Fréttatíminn - 04.12.2015, Blaðsíða 104
Í takt við tÍmann Sara PéturSdóttir
Heimakær og hollustufrík
Sara Pétursdóttir er 18 ára söngkona sem vakti athygli þegar hún sigraði Söngkeppni framhalds-
skólanna í fyrra. Síðan hefur hún gefið út tvö lög undir nafninu Glowie og vakið mikla athygli.
Lögin vinnur Sara í samstarfi við strákana í StopWaitGo og það þriðja er á leiðinni.
„Það er ótrúlega gaman að fá að vinna við það sem
mann dreymir um, algjör draumur. Sérstaklega þar
sem ég er svo ung,“ segir Sara um tónlistarferilinn. „Nú
er ég bara að einbeita mér að tónlistinni. Það var svo
mikið að gera í sumar og gekk svo vel með fyrsta lagið
að ég ákvað að hvíla mig á skólanum. Nú er ég bara að
safna fleiri lögum og fá meiri reynslu.“
Staðalbúnaður
Ég hef ekki neinn ákveðinn fatastíl, ég finn bara föt sem
mér finnst kúl og kaupi þau. Ég þori líka að vera í öðru-
vísi fötum, reyni að vera ekki eins og allir aðrir. Mér
finnst ég ekki þurfa að falla í hópinn.
Hugbúnaður
Þegar ég á lausan tíma teikna ég mikið. Ég elda líka
rosalega mikið, mér finnst bæði gaman að elda og baka
eitthvað gott. Uppskriftirnar finn ég til dæmis á Króm.
is. Ég fer ekkert á djammið en ég fíla að fara á kaffihús.
Mér finnst til dæmis gott að fara á Te og kaffi. Ég fer út
að skokka annað slagið eða geri sjálf æfingar heima.
Ég er alveg húkkt á Friends. Það er eina sjónvarpsefnið
sem ég horfi á, ég horfi ekki á neinar stöðvar, og er
frábært ef ég hef ekkert að gera eða er veik.
Vélbúnaður
Ég er með iPhone 6 sem er nokkuð nýr. Ég er á öllum
samfélagsmiðlunum og er nýlega orðin svolítið aktív
á Snapchat. Ég er að vísu enn að læra á það en ég fæ
rosalega mikil viðbrögð frá fólki þar. Rosalega góð
viðbrögð.
Aukabúnaður
Þegar ég borða úti fer ég oft á Fresco og
Lókal, ég fíla svona salatstaði mikið. Ég
er svolítið hollustufrík. Ég og kær-
astinn minn erum með bíl svo hann
er svo heppinn að fá að skutla mér
hingað og þangað, greyið. Við búum
saman heima hjá fjölskyldu hans og
ætlum að eyða jólunum í Barcelona
þar sem systir hans býr. Það verður
frábært. Uppáhaldsstaðurinn
minn er heima hjá mér, ég er mjög
heimakær.
Ljósmynd/Hari
3.250.000 kr.
Kia cee’d SW 1.6
Árgerð 2013, ekinn 34 þús. km,
dísil, 128 hö, beinskiptur.
3.890.000 kr.
Kia Carens EX 1.7
Árgerð 2014, ekinn 67 þús. km,
dísil, 136 hö, sjálfskiptur.
5.990.000 kr.3.950.000 kr.
Kia Sorento ClassicKia cee’d EX 1.6
Árgerð 2014, ekinn 43 þús. km,
dísil, 198 hö, sjálfskiptur.
Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km,
dísil, 128 hö, sjálfskiptur.4.490.000 kr.
Kia Sportage EX
Árgerð 2014, ekinn 105 þús. km,
dísil, 136 hö, sjálfskiptur.
42.777 kr. á mánuði*
51.777 kr. á mánuði*
50.777 kr. á mánuði*
78.777 kr. á mánuði*
Afbo
rgun
aðe
ins:
58.7
77 k
r./mán
.*
*Mánaðargreiðsla m.v. 70% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25%
og árleg hlutfallstala kostnaðar er 11%.
**Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar.
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartími:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
Allt að 7 ára
ábyrgð fylgir
notuðum Kia**Ábyrgð fylgir!
104 dægurmál Helgin 4.-6. desember 2015