Fréttatíminn - 14.05.2016, Blaðsíða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 14. MAÍ–16. MAÍ 2016
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Það er svo mikil niður-læging að þurfa að skríða í gólfinu að ég get hreinlega ekki lýst því með orðum,“ seg-ir Maríanna Vilbergs
Hafsteinsdóttir. Maríanna lenti í
bílslysi þegar hún var nítján ára
sem varð þess valdandi að hún
missti smátt og smátt máttinn í
fótunum. Fyrir fjórum árum missti
hún svo allan mátt fyrir neðan hné
og hefur verið bundin við hjólastól
síðan.
„Ég hef upplifað ýmislegt en
þessi dagur er einn sá versti sem ég
hef lifað. Þetta var síðasta sumar
og ég þurfti að fara til læknis. Ég
gat ekki fengið far svo ég ákvað að
fara á rafknúna stólnum mínum.
En þegar ég svo kem á heilsugæsl-
una komst stóllinn minn ekki inn í
lyftuna og það var enginn hjóla-
stóll við lyftuna, þrátt fyrir að lög-
um samkvæmt eigi allar heilbrigð-
isstofnanir að hafa einn slíkan. Svo
það eina í stöðunni fyrir mig var að
fara á höndunum.“
„Ég skreið inn í lyftuna og rétt
náði að teygja mig upp í takkana.
Þegar ég kem upp á aðra hæð
skreið ég í gólfinu að afgreiðslu-
borðinu. Biðstofan var full af fólki
og auðvitað störðu allir á mig.
Þegar ég komst að afgreiðslu-
borðinu bauð ég góðan daginn en
í stað þess að bjóða góðan dag á
móti kallaði afgreiðslukonan til
mín; Af hverju stendur þú ekki
upp? Ég varð algjörlega kjaftstopp
að fá þessa spurningu eftir alla
niðurlæginguna og átti mjög erfitt
með að halda aftur af tárunum.
Ég náði samt að svara henni að ég
gæti það ekki áður en ég skreið
aftur út því ég gat ekki hugsað mér
að skríða áfram til læknisins. Þegar
ég kom út úr lyftunni á jarðhæð-
inni gat ég ekki lengur haldið aftur
af táraflóðinu heldur lá bara þarna
og grét.“
„Þar sem ég lá þarna kom af-
greiðslukona úr apótekinu á jarð-
hæðinni til mín og vildi vita hvað
hefði gerst. Hún varð svo reið
þegar hún heyrði af dónaskapn-
um að hún fór upp til að lesa yfir
henni. Þessi kona hringdi í mig
stuttu síðar og sagði mér frá því að
það væri hjólastóll á læknastofunni
sem hún skyldi ná í fyrir mig næst
þegar ég þyrfti að fara til læknis.
Ef ekki væri fyrir þessa konu þá
hefði ég misst trúna á mannkynið
og þökk sé henni þá get ég farið
óhrædd til læknis í dag. Það versta
er að þetta er ekki eina dæmið
um að ég hafi þurft að skríða en
þetta var það versta. Ég er heppin
að vera í frekar góðu formi svo
líkamlega séð get ég skriðið á milli
staða. En það sem er erfitt er and-
lega hliðin, þetta er svo niðurlægj-
andi. Að mæta á sama tíma svona
framkomu og vanvirðingu frá öll-
um á biðstofunni er ólýsanlega sár
tilfinning.“
Lífsreynslan
Niðurlæging lífs míns
„Ég er heppin
að vera í
frekar góðu
formi svo
líkamlega séð
get ég skriðið
á milli staða.
En það sem er
erfitt er and-
lega hliðin.“
Myndir | Rut
Gott að skapa
Í dag fer fram
listasmiðja
fyrir krakka
á aldrinum
7-12 ára í
Listastof-
unni.
Smiðjan er sú
fimmta í röð
listasmiðja fyrir krakka sem bera yfir-
skriftina Kids love design og einblínir
á leikgleðina í ferli listsköpunar. Í
smiðju dagsins fá krakkarnir tæki-
færi til að fræðast um ljósmyndun og
notkun myrkraherbergis í listsköpun.
Við lok dags fara þau svo heim með
afraksturinn úr myrkraherberginu.
Leiðbeinendurnir, Martyna, Sig-
rún og Wiola tala íslensku, pólsku,
frönsku og ensku og eru börn af öll-
um þjóðernum velkomin.
Næsta listasmiðja í röðinni fer svo
fram næstu helgi, missi áhugasamir
af þessari.
Skráning á info@listastofan.com
Hvar? Listastofunni
Hvenær? Í dag klukkan 13-16
Hvað kostar? 4.500 krónur (allt inni-
falið sem þarf til listasmiðjunnar)
Gott að dansa
Allir út á dansgólf, fullorðnir og
börn. Boðið verður upp á opna
„ContaKids“ tíma á Dansverkstæðinu
á sunnudaginn 15. maí og næstu tvo
sunnudagar eftir það. Tímarnir eru
fyrir foreldra og börn á aldrinum 2-8
ára og kostar 1.000 krónur í hvert
skipti.
„ContaKids“ er aðferðafræði þar
sem snertispuni, dans og leikgleði
eru notuð til að þróa skemmtileg,
náin og opin samskipti milli foreldra
og barna. Foreldrar og börn styrkja
hreyfifærni sína, sjálfstraust og
næmni fyrir líkamlegri tjáningu.
Hvar: Dansverkstæðið á Skúlagötu
30
Hvenær: Sunnudaginn klukkan 11.00
Gott að horfa
Í Bæjarbíói um
helgina verður Emil
og grísinn sýnd
með íslensku tali.
Skammarstrik Em-
ils eru víst fleiri en
eyjarnar í Breiðafirði,
er mamma hans vön að
segja. En hann hefur einnig tíma til
að gera heilmargt annað. Á uppboð-
inu í Backorova gerir Emil sérkenni-
leg viðskipti. En það merkilegasta
gerist þegar Emil bjargar lífi nýgotins
gríss.
Hvar: Bæjarbíó, Strandgata 6 í
Hafnarfirði
Hvenær: Laugardaginn klukkan 14.00
GOTT
UM
HELGINA
FYRIR
BÖRNIN
Piprum allt
Djæf kynnti nýverið til leiks ís með pipar-
dufti í kjölfar Galdrastafanna vinsælu. Ísbúð
Huppu býður upp á pipardufts-ídýfu og Te
og kaffi Tyrkisk Pepper frappó. Piparhúð-
að Nóa kropp, Djúpur og popp er komið á
markað ásamt piparfylltum lakkrísreimum.
Íslendingar elska nýjungar í
sælgæti, við kveðjum salt-
karamelluna og göngum inn í
nýja tíma piparduftsins
Það er allt að verða vitlaust í sæl-
gætisheimum. Fyrir ekki svo löngu
áttu sjávarsaltið og saltkarmellan
hug og hjörtu Íslendinga. Þegar Nói
Siríus kynnti til leiks súkkulaði með
þeirri bragðtegund seldist varan
upp um land allt. Á samskiptamiðl-
um hjálpaðist fólk að við að leita
uppi súkkulaðið og lét orðið berast
þegar verslun átti til birgðir. Fleiri
fyrirtæki fygldu í kjölfarið.
Piparduftið er nýjasta æðið en
Nói Siríus kynnti í vikunni nýja
vöru: piparhúðað Nóakropp. Pip-
arduftið er þó ekki nýtt af nálinni
en Hockey Pulver og Tyrkisk Peber
(ath. ekki borið fram Tyrkish
Pepper) hafa verið viðloð-
andi íslenska sælgætis-
menningu um tíma.
Stökk hefur orðið á
síðustu mánuðum
og virðast íslensk-
ir sælgætisfram-
leiðendur ætla að
baða allar sínar vörur
í duftinu; Djúpur, lakkrís,
súkkulaði og ís. Mikil eft-
irvænting ríkir eftir pipar-
fylltum Apolo lakkrís sem er
væntanlegur í verslanir.
„Ekki sætta þig við
staðlaðan svartan,
hvítan eða bláan lit.
Með Skyrtu eru
möguleikarnir
nánast óteljandi.“
EINKENNISKLÆÐNAÐUR
WWW.SKYRTA.IS · MYSKYRTA@SKYRTA.IS · LAUGAVEGUR 49, BAKATIL