Tímarit Máls og menningar - 01.09.2008, Qupperneq 135
TMM 2008 · 3 135
Böðvar Guðmundsson
Að synda saman í land
Einar Már Guðmundsson: Rimlar hugans, ástarsaga. Mál og menning 2007.
„Enn ein bók um alkóhólista og dópista, enn ein bók sem bætir engu við það
sem áður er sagt nema ef vera skyldi samviskubiti yfir að vera ekki farinn í
meðferð sjálfur fyrir löngu. Það er ekki hægt að skrifa fleiri svona bækur, jafn-
vel Einar Már getur það ekki.“
Eitthvað þessu líkt tautaði ég við sjálfan mig þegar mér barst bókin Rimlar
hugans í hendur. Því tauti linnti þó fljótt, slíkur galdrakarl er Einar að geta
einmitt skrifað enn eina bók um þetta margþvælda efni, bók sem heldur manni
föstum frá upphafi til enda.
Rimlar hugans er óvenjuleg bók, það er erfitt að segja hvaða bókmenntategund
hún tilheyrir, hvort hún er skáldverk eða hundrað prósent átentísk, hvort hún er
ævisaga, bréfaróman eða heimildaskáldverk. Sjálf segist bókin í titli sínum vera
ástarsaga. Í sjálfu sér skiptir það engu máli í hvaða dilk hún er dregin, en það
skiptir öllu máli að Einar Már hefur enn eina ferðina sýnt og sannað hvílíkur
meistari hann er jafnt á mál og stíl sem glöggskyggni á mannleg örlög.
Að stofni til er bókin bréfaskipti þeirra Evu og Einars Þórs. Þau koma bæði
frá góðum heimilum, þar sem að vísu skortir sitthvað á um einlægni og skoð-
anaskipti kynslóðanna, en engu að síður ríkir heilbrigður metnaður foreldra til
að börn þeirra nái að minnsta kosti jafnlangt ef ekki lengra í sínu lífi en þau
sjálf. Faðir Evu er sjómaður, móðirin kennari og þau hafa búið í Noregi um
skeið en eru flutt aftur til Íslands. Fjölskyldumál Einars Þórs eru flóknari,
hann er ættleiddur en fær ekki að vita það fyrr en hann er orðinn stálpaður.
Hann fær ekkert frekar að vita um uppruna sinn og faðir hans, byggingameist-
arinn sívinnandi, má ekki einu sinni vita að hann veit að hann er ættleiddur.
Hinar ytri aðstæður Evu og Einars Þórs eru hvorki verri né betri en þúsunda
annarra barna og unglinga sem komast klakklaust í gegnum lífið, samt tekur
ógæfan við þeim opnum örmum og áður en þau ná fullorðinsaldri snýst allt
lífið um fíkniefni, áfengi, hass og allt sem veldur vímu.
Eftir margskonar gönuhlaup og eitt barn með smákrimma í eiturbransanum
hefur Eva hafnað í hjónabandi með tölvufræðingi, hún nær um skeið fótfestu í
lífinu, valtri að vísu en nægir henni samt til að ljúka háskólanámi og eignast
annað barn, þá missir hún fótanna aftur og kynnist Einari Þór, hugþekkum
fituhlunk sem selur dóp. Hún skilur við manninn og flytur til dópsalans með
bæði börnin. Sambúðin stendur þó ekki lengi því lögreglan stendur hann að
verki á horni Þórsgötu og Baldursgötu sunnudagskvöldið 27. janúar árið 2002.
Hann er settur í stranga gæslu og einangrun á Litla-Hrauni og ákveður að vera
samvinnuþýður við lögregluna ef það gæti mildað dóm hans.
B ó k m e n n t i r