Tímarit Máls og menningar - 01.09.2008, Side 31
S a m b r a s
TMM 2008 · 3 31
steikum og skyrpa út úr sér hálftuggnu brjóski. Þarna getur hann ekki
borðað og fer því á krána hjá Davy Byrne, pantar glas af búrgundarvíni
og augun leita síðan að einhverju matarkyns og hugsunin flæðir eftir
hlutaðeigandi farvegi – vélindanu eiginlega, enda er það talið vera hið
táknræna líffæri þessa kafla skáldsögunnar.5 Þannig fáum við þá and-
artaksmynd frá Dyflinni sem nú skal rýnt í stuttlega og á sér að miklu
leyti stað í huganum, eins og ýmsir aðrir veigamiklir hlutar verksins.
Svona birtist þetta andartak í texta Joyce og í þýðingu SAM:
Sardines on the shelves. Almost taste them by looking. Sandwich? Ham and his
descendants musterred and bred there. Potted meats. What is home without
Plumtree‘s potted meat? Incomplete. What a stupid ad! Under the obituary
notices they stuck it. All up a plumtree. Dignam‘s potted meat. Cannibals would
with lemon and rice. White missionary too salty. Like pickled pork. Expect
the chief consumes the parts of honour. Ought to be tough from exercise. His
wives in a row to watch the effect. There was a right royal old nigger. Who ate
or something the somethings of the reverend Mr MacTrigger. With it an abode of
bliss. Lord knows what concoction. Cauls mouldy tripes windpipes faked and
minced up. Puzzle find the meat. Kosher. No meat and milk together. Hygiene
that was what they call now. Yom Kippur fast spring cleaning of inside. Peace
and war depend on some fellow‘s digestion. Religions. Christmas turkeys and
geese. Slaughter of innocents. Eat drink and be merry. Then casual wards full
after. Heads bandaged. Cheese digests all but itself. Mity cheese.
– Have you a cheese sandwich?6
Sardínur á hillunum. Get næstum fundið bragðið með því að horfa á þær.
Skinka og niðjar hennar í fríðri fylkingu. Dósakjöt. Hvað er dugleg húsfreyja án
dósakjöts frá Plumtree? Stygg og stúrin afþví. Þvílík dómadags auglýsing! Og
hafa sett hana undir dánarfregnirnar. Útí hött. Dósakjöt Dignams. Gott handa
mannætum með sítrónu og hrísgrjónum. Hvítur kristniboði of saltur. Einsog
súrsað svínakjöt. Býst við að höfðinginn éti tignustu líkamspartana. Hljóta að
vera seigir vegna brúkunar. Konurnar hans í röð að fylgjast með áhrifunum.
Það var eittsinn þeldökkur þengill, sem þreifaði á holdi MacTriggers, og tuggði
svo trúboðans vöðva. Paradís á jörð. Guð má vita hverskonar sambras það var.
Stórnetjur, rotnandi þarmar, barkar, alltsaman fínbakaðir prettir. Gestaþrautin
er að finna kjötið. Kosher. Aldrei blanda saman kjöti og mjólk. Það er þetta
sem nú gengur undir heitinu hollustuhættir. Fastan á Jom Kippúr, innvortis
vorhreingerning. Stríð og friður velta á meltingu einhvers einstaklings. Trúar-
brögðin. Jólakalkúnar og gæsir. Slátrun sakleysingja. Et, drekk og ver glaður.
Slysavarðstofurnar fullar á eftir. Höfuð vafin sárabindum. Ostur meltir allt
nema sjálfan sig. Sníklaostur.
– Eruð þið með ostasamloku? (172)