
villta nútímakonan sem leitar á náðir jógaiðkunar
og núvitundar til að þurfa ekki að horfast í augu við
heiminn og svo framvegis og svo framvegis. Þær
tvær konur sem áhugaverðustu sögurnar eiga, hin
skyggna Finna og förukonan Torfa sem fór ein til
Ameríku og kom til baka brotin kona, fá hins vegar
lítið pláss fyrir sínar sögur og falla algjörlega í
skugga hinna.
Til að bæta gráu ofan á svart er texti bókarinnar
óskaplega uppskrúfaður og tilgerðarlegur, einnig
þar eru klisjurnar allsráðandi, og á köflum líður
lesandanum eins og hann sé að lesa áróðursrit fyrir
kvenfrelsi frá 1968.
Það er mikið talað um skort á kvenlegri sýn á
Íslandssöguna og krafan um að raddir kvenna fái
að heyrast er hávær. Allt gott um það að segja en
það þarf þá að segja þá sögu frá nýjum sjónarhóli,
varpa ljósi á aðra þætti í sögum kvenna en þá sem
margtuggðir hafa verið áður og helst af öllu að gera
það á nýjan og ferskan hátt. Það tekst ekki hér, því
miður. -fb
Óður til hinnar íslensku konu
Litlar byltingar -
draumar um betri
daga
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Mál og menning 2015
Hallgrímur Helgason
verður umvafinn
konum á aðventuupp-
lestri á Gljúfrasteini.
Kóngurinn
hefur náð
1. sætinu
á ný.
Snjóblinda Ragnars
Jónassonar gerir það
gott í Bretlandi.
Þessar bækur
eru tilnefndar til
Fjöruverðlauna
Fagurbókmenntir
Humátt eftir Guðrúnu Hannesdóttur
Tvöfalt gler eftir Halldóru K. Thoroddsen
Mörk eftir Þóru Karítas Árnadóttur
Fræðibækur og rit almenns eðlis
Rof – Frásagnir kvenna af fóstureyðingum
eftir Silju Báru Ómarsdóttur og Steinunni
Rögnvaldsdóttur
Ástin, drekinn og dauðinn eftir Vilborgu Davíðs-
dóttur
Heiður og huggun – Erfiljóð, harmljóð og
huggunarkvæði á 17. öld eftir Þórunni
Sigurðardóttur
Barna- og unglingabókmenntir
Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur
Koparborgin eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur
Randalín, Mundi og afturgöngurnar eftir
Þórdísi Gísladóttur og Þórarin M. Baldursson
Ein þriggja bóka sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna 2016 er nóvella Halldóru K.
Thoroddsen, Tvöfalt gler. Sagan fjallar um rúmlega sjötuga konu sem verður ástfangin, en
Halldóra segist nú bara að vera að skrifa um eitt stykki líf, hún hefði alveg eins getað skrifað
um lítið barn.
Ég ætla
hins vegar
ekki fólki
sem les
bækur þá
heimsku
að setja
það fyrir
sig þótt
höf-
undurinn
sé með
píku.“
Konurnar níu sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna. Halldóra K. Thoroddsen er lengst til vinstri.
9.990
ÁTTABLAÐA-
RÓSIN
Áður 12.980
Áttablaðarósin er
byggt á munstri
úr sjónabók Jóns
Einarssonar bónda
og hagleiksmanns í
Skaftafelli á 18. öld.
Jóla
verð
3
35x50cm
JÓLASOKKUR
Grýla eða Leppalúði
Fallegur jólasokku
sem hengja má í
gluggann, á arini n
eða bara á vegginn.
Jól
2015
LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
HÖFUM OPNAÐ
Í KRINGLUNNI