Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 14.05.2016, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 14.05.2016, Blaðsíða 6
í sjötta sæti í forsetakosningunum það árið. Ísraelar eða Arabalönd? Þátttaka í Eurovision miðast ekki við landfræðilega legu þjóða, held- ur við að þær séu meðlimir í Sam- bandi evrópskra sjónvarpsstöðva. Útsendingarsvæði þeirra er talið ná frá 40 gráðum austur og 30 gráð- um norður, svo það nær einnig yfir stóran hluta Norður-Afríku og Mið- austurlanda. Ísrael hefur kosið að taka þátt í keppninni allt frá 1973, en Arabaríkin hafa neitað að senda út framlag þeirra og hafa því ekki tek- ið þátt. Deilur Araba og Ísraela hafa því ekki náð inn í keppnina nema með óbeinum hætti, en þess má geta að árið 1973 var einmitt síðasta stórstríð þeirra á milli enn sem kom- ið er, sem lauk með sigri Ísraela yfir Sýrlendingum og Egyptum. Eftir fall kommúnismans breytt- ist landakort Evrópu meira en það hafði gert frá seinni heimsstyrj- öld, og fjöldamörg ný ríki komu til skjalanna. Flóknast var ástandið í Júgóslavíu, sem leystist upp árið 1991. Árið eftir tók Júgóslavía þátt án Slóveníu, Króatíu og Makedóníu sem höfðu lýst yfir sjálfstæði, en Bosnía taldist hins vegar enn hluti af ríkinu. Árið 1993 tók Bosnía þátt undir eigin nafni í fyrsta sinn, en þá hafði stríð brotist út í landinu á milli þjóðarbrota Króata, Múslíma og Bosníu-Serba. Á Eurovision í gegnum kúlnaregn Framlag Bosníu það árið hét „The Whole World‘s Pain,“ og fjallaði um hermann sem sendir ástkonu bréf um að hann sé enn að berjast. Svo vildi til að söngvarinn Fazla var fyrr- um fyrirsæta sem nú var orðinn her- maður í umsátrinu um Sarajevo. Raf- magn hafði verið tekið af borginni og því varð að taka lagið upp með aðstoð rafals sem þeir höfðu keypt á svarta markaðnum af hermönnum Sameinuðu þjóðanna. Loks þurftu menn að smygla sér úr borginni í gegnum skothríð Serba til að komast til forkeppni sem haldin var í Zagreb í Króatíu. Bosníu- menn komust áfram í keppninni, en Serbíu var neitað um þátttöku sök- um viðskiptaþvingana Sameinuðu þjóðanna (þeirra sömu og Bobby Fischer varð eftirlýstur fyrir brjóta á sama tíma) og tók því ekki aftur þátt fyrr en 2004. Fazla komst lok- um heilu og höldnu til Írlands, þar sem lokakeppnin var haldin sem oft- ar, en lenti ekki nema í 16. sæti fyrir viðvikið. Á hinn bóginn beið ástkona hans, sem áður hafði flúið frá Sara- jevo, eftir honum í Dublin og giftust þau þar. Bosníumenn, sem stigu á svið beint á eftir Íslendingum í ár, sungu aftur um stríðið í þetta sinn en komust ekki áfram frekar en við. Jóhanna Guðrún og Tony Blair En það eru ekki bara stríð sem hafa haft áhrif á keppnina. Stundum er hún ágætis mælikvarði á álit þjóða í alþjóðasamfélaginu. Sem dæmi má nefna að þrátt fyrir að vera með stærsta tónlistariðnað Evrópu hafði Bretland ekki unnið keppnina síð- an við upphaf Thatcher-tímans árið 1981. Árið 1997 varð loks breyting þar á. Britpop tónlistin ómaði víða um álfuna og hinn ungi og glæsi- legi Tony Blair var nýkjörinn for- sætisráðherra. Eins og til að kóróna endurreisnina unnu þeir jafnframt Eurovision þetta árið. Sex árum síð- ar hafði almenningsálit Evrópubúa heldur snúist gegn þeim eftir þátt- töku þeirra í hinni umdeildu innrás í Írak. Sneru þeir þá heim frá keppni með núll stig. Stundum má segja að þjóðir hljóti uppreisn æru í gegnum söngva- keppnina. Á þetta ekki síst við um Ísland árið 2009, þegar Jóhanna Guðrún reisti Ísland upp úr öskustó efnahagshruns og Icesave-hneykslis með laginu „Is It True?“ sem náði alla leiðina í annað sætið og er jafn- besti árangur landsins til þessa. Ruslana leiðir byltingu Það árið var keppnin haldin í Moskvu, en samskipti Rússlands og Úkraínu eru eitt helsta bitbein álf- unnar þessa dagana. Ruslana vann keppnina fyrir hönd Úkraínu árið 2004 og skömmu síðar átti bylting sér stað í landinu. Fólk klæddist app- elsínugulu og stóð saman á Maidan torgi til að mótmæla Viktor Yanu- kovich forseta, sem talinn var hafa svindlað í kosningunum. Einn af leiðtogum byltingarinnar var Rusl- ana sjálf, sem fór í hungurverkfall. Yanokovich sagði af sér og Yus- hchenko, sem var byltingarmönn- um meira að skapi, tók við. Framlag Úkraínu árið 2005 þótti of pólitískt fyrir Eurovision-nefndina, sem lét taka nafn forsætisráðherrans út. Keppnin hafði þó margvísleg áhrif fyrir landið. Meðal annars afnámu Úkraínumenn vegabréfsáritanir ein- hliða, til að gera Evrópubúum auð- veldara að vera viðstaddir keppnina. Hefur þeirri tilhögun verið haldið áfram til hagsbóta fyrir ferðamanna- iðnaðinn. Keppnin þótti og vatn á myllu Evrópusinna, en deilurnar um ESB komust aftur í hámæli árið 2013. Yanukovich hafði þá aftur verið kos- inn forseti og aftur verið steypt af þeim sem vildu ganga í Evrópusam- bandið. Þetta fór mjög í taugarnar á Rússum, sem lögðu í kjölfarið undir sig Krímskaga og hafa stutt uppreisn- armenn í austurhéruðum landsins. Vinna Rússar í kvöld? Þessar deilur ná síðan inn í keppn- ina þar sem þátttakandi Rússlands var púaður í fyrra, en Úkraínumenn tóku ekki þátt sökum fjárskorts í kjöl- far stjórnarkreppu og stríðs. Fram- lag Úkraínumanna í ár er hins vegar sungið af Krímtataranum Jamölu á eigin þjóðtungu og nefnist „1944,“ sem er vísun í ártalið þegar nauð- ungarflutningar Stalíns á þjóð henn- ar áttu sér stað. Á meðan Úkraínu- menn grípa til sögulegra vísana til að koma höggi á Rússa hafa menn í Moskvu hins vegar ákveðið að skilja pólitíkina eftir heima en leggja þess í stað allt kapp á að sigra í keppn- inni. Ekkert hefur verið sparað við þátttakandann, Sergei Lazarev, og hafa Rússar jafnvel fengið framleið- anda sænsku poppsveitarinnar Ace of Base til liðs við sig. Það að fá að halda keppnina á næsta ári þykir betra áróðursbragð en bein skot af sviðinu og margir spá Rússum sigri í ár. Hvort svo mun reynast kemur í ljós í kvöld. Aðeins eitt dæmi er hins vegar um að söngvakeppnin hafi komið af stað byltingu. Það gerð- ist árið 1974 þegar lagið „E Depois do Adeus var flutt af þátttakend- um Portúgala. Þetta voru leynileg skilaboð til herforingja um að hefja valdarán gegn einræðisherranum Tomás. Hin svokallaða „Nelliku- bylting“ fylgdi í kjölfarið, sem leiddi til afnáms einræðis í Portúgal og um leið endaloka blóðugra nýlendu- stríða þeirra í Angóla og Mósambík. 1974 var því ekki aðeins árið sem að Abba sigraði í Eurovision. Stundum má segja að þjóðir hljóti uppreisn æru í gegnum söngvakeppn- ina. Á þetta ekki síst við um Ísland árið 2009 Þó söngvakeppnin eigi að heita ópólitísk hafa heims- málin oft haft áhrif á það sem gerist á sviðinu og stund- um jafnvel öfugt. Hún hefur valdið deilum á Norður-Ír- landi, endurspeglað átökin í Úkraínu og jafnvel komið af stað byltingu í Portúgal. Þá hefur hún verið til marks um ris og fall Tony Blair og átt sinn þátt í að endurreisa sjálfstraust Íslendinga eftir hrun. Valur Gunnarsson valurgunnars@frettatiminn.is Líklega er mörgum í fersku minni þegar púað var á hina rússnesku Polinu á Eurovision í fyrra. Ekki var þetta af listrænum ástæðum fyrst og fremst, lagið lenti þrátt fyrir allt í öðru sæti. Tildrögin voru hins vegar stuðningur Rússa við upp- reisnarmenn í Úkraínu, sem vakið hafði sterk viðbrögð um alla álfuna. Eurovision-keppnin hefur ávallt haft það að leiðarljósi að hefja sig yfir stjórnmálin, en þetta er bara eitt dæmi af mörgum um hvað þau eru ávallt nálægt samt. Eurovision-keppnin var fyrst haldin árið 1956, rétt áratug eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Ætlun henn- ar frá upphafi var því að eiga sinn þátt í að leiða álfuna saman, sem í sjálfu sér er pólitískt markmið. Átök í álfunni áttu þó oft eftir að endur- speglast á sviði sönglagakeppninnar. Árið 1970 höfðu skærur brotist út á milli kaþólikka og mótmælenda á Norður-Írlandi. Sama ár vann Írland Eurovision í fyrsta sinn af mörgum og var söngkonunni Dönu vel fagnað við heimkomuna. Þó var sá hængur á að sjálf var hún af norður-írskum ættum og fædd á Englandi, en hafði kosið að taka þátt fyrir hönd lýðveld- isins Írlands. Svo var hún kaþólsk og kaþólikkar á Norður-Írlandi tóku þetta sem stuðningsyfirlýsingu við þann málsstað að þeir ættu frekar heima í suðrinu. Frá Eurovision í forsetaframboð Tveimur árum síðar náðu deilurn- ar hámarki þegar 14 manns voru drepnir af breskum hermönnum í bænum Derry á Norður-Írlandi. Það sama ár sungu Írar í fyrsta og síðasta sinn á gelísku í keppninni, sem mátti túlka sem andstöðu við Englendinga. Ekki tókst að lægja öldurnar þrátt fyrir mikla velgengni Íra í Eurovision næstu árin. Á árun- um 1992 til 1996 unnu þeir fjögur ár af fimm í Eurovision og árið 1996 var loksins samið um vopnahlé á Norð- ur-Írlandi sem hefur að mestu verið haldið síðan. Af Dönu er það hins vegar að frétta að hún fór í forsetaframboð á Írlandi árið 1997. Þar hafði hún ekki erindi sem erfiði, en var þó kosin á þing tveimur árum seinna. Árið 2011 bauð hún sig aftur fram til forseta með það að markmiði að vernda Írland frá Evrópusam- bandinu, en framboð hennar hlaut talsvert bakslag þegar í ljós kom að hún hafði bandarískan ríkisborgara- rétt til jafns við þann írska. Loks var bróðir hennar handtekinn í London, ásakaður um að hafa misnotað tvær stúlkur undir 16 ára aldri, en var ekki fundinn sekur. Dana lenti í stríði og friði Löndin sem eiga rétt á þátttöku í Eurovision. Ástralía þó hvergi sjáanleg Ruslana fór í hungurverkfall og leiddi byltingu í Úkraínu Jóhanna endurreisti sjálfstraust Ís- lendinga eftir stórfellt efnahagshrun Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is MOWER sláttuvélar með Briggs&Stratton bensínmótor Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ CE/GS VOTTUN MOWER sláttuorf 0,7KW 31CC Skurðarbreidd 255 > 480mm MOWER CJ18 Sláttubreidd 46cm. BS 3,5hp mótor, rúmtak 158 CC, skurðarvídd 46cm/18”. Safnpoki að aftan 60 L, skurðhæð og staða 25-85mm/8 MOWER CJ20 Sláttuvél m/drifi, BS 6,0 hp mótor, sláttubreidd 51cm. Rúmtak 190 CC, skurðarvídd 51cm/20”, sjálfknúin 3,6 km/h, safnpoki að aftan 65 L, hliðar útskilun, skurðhæð og staða 25-75mm/8 MOWER CJ21 Sláttuvél 53cm m/drifi, BS 6,0 hp mótor, 53cm serían. Vél BS675EX með Ready Start Briggs & Stratton vél, bensín, rúmtak 190 CC, skurðarvídd 53cm/21”, sjálfknúin 3,4 km/h. Safnpoki að aftan 65 L, hliðar útskilun Skurðhæð og staða 25-80mm/8 42.990 66.990 69.990 21.990 6 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 14. MAÍ–16. MAÍ 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.