Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 14.05.2016, Page 44

Fréttatíminn - 14.05.2016, Page 44
Inga Guðrún Kristjánsdóttir hefur verið á whole30 matarræði í 120 daga og finnur mikinn mun á andlegri og líkamlegri heilsu. Hún er með insúlínháða sykursýki en þarf aðeins brot af því insúlínmagni sem hún þurfti áður. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Ég hélt að það væri ekki raunhæft að reyna við þetta. Mér fannst svo róttækt að sleppa öllum mjólkurvörum. Ég hafði oft prófað að taka út allan sykur og hveiti en aldrei mjólkina, enda var ég alveg háð því að fá mjólk út í kaffið mitt. Mín umbun í lífinu hef- ur alltaf verið að fá mér góðan kaffi latté,“ segir Inga Guðrún Kristjáns- dóttir, uppeldis- og menntunar- fræðingur. Inga ákvað í byrjun árs að ögra sjálfri sér ansi hressilega með því að prófa svokallað whole30 matar- ræði, sem snýst um borða ein- göngu hreinan mat i 30 daga sam- fellt. Sleppa alveg mjólkurvörum, sykri og mjöli. Whole30 matar- æðið er náskylt paleo mataræðinu, bara örlítið strangara. Ingu gekk svo vel með fyrstu 30 dagana að hún ákvað að fram- lengja áskorunina og hefur nú verið á hreinu mataræði í 120 daga frá áramótum, en er hvergi nærri hætt. Erfitt að sleppa Pepsi Max Inga, sem er með insúlínháða sykursýki, fór að hugsa meira um heilsuna árið 2011, þegar hún gekk með eldri son sinn, til að með- gangan yrði henni auðveldari. Það var því ekki nýtt fyrir henni að passa hvað hún setti ofan í sig. Eitt hafði hún þó alltaf leyft sér, sem hún varð að hætta til að geta tekið whole30 alvarlega. Það var lífs elexírinn - Pepsi Max. „Það var bara hluti af sjálfsmynd minni,“ segir Inga og skellir uppúr. Hún fylgdist með whole30 sam- félaginu á samfélagsmiðlinum Instagram í heilt ár áður en hún ákvað sjálf að láta slag standa sjálf. Notar miklu minna insúlín Eina markmið Ingu í upphafi var að léttast. Meðgöngukílóin frá því hún gekk með yngri son sinn voru ekki að hverfa jafn hratt og hún hafði vonast til og hún vildi gera eitthvað róttækt, en samt heil- brigt, til að létta sig. Árangurinn af whole30 hefur ekki látið á sér standa, hvorki hvað kílóin varðar né líkamlega og andlega heilsu, en frá því í byrjun þessa árs hefur Inga misst rétt tæp þrjátíu kíló og líður miklu betur á sál og líkama. „Það er svo mikill ávinningur af þessu. Þó ég gleðjist auðvitað yfir hverju kílói sem fer, og það hættir ekki að vera markmið, þá fer hitt fljótlega að trompa það. Ég finn mikinn mun á heilsunni, sérstak- lega hvað varðar sykursýkina, alveg þannig að læknirinn minn er undrandi. Ég þarf ekki að vakta blóðsykurinn eins mikið og áður, hann er svo ótrúlega jafn. Ég er aðeins að nota brot af því insúl- íni sem ég gerði áður sem er alveg magnað.“ Jafnvægi á blóðsykrinum Þá finnur Inga fyrir aukinni hugarró. Hún hefur verið dugleg að leita inn á við og rækta sálina og það gengur miklu betur með nýju mataræði. „Með svona góðu jafnvægi á blóðsykrinum þá næ ég þessum rólega huga. Það er svo auðvelt að vera í núvitund. Ég þarf varla að hafa fyrir því.“ Inga hefur jafnframt haldið raf- ræna matardagbók, tekið mynd- ir af matnum sem hún útbýr og borðar og birt þær á Instagram. „Ég byrjaði á því til að draga úr líkunum á því að ég gæfist upp. Og þegar það kemst í vana að setja inn myndir daglega þá hættir maður því ekkert svo glatt. Tilgangur- inn er bæði að ögra sjálfri mér og svo er stuðningurinn svo mikill. Sérstaklega frá whole30 samfé- laginu.“ Bætir samband fólks við mat Inga bendir á að tilgangurinn með því að fara á whole30 matarræði þurfi alls ekki að vera að létta sig, enda sé mataræðið vinsælt meðal crossfit- og kraftlyftingafólks og hlaupara. „Fólk er að gera þetta með alls konar ólík markmið og það er að ná markmiðum sínum. Tilgangur- inn er líka að bæta samband sitt við mat og þess vegna er gott að kynna líkamann aftur hægt og ró- lega fyrir fæðutegundunum sem teknar voru út, að þessum þrjátíu dögum loknum, og finna hvaða áhrif þær hafa á líkamann.“ En líkt og Inga, þá halda margir áfram á mataræðinu eftir nokkurra daga hlé, sérstaklega ef líðanin tekur stakkaskiptum. Sjálf stefnir Inga á að vera á whole30 eða paleo mataræði út árið. „Þetta er alls ekki leiðinlegt. Og það kem- ur manni rosalega mikið á óvart hvað þetta verður létt,“ segir Inga sannfærandi og blaðamaður getur staðfest það, eftir að hafa skoðað myndirnar hennar á Instagram, að maturinn sem hún er að borða er mjög fjölbreyttur og girnilegur. Hann ætti því ekki að fæla fólk frá því að prófa. Þeir sem hafa áhuga geta fylgst með Ingu á Instagram - whole30inga. 30 kíló farin frá áramótum Whole30 á Íslandi Nýlega var stofnað á Facebook samfélag Íslendinga sem hefur áhuga á whole30 mataræðinu og hægt er að finna hópinn undir nafninu Whole30 Iceland. Hverju á að sleppa? • Viðbættum sykri • Mjólkurvörum • Áfengi • Belgaldin • Korn Svo er bannað að vigta sig fyrr en að 30 dögum liðnum Kynntu þér á netinu Kynntu þér whole30 mataræðið og hugmyndafræðina á heimasíð- unni whole30.com Líður miklu betur Inga finnur fyrir meiri hugarró en áður og með jafn- ari blóðþrýstingi á hún auðveldara með núvitund. Mynd | Rut Breytingarnar á Ingu Þessar myndir af Ingu eru teknar á þrjátíu daga fresti. Sú fyrsta um jólin og sú síðasta fyrir nokkrum dögum. 30 kílóum síðar. …heilsa 8 | amk… LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2016 Pantanir í síma: 588 8998 joifel@joifel.is Yndisfagrar skírnartertur að hætti Jóa Fel

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.