Fréttatíminn - 14.05.2016, Blaðsíða 44
Inga Guðrún Kristjánsdóttir hefur verið á whole30 matarræði í 120
daga og finnur mikinn mun á andlegri og líkamlegri heilsu. Hún er með
insúlínháða sykursýki en þarf aðeins brot af því insúlínmagni sem hún
þurfti áður.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Ég hélt að það væri ekki raunhæft að reyna við þetta. Mér fannst svo róttækt að sleppa öllum mjólkurvörum. Ég hafði
oft prófað að taka út allan sykur
og hveiti en aldrei mjólkina, enda
var ég alveg háð því að fá mjólk út í
kaffið mitt. Mín umbun í lífinu hef-
ur alltaf verið að fá mér góðan kaffi
latté,“ segir Inga Guðrún Kristjáns-
dóttir, uppeldis- og menntunar-
fræðingur.
Inga ákvað í byrjun árs að ögra
sjálfri sér ansi hressilega með því
að prófa svokallað whole30 matar-
ræði, sem snýst um borða ein-
göngu hreinan mat i 30 daga sam-
fellt. Sleppa alveg mjólkurvörum,
sykri og mjöli. Whole30 matar-
æðið er náskylt paleo mataræðinu,
bara örlítið strangara.
Ingu gekk svo vel með fyrstu 30
dagana að hún ákvað að fram-
lengja áskorunina og hefur nú
verið á hreinu mataræði í 120 daga
frá áramótum, en er hvergi nærri
hætt.
Erfitt að sleppa Pepsi Max
Inga, sem er með insúlínháða
sykursýki, fór að hugsa meira um
heilsuna árið 2011, þegar hún gekk
með eldri son sinn, til að með-
gangan yrði henni auðveldari.
Það var því ekki nýtt fyrir henni
að passa hvað hún setti ofan í sig.
Eitt hafði hún þó alltaf leyft sér,
sem hún varð að hætta til að geta
tekið whole30 alvarlega. Það var
lífs elexírinn - Pepsi Max. „Það var
bara hluti af sjálfsmynd minni,“
segir Inga og skellir uppúr.
Hún fylgdist með whole30 sam-
félaginu á samfélagsmiðlinum
Instagram í heilt ár áður en hún
ákvað sjálf að láta slag standa sjálf.
Notar miklu minna insúlín
Eina markmið Ingu í upphafi var
að léttast. Meðgöngukílóin frá því
hún gekk með yngri son sinn voru
ekki að hverfa jafn hratt og hún
hafði vonast til og hún vildi gera
eitthvað róttækt, en samt heil-
brigt, til að létta sig. Árangurinn
af whole30 hefur ekki látið á sér
standa, hvorki hvað kílóin varðar
né líkamlega og andlega heilsu,
en frá því í byrjun þessa árs hefur
Inga misst rétt tæp þrjátíu kíló og
líður miklu betur á sál og líkama.
„Það er svo mikill ávinningur af
þessu. Þó ég gleðjist auðvitað yfir
hverju kílói sem fer, og það hættir
ekki að vera markmið, þá fer hitt
fljótlega að trompa það. Ég finn
mikinn mun á heilsunni, sérstak-
lega hvað varðar sykursýkina,
alveg þannig að læknirinn minn
er undrandi. Ég þarf ekki að vakta
blóðsykurinn eins mikið og áður,
hann er svo ótrúlega jafn. Ég er
aðeins að nota brot af því insúl-
íni sem ég gerði áður sem er alveg
magnað.“
Jafnvægi á blóðsykrinum
Þá finnur Inga fyrir aukinni
hugarró. Hún hefur verið dugleg
að leita inn á við og rækta sálina
og það gengur miklu betur með
nýju mataræði. „Með svona góðu
jafnvægi á blóðsykrinum þá næ
ég þessum rólega huga. Það er svo
auðvelt að vera í núvitund. Ég þarf
varla að hafa fyrir því.“
Inga hefur jafnframt haldið raf-
ræna matardagbók, tekið mynd-
ir af matnum sem hún útbýr og
borðar og birt þær á Instagram.
„Ég byrjaði á því til að draga úr
líkunum á því að ég gæfist upp. Og
þegar það kemst í vana að setja inn
myndir daglega þá hættir maður
því ekkert svo glatt. Tilgangur-
inn er bæði að ögra sjálfri mér og
svo er stuðningurinn svo mikill.
Sérstaklega frá whole30 samfé-
laginu.“
Bætir samband fólks við mat
Inga bendir á að tilgangurinn með
því að fara á whole30 matarræði
þurfi alls ekki að vera að létta sig,
enda sé mataræðið vinsælt meðal
crossfit- og kraftlyftingafólks og
hlaupara.
„Fólk er að gera þetta með alls
konar ólík markmið og það er að
ná markmiðum sínum. Tilgangur-
inn er líka að bæta samband sitt
við mat og þess vegna er gott að
kynna líkamann aftur hægt og ró-
lega fyrir fæðutegundunum sem
teknar voru út, að þessum þrjátíu
dögum loknum, og finna hvaða
áhrif þær hafa á líkamann.“
En líkt og Inga, þá halda
margir áfram á mataræðinu eftir
nokkurra daga hlé, sérstaklega ef
líðanin tekur stakkaskiptum. Sjálf
stefnir Inga á að vera á whole30
eða paleo mataræði út árið. „Þetta
er alls ekki leiðinlegt. Og það kem-
ur manni rosalega mikið á óvart
hvað þetta verður létt,“ segir Inga
sannfærandi og blaðamaður getur
staðfest það, eftir að hafa skoðað
myndirnar hennar á Instagram,
að maturinn sem hún er að borða
er mjög fjölbreyttur og girnilegur.
Hann ætti því ekki að fæla fólk frá
því að prófa. Þeir sem hafa áhuga
geta fylgst með Ingu á Instagram -
whole30inga.
30 kíló farin
frá áramótum
Whole30 á Íslandi
Nýlega var stofnað á Facebook
samfélag Íslendinga sem hefur
áhuga á whole30 mataræðinu og
hægt er að finna hópinn undir
nafninu Whole30 Iceland.
Hverju á að sleppa?
• Viðbættum sykri
• Mjólkurvörum
• Áfengi
• Belgaldin
• Korn
Svo er bannað að vigta sig fyrr en
að 30 dögum liðnum
Kynntu þér á netinu
Kynntu þér whole30 mataræðið
og hugmyndafræðina á heimasíð-
unni whole30.com
Líður miklu betur Inga finnur fyrir
meiri hugarró en áður og með jafn-
ari blóðþrýstingi á hún auðveldara
með núvitund. Mynd | Rut
Breytingarnar á Ingu Þessar myndir af
Ingu eru teknar á þrjátíu daga fresti. Sú
fyrsta um jólin og sú síðasta fyrir nokkrum
dögum. 30 kílóum síðar.
…heilsa 8 | amk… LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2016
Pantanir í síma: 588 8998
joifel@joifel.is
Yndisfagrar
skírnartertur
að hætti Jóa Fel