Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 32
Er hægt að komast af á höf- uðborgarsvæðinu án þess að eiga bíl? Jú, þann lífsstíl kjósa sumir sér, menga minna og spara peninga, ganga, hjóla og taka strætó – og leigubíl ef mikið liggur við, t.d. ef komast þarf á fæðingardeildina með 7 í útvíkkun. Björn Reynir Halldórsson ritstjorn@frettatiminn.is Fjölskyldulíf án einkabíls Einkabílar eru í íslensku samfélagi gjarnan taldir órjúfanlegur hluti af fjölskyldulífinu og er jafnvel talað um fjölskyldubíl í því samhengi. Hann er hinn þarfasti þjónn þegar kemur að matarinnkaupum, skutli í skóla, dagvistun og frístundum, ferðum á heilsugæslu og þjónustu af ýmsu tagi. Við fyrstu sýn virðist nánast ómögulegt að komast af án hans þegar börn koma í heiminn en svo þarf ekki endilega að vera. Hild- ur Knútsdóttir og Egill Þórarinsson, Nadira Árnadóttir og Sandra Önnu- dóttir og Nina Salvioldis og Sebast- ian Geyer lifa öll bíllausu lífi með börnin sín og hafa öll upplifað það viðmót frá vinum og kunningjum að nauðsynlegt sé að eiga bíl og spurn- ingar á borð við „hvenær ætlarðu að kaupa bíl?“ eða „hvenær ætlarðu að taka bílpróf?“ hafa verið tíðar. Öll hafa þau hins vegar sniðið sér stakk eftir vexti og kosið að búa á stað þar sem auðvelt er að nálgast alla þjón- ustu án þess að vera bílnum háð en leyfa sér að taka leigubíl þegar þörf er á þar sem sparnaður er heilmik- ill. Öll hafa þau upplifað óþægindi vegna lélegs snjómoksturs en upplif- un af strætókerfi höfuðborgarsvæðis er hins vegar ólík. Fréttatíminn tók þau tali og spurði hvernig fjölskyldu- líf án einkabílsins gengi fyrir sig. „Ég á tvö börn og við áttum bíl þegar eldri dóttir okkar fæddist en svo þegar yngri dóttirin fæddist hugsuðum við: „Við þurfum að kaupa stærri bíl,“ en svo hugsuðum við bara: „Nei, af hverju?“ Það er náttúrlega líka pólitískt, við viljum ekki menga og svo eru bílar bara eitthvað svo leiðinlegir,“ segir Hildur Knútsdóttir, rithöfund- ur og verkefnastjóri hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands. Hún býr í Vesturbæ Reykjavíkur ásamt manni sínum, Agli Þórarinssyni skipulagsfræðingi, og dætrum þeirra tveimur, Rán, 3 ára og Örk, eins árs. Rán er á leikskóla en Örk hjá dagmæðrum, því fer dágóð- ur tími á morgnana og síðdegis í göngutúra sem eru fjölskyldunni ánægjulegir: „Þegar dóttir mín var í leikskóla hjá FS löbbuðum við meðfram Tjörninni. Þá sáum við unga og hittum kisur. Þetta er allt annað,“ segir Hildur. „Svo rekst ég á fólk og spjalla og við kíkjum á róló. Svo þegar maður tekur strætó er hægt að hlusta á tónlist eða hljóðbók.“ Hildi er umhugað um þá kvöð að sitja föst í umferð á háanna- tíma og aðra ókosti á borð við að finna stæði eða sinna viðhaldi á bílnum. „Þetta bara mótar lífið leiðinlega, finnst mér. Lífið fer að snúast einmitt um bílinn, hvar maður fær stæði og svona.“ Það fylgir því að búa í gamla Vesturbænum að erfitt er að finna stæði fyrir framan heimili sitt en staðsetning var hins vegar einmitt valin með það í huga að þurfa ekki bíl á að halda enda stutt í alla þjónustu, nema helst læknavakt: „Maður getur farið á heilsugæsl- una en það er bara til sex. Börn eiga það einhverra hluta vegna til að veikjast á föstudagskvöldum, það er klassískt. Þá getur verið blóðugt að taka leigubíl á læknavaktina í Kópavogi.“ Að sama skapi er Hildur heppin að því leyti að hennar vinnu- tími er sveigjanlegur: „Ég bý vel að því að ég er í hlutastarfi og svo skrifa ég. Það myndi ekki ganga upp að vera í vinnu í 8 tíma í dag. Þetta tekur dálítinn tíma, önnur er hjá dagmömmum og hin á leik- skóla.“ Þau skiptast á að fara fyrr úr vinnunni og í tilfellum Egils vinnur hann upp sína tíma. „En þó við værum á bíl þá myndum við ekki bæði ná átta tímum,“ bætir Hildur við. Hugsjónir spila sinn þátt í að Hildur og Egill losuðu sig við bíl- inn. Það er ekki einungis minni mengun sem fylgdi því að losa sig við bílinn heldur eru fleiri jákvæð umhverfisáhrif: „Í staðinn fyrir að fara stórar innkaupaferðir förum við oftar og kaupum minna, að vísu í dýrari búðum en við sóum minni mat. Það gleym- ist nefnilega stundum að það er líka mjög dýrt að henda mat. Svo um helgar förum við öll saman með kerru og gerum þetta allt saman,“ segir Hildur og bætir við að barnakerrur henti mjög vel í innkaupaferðir enda er þar pláss til þess að geyma ýmislegt undir vöggunni. Hildur finnur helst fyrir því að eiga ekki bíl á veturna þegar ekki er hlúð nógu vel að gangandi vegfarendum: „Það er ekkert djók að vera með vagn í janúar, hvernig er rutt. Oft snjóskaflar og illa rutt og maður er fastari með barn,“ segir Hildur en bætir þó við: Það eina sem við söknum við að hafa bíl eru ferðir út á land. Mamma á sumarbústað á Suðurlandi. Það er reyndar hægt að taka strætó þangað. Kannski við prófum það þegar stelpurnar verða aðeins stærri.“ Það er þó mögulegt að fara út á land án bifreiðar: „Ég var að fara að lesa í FSU um daginn og ég tók bara strætó.“ Hildi finnst þó vanta hvatann til að leigja (rafmangs)bíl, það sé jafndýrt og bif- reiðatryggingar fyrir heilt ár. Mynd | Hari Hugsjónir áttu sinn þátt í að Hildur og Egill losuðu sig við bílinn. Tíðari innkaupaferðir en minni matarsóun 32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016 fyrir TILBOÐS KASSI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.