Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 2
Íþróttir Nokkrir Íslendingar hættu við að fara á EM af ótta við hryðjuverk. Utanríkis- ráðuneytið hefur ekki gefið út ferðaviðvaranir en hvetur fólk til þess að vera vakandi. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Áætlað er að um 20 þúsund Ís­ lendingar muni mæta á Evrópu­ meistara mótið í fótbolta karla í Frakklandi, sem er fyrsta stórmót íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Tvær þjóðir hafa varað þegna sína við hryðjuverkaárásum, það er að segja Bretar og Bandaríkja­ menn, og dæmi er um að Ís­ lendingar hafi hætt við að fara á mótið af ótta við hryðjuverka­ árásir. Aðeins nokkrir dagar eru liðnir síðan karlmaður var hand­ tekinn sem grunað­ ur er um að hafa skipulagt árás á almenna borg­ ara. „Við höfum ekki farið þá leið að gefa út ferðavið­ varanir,“ út­ skýrir Urður Gunnarsdótt­ ir, upplýsinga­ fulltrúi utanríkis­ ráðuneytisins, og útskýrir að Ís­ lendingar gefi yfirleitt út slík­ ar viðvaranir ásamt öðrum Norðurlandaþjóðum. „Við hvetjum auðvitað fólk til þess að vera á varðbergi og ekki síst skipulagt,“ segir Urður, en viðbúið er að verkföll í Frakk­ landi gætu truflað samgöng­ ur í Frakklandi á meðan á mótinu stendur. „Þannig að það er að mörgu að huga. Til að mynda að það getur verið erfitt að komast leiðar sinnar vegna verkfalla. Þá er svarið alltaf að vera tímanlega á ferð og skipu­ leggja sig vel,“ segir Urður. Hátt í hundrað þúsund lögreglu­ gæslu­ og hermenn verða í þeim tíu borgum sem mótið fer fram í. Við­ búið er að Íslendingar verði helst í París, St. Etienne og Marseille. „En það er mikilvægt að hafa í huga að ef eitthvað gerist, þá mun það gerast hratt,“ segir Urður og bætir við: „Það er því mik­ ilvægt að fylgjast vel með fjöl­ miðlum, umhverfi og fylgja til­ mælum.“ Spurð hvort hún muni eft­ ir öðrum eins fjölda Ís­ lendinga í öðru landi svarar hún neitandi: „Við miðum við að 40 þús­ und séu á flakki og séu búsettir á háannatíma. En ég man ekki eftir svona miklum fjölda á sama stað á sama tíma.“ Átta ís­ lenskir lög­ regluþjón­ ar verða í Frakk­ landi sem munu þá halda sig í nálægð við íslensku hópana. Utanríkisráðu­ neytið hefur þegar sent fleira starfsfólk til Frakk­ lands ásamt auknum fjölda neyðarvegabréfa. En það er ekki öllum sem líst á blikuna. Þannig ákváðu félagar Jóhanns Óla Eiðssonar, fjórir talsins, að aflýsa ferð sinni eftir að þeir heyrðu af handtöku úkra­ ínska mannsins. Í samtali við Jó­ hann Óla kom fram að þeir hefðu verði búnir að bóka farið, gistingu og voru með undir höndum miða á leiki íslenska landsliðsins. „Þeir voru búnir að vera á nál­ um frá Bataclan og gæinn sem var tekinn í Úkraínu var kornið sem fyllti mælinn,“ segir Jóhann Óli og vísar þarna í skelfilegt hryðjuverk sem var framið í París í vetur og var annað hryðjuverkið á innan við ári í borginni. Jóhann lætur þó engan bilbug á sér finna. „Ef maður fer ekki, þá eru hryðju­ verkamennirnir búnir að vinna.“ Einn af eigendum Gamanferða, Bragi Hinrik Magnús son, segist ekki hafa heyrt um afbókanir af ótta við hryðjuverk. „Við höfum fengið einhverjar af­ boðanir, en engar vegna hugsan­ legra hryðjuverka,“ áréttar Bragi Hinrik sem var staddur í Nice í Frakklandi þegar blaðamaður náði tali af honum. Hann segir þá félaga vel undirbúna, og vera viðbúna því að íslenska landsliðið nái góðum ár­ angri. „Ef árangurinn verður óvanalega góður, þá getum við farið í það að vinna að því að breyta ferðum og öðru slíku,“ segir Bragi. Spurður hvernig andrúmslofti í borginni sé svarar hann: „Miðbærinn er bara að verða blár í EM­litunum. Svo eru götulistamennirnir farnir að halda boltum á lofti hérna við strand­ götuna.“ 2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016 Grísk jógúrt Ofurfæða! Stútfull af góðri fitu og próteini Lífrænar mjólkurvörur www.biobu.is Morgunmatur: Grísk jógúrt, múslí, sletta af agave Eftirréttur: Grísk jógúrt, kakó, agave chia fræ Köld sósa: Grísk jógúrt, handfylli rifin gúrka, 2 hvítlauksrif, salt og pipar Samkynhneigði Nígeríumaður- inn Martin Moski, sem hefur búið á Íslandi í tæp fjögur ár eftir að hann leitaði hingað sem hæl- isleitandi, hefur loksins fengið dvalarleyfi af mannúðarástæð- um. „Mér hefur oft liðið alveg hræðilega en nú sé ég loksins fram á að geta lifað án þess að óttast um líf mitt,“ segir hann. Martin flúði Nígeríu í kjöl- far barsmíða og ofsókna vegna kynhneigðar sinnar. Hann sótti um hæli á Ítalíu en fékk synjun. Hann kom hingað frá Ítalíu árið 2012. Hæstiréttur vísaði um- sókn hans um hæli frá í október í fyrra en Martin brast í grát þegar úrskurðurinn var kveðinn upp. „Það hafa verið svo mörg von- brigði á undanförnum árum en ég vil ekki rifja það upp,“ segir hann. „Mig langar svo að vera hamingjusamur.“ | þká „Ég veit ekki hvaða bull þetta er í manninum,“ segir Ragnhildur Sverr­ isdóttir, talskona Björgólfs Thors Björg­ ólfssonar, en hún segir Björgólf hafna alfarið ásökunum Róberts Wessman, forstjóra Alvogen, um að Björgólf­ ur hafi sölsað undir sig hlut Róberts í Actavis og þannig hagnast um hundruð milljóna dollara. Róbert var í viðtali við Mark­ aðinn í Fréttablaðinu síðasta miðvikudag og þar sagði hann átök milli sín og Björg­ ólfs hafi endað með því að Deutsche Bank átti að hafa aðstoða Björgólf við að sölsa undir sig hlut Róberts í Actavis. Svo bætti Róbert við í viðtali Markaðarins: „Þannig að Björgólfur fékk gefins þann hlut sem ég átti í félaginu sem í dag eru umtals­ verð verðmæti og hlaupa á hundruðum milljóna dollara.“ Ragnhildur bendir á að Róbert hafi fengið sinn hlut í yfirtöku Björgólfs í fyrirtækinu, en sá hlutur hafi verið svo veðsettur að hann endaði í raun í félagi á vegum skilanefndar Glitnis eftir hrun. „Þetta var bara skuldsett upp í rjáf­ ur,“ segir Ragnhildur sem hafnar þessu alfarið og áréttar að Björgólfur hafi farið í umfangsmikið skuldauppgjör í kjölfarið og endað á því að vera áfram stærsti hluthafi Actavis. Fréttatíminn greindi frá því árið 2011 að félag Róberts, Salt Generetics, sem átti rúmlega níu prósenta hlut í Actavis fyrir fjárhagslega endurskipulagningu, hefði endað í eigu GL Investments, sem væri aftur í eigu skilanefndar Glitnis. Þá var einnig greint frá því að heimildir Fréttatímans hermdu að Róbert ætti að auki í viðræðum við skilanefndina um örlög félagsins. Ekki náðist í Róbert við vinnslu frétt­ arinnar. | vg „Við hvetjum auðvitað fólk til þess að vera á varðbergi og ekki síst skipulagt“ Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins Segir Róbert bulla um Actavis-hlutinn Viðskipti Róbert sakaði Björgólf um að hafa sölsað undir sig hlut Róberts í Act- avis. Í ljós hefur komið að hluturinn virðist hafa runnið inn í félag á vegum slitastjórnar Glitnis. Talskona Björgólfs Thors Björgólfssonar segir það alrangt að fjárfestirinn hafi sölsað undir sig hlut Róberts Skjáskot úr grein Frétta- tímans frá 2011. Róbert Wessman sakaði Björgólf um að hafa sölsað undir sig hlut sinn í Actavis. Viðbúið er að hátt í 20 þúsund Íslendingar elti landsliðið til Frakklands. Ef eitthvað gerist, þá gerist það hratt Mynd | Hari Flóttamannamál „Langar svo að vera hamingjusamur“ „Mér hefur oft liðið alveg hræðilega en nú sé ég loksins fram á að geta lifað án þess að óttast um líf mitt.“ Martin Moski Jafnréttisstofa ætlar að krefjast skýringa á því af hverju Þjóðhagsráð sé einungis skipað körlum. Það sé ekki í anda jafnréttislaga. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir að það þurfi að skýra þessa furðulegu skipan. Ráðherra beri, þegar beðið sé um tilnefningar í ráð og nefndir, að ítreka að skipa beri karla og konur. Jafnréttislögin kveði á um jafnan hlut kvenna í stjórnum ráðum og nefndum nema aðstæður komi í veg fyrir það.. Hún sjái ekki í fljótu bragði að það eigi aðrar reglur að gilda í þessu tilfelli. „Maður trúir ekki sínum eigin augum, að þetta skuli enn gerast.“ Þjóðhagsráð hélt sinn fyrsta fund í vikunni en þar sitja forsætis- ráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Ís- lands. Þar vantaði fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar sem telur ekki tímabært að stofna ráðið. Fjarvera kvenna úr ráðinu vakti athygli margra, meðal annars á Facebok-síðunni Kynjabilið. Þar birtist myndin undir fyrirsögninni: Uss, krakkar! Strákarnir eru að funda um þjóðarhag! | þká Uss, krakkar, strákarnir funda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.