Fréttatíminn - 14.05.2016, Blaðsíða 38
…viðtal 2 | amk… LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2016
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Hún virðist við fyrstu sýn frekar lítil og nett, þessi ljóshærða stelpa sem mætir til fundar við blaðamann í húsa-
kynnum bardagaíþróttafélagsins
Mjölnis. Örlítið feimnisleg, með sítt
hárið bundið í tagl og íklædd hettu-
peysu. Um leið og peysan fær að
fjúka birtist hins vegar vöðvastæltur
og sterkbyggður líkaminn sem ber
vott um þrotlausar æfingar síðustu
ára. Sunna Rannveig Davíðsdóttir
er ríkjandi Evrópumeistari áhuga-
manna í MMA í sínum flokki, eða
Sunna „Tsunami“ eins og hún
er gjarnan kölluð innan
samfélags íþróttar-
innar. Sunna varð
í lok apríl fyrst
íslenskra kvenna
til að tryggja sér
atvinnusamning
í MMA/blönduð-
um bardaga-
listum hjá bar-
dagasambandinu
Invicta. Og nú taka
nýir tímar við.
„Ég var búin að stefna að þessu í
dálítinn tíma. En eftir Evrópumeist-
aramótið síðasta haust fór ég að
setja meiri kraft í þetta. Mér fannst
ég þá vera búin að ná þeim árangri
sem hægt er að ná sem áhuga-
manneskja. Atvinnumennskan var
því næsta skref. Nú er þetta bara
vinnan mín, að berjast,“ segir hún
stolt og má vera það. „Þetta er rosa-
lega góð tilfinning. Það fyllir mig
stolti og þakklæti að fá að vera sú
sem ryður brautina fyrir allar hinar
stelpurnar sem eiga eftir að gera
þetta sama.“
Varð óvart fyrirmynd
Hún skynjar ört vaxanda áhuga ís-
lenskra kvenna og stelpna á MMA,
en til að komast í hringinn, eins og
hún, þurfa þær að ná tökum á hin-
um ýmsu gerðum bardagalista. Sem
krefst mikillar vinnu.
Sjálf byrjaði Sunna í tælensku
kickboxi / Muay Thai en áhugi
hennar á öðrum baradagaíþróttum
kviknaði fljótt og hún færði sig yfir í
Mjölni, þar sem hún hefur æft í sex
ár. „Ég kynntist til dæmis Brasilísku
Jiu Jitsu glímunni í fyrsta skipti hér
og féll alveg fyrir henni. Hún hefur
róandi áhrif á hugann en tekur jafn-
framt mikið á líkamlega. Maður þarf
að hugsa í lausnum og fram í tím-
ann. En svo fæ ég mikla útrás í kick-
boxinu. Ég er mjög aktíf, kannski
of aktíf stundum, en hérna beini ég
orkunni allavega í rétta átt.“
Ástæðan fyrir því að Sunna ákvað
upphaflega að prófa bardagaíþróttir
var sú að hún vildi læra að verja sig,
en þegar hún kom í Mjölni heillað-
ist hún líka af samfélaginu sem þar
hafði myndast. „Það hefur haft mjög
jákvæð áhrif á mig að koma hingað
inn,“ segir Sunna sem hefur þurft að
ganga í gegnum töluverða erfiðleika
í lífinu. En hún vill ekki dvelja við
fortíðina. Hún vill frekar ræða fram-
tíðina sem hún lítur björtum aug-
um. Henni finnst frábært að
fá að vera fyrirmynd ungra
stelpna í dag. Eitthvað sem
hvarflaði aldrei að henni
að ætti eftir að gerast.
„Það er svo margt sem ég
er búin að gera á síðustu
árum sem hvarflaði aldrei
að mér að ég ætti eftir að
gera. Margt svo jákvætt. Ég
er búin að koma sjálfri mér mjög
mikið á óvart og öðrum líka held
ég. Og ég er alls ekki hætt að koma á
óvart, það er ég viss um.”
Dóttirin fetar í fótspor
Dóttir Sunnu, Anna Rakel sem er 11
ára, er líka að æfa hjá Mjölni og hef-
ur gert frá því hún var 6 ára. „Hún
hefur mikinn áhuga á þessu og þetta
er okkar sameiginlega áhugamál.
Eftir skóla þá kemur hún hingað og
hittir mig. Svo erum við hér þangað
til við förum heim að borða kvöld-
mat og sofa. Það er ekkert alltaf á
hefðbundum kvöldmatartímum
og stundum tökum við meira að
segja með okkur nesti hingað,“ seg-
ir Sunna og hlær. „Þetta er annað
heimili okkar og ætli við séum ekki
meira hér er heima hjá okkur. Ég
held að við kunnum báðar jafn vel
að meta þetta fyrirkomulag. Við
þekkjum ekkert annað og ég er búin
að lifa og hrærast í þessu frá því hún
var pínulítil.“
Sunna hefur þó aldrei þrýst á
dóttur sína að æfa hjá Mjölni. Hún
hefur prófað ýmsar aðrar íþróttir
en bardagaíþróttirnar virðast heilla
hana mest, líkt og mömmuna, sem
segir hana mjög efnilega. „Ég get
alveg trúað því að hún feti í fótspor
mín. Jafnvel á meðan ég verð ennþá
að. Þegar ég verð að ljúka ferlinum
mínum þá verður hún kannski að
hefja sinn,“ segir Sunna sem ætlar
svo sannarlega að styðja dóttur sína,
ákveði hún að feta þann veg. „Hún
hefur stutt mig hundrað prósent
fram að þessu og ég mun styðja
hana hundrað prósent í öllu því sem
hún ákveður að gera. Hún er bara
alveg mögnuð og það er svo gaman
að fylgjast með henni. Miðað við
hvernig hún er orðin í dag þá veit ég
ekki hvar þetta endar. “
Finnur ekki fyrir spörkunum
Foreldrar Sunnu voru ekkert sér-
staklega jákvæðir gagnvart bar-
dagaíþróttum þegar hún var að
byrja að æfa. Og ekki amma hennar
heldur. En það hefur breyst. „Í dag
sjá þau að ég er að gera það sem ég
elska að gera. Þetta verður bráðum
lifibrauðið mitt og er alls ekki svo
vitlaust þegar upp er staðið. Félags-
skapurinn er góður og umhverfið
heilbrigt. Mjölnir er ein stór fjöl-
skylda.“
En eftir að hafa horft á nokk-
ur myndbönd af Sunnu berjast
í hringnum, þar sem vottar svo
sannarlega ekki fyrir neinni feimni
af hennar hálfu, getur blaðamað-
ur ekki annað en spurt hvort þetta
sé í alvöru ekki hættulegt sport?
Hún vill ekki meina það. „Á æfing-
um lærum við að verja okkur. Við
lærum tækni og að beita líkaman-
um rétt. Maður lærir að þekkja
líkama sinn og veit við hverju er
að búast. Þetta lítur mun verr
út heldur en þetta er í raun og
veru. Svo venst maður því að
fá högg á sig,“ útskýrir Sunna,
en aðspurð segist hún aldrei
hafa meitt sig að ráði. Einhverj-
ar smá skeinur og marblett-
ir hér og þar, en ekkert sem
hefur ekki gróið hratt og vel.
„Maður finnur ekki fyrir því
þegar maður er að berjast.
Adrenalínflæðið er svo mikið.“
Hún man eftir einu atviki þar
sem hún fékk skurð í vörina
eftir hnéspark frá öflugum
andstæðingi, en það eina sem
hún fann fyrir var blóðbragð í
munninum. „Ég hef meitt mig
meira við að detta af hjóli.“
Búið að vera mikið hark
Sunna iðar í skinninu að fá
að berjast fyrsta bardagann
sinn sem atvinnumanneskja
í MMA hjá Invicta, en það er
enn ekki orðið ljóst hvenær
hann fer fram. Bardagasam-
bandið heldur yfirleitt þrjú til
fjögur bardagakvöld á ári og
Sunna vonast til að fá að
komast í að minnsta kosti
þrjá bardaga ár hvert.
En hvað þýðir það
fyrir hana að vera orðin
atvinnumanneskja í
íþróttinni? „Það þýðir að
mínir möguleikar til að
geta lifað af þessu ein-
hvern daginn aukast
til muna. Það er samt
talsvert langt þangað
til. Eitt og annað breyt-
ist þó strax eins og til
dæmis það að ég þarf ekki
lengur að leggja sjálf út fyrir
ferðakostnaði þegar ég fer út að
Þetta verður
bráðum lifi-
brauðið mitt og er
alls ekki svo vitlaust
þegar upp er staðið.
Félagsskapurinn er
góður og umhverfið
heilbrigt. Mjölnir er
ein stór fjölskylda.
„Ég er
búin að koma
sjálfri mér mjö
g
mikið á óvart
og öðrum líka
held ég.“
„Ég er alls ekki hætt
að koma á óvart“
Sunna Rannveig Davíðsdóttir varð á dögunum fyrsta íslenska konan til að tryggja sér atvinnusamning
í MMA/ blönduðum bardagalistum. Hún er stolt af því að ryðja brautina fyrir aðrar stelpur og vera fyrirmynd.
Slíkt hvarflaði ekki að henni fyrir nokkrum árum. En hún hefur komið bæði sjálfri sér og öðrum á óvart.
berjast. Fram að þessu hef ég verið
að borga með mér þegar ég hef farið
út. Það er búið að vera ansi mikið
hark. Annað sem breytist er að ég
fæ greitt fyrir hvern bardaga, en
til að byrja með er það frekar lítið.
Hægt og rólega get ég svo unnið
mig upp, en fæ á sama tíma erfiðari
andstæðinga,“ útskýrir Sunna. Hún
reiknar því með að þurfa áfram að
hafa töluvert fyrir saltinu í grautinn.
En til að framfleyta sér hefur hún
gegnt ýmsum störfum; verslunar-
störfum, leigubílaakstri, dyravörslu
á næturklúbbum og nú að undan-
förnu hefur hún einbeitt sér að þjálf-
un einstaklinga og lítilla hópa.
„Þetta verður vonandi léttara
með tímanum, en stundum hefur
harkið verið svo mikið að ég hef
spurt sjálfa mig hvað ég geti
haldið þessu áfram lengi.
En hjartað hefur borið mig
áfram. Mér þykir svo vænt
um sportið og hef mikla
ástríðu fyrir því sem ég er
að gera. Ég er búin að vera
að elta drauminn minn og
það er svo gaman að sjá
hann rætast. Það var greini-
lega ekki vitleysa að halda
áfram. Ég er á réttri leið og
tel að ég eigi enn eftir að
ná mínu besta formi,” segir
Sunna og bendir á að konur
séu að berjast alveg fram
yfir fertugt. Sjálf sé hún
bara þrítug. „Ég á nóg
eftir,“ bætir
hún við
að lok-
um.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.