Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 14
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir Hanna Birna Kristjánsdótt-ir hefur tilkynnt að hún ætli að hverfa úr stjórn-málum. Stjórnmálaferill hennar var einn sá glæstasti sem kona hefur fengið innan Sjálfstæðisflokksins og um tíma var hún með öll spil á hendi. Fall Hönnu Birnu var líka harkalegt. Hún hrökklaðist úr stóli innanríkis- ráðherra í kjölfar lekamálsins, eftir að hafa verið hundelt af fjölmiðla- mönnum og pólitískum andstæðing- um, þar sem hún hringl aði inni í ráðuneytinu í pólitískri afneitun af þeirri stærðargráðu sem á betur heima í skáldsögu en raunveruleik- anum. Hvar byrjaði Hanna Birna að falla? Hún tapaði borginni árið 2010. Þrátt fyrir það var hún gríðarlega vinsæl innan flokksins. Líkt og Davíð Odds- son bauð hún sitjandi formanni birginn og bjó sig undir að fara úr borgarstjórn í stól formannsins og þaðan til æðstu metorða. Það var engin tilviljun, hún var fengin til verksins. Og klöppuð upp. Þetta var haustið 2011. Ferill Bjarna Benediktssonar hékk á bláþræði og harðlínusveit sjálfstæð- ismanna hafði ákveðið að fylkja sér um Hönnu Birnu, til að refsa honum fyrir linkind í Icesave-málinu. Það var því fátt sem gat komið í veg fyrir að hún yrði fyrsta konan til gegna formennsku í flokknum. Stjarna hennar hafði aldrei skinið jafn skært. Í leiðara Morgunblaðsins mátti síð- an lesa skömmu fyrir kjörið að vinir Hönnu Birnu og velgerðarmenn hefðu ákveðið að varpa henni fyrir róða og styðja Bjarna, enda hefði hann séð að sér. Hanna Birna hafði þjónað sínum tilgangi, hún hafði niðurlægt prinsinn og leitt honum fyrir sjónir hver réði. Hún tapaði auðvitað kosningunni. En Bjarni lærði sína lexíu. Hanna Birna bauð sig fram til varaformanns flokksins árið 2013. Nokkru fyrir kosninguna láku stuðningsmenn hennar niðurstöð- um skoðanakönnunar í blöðin, þar kom fram að fylgið myndi sópast að flokknum með hana við stjórn- völinn. Þetta var auðvitað fremur óskemmtilegt fyrir Bjarna. Annars vegar ætlaði hún að fara í varafor- mannsframboð til að hlífa Bjarna, en hinsvegar rasskella hann opin- berlega sjálfri sér til hugarhægðar. Vopnið snerist í höndum hennar. Í staðinn fyrir að hörfa mætti for- maður Sjálfstæðisflokksins í sjón- varpssal og nánast grét og kveinaði í beinni útsendingu. Og það var eins og við manninn mælt. Það var grátið í öllum eldhúsum landsins yfir bellibrögðum Hönnu Birnu, hún var ekki lengur Mjallhvít heldur vonda drottningin Hanna Birna tók sæti í ríkisstjórn sem innanríkisráðherra árið 2013, sem aðstoðarmann réði hún Gísla Frey Valdórsson, sendisvein úr harðlínudeildinni, sléttgreiddan og felldan. Saman tóku þau til við að leggja pólitískan feril Hönnu Birnu í rúst. Þótt flóttamannaneyðin í Evrópu hafi ekki náð hámarki fyrr en seinna var þetta eldfimur málaflokkur. Þegar boðað var til mótmæla fyr- ir utan ráðuneytið til að mótmæla brottvísun Nígeríumannsins Tony Omos voru góð ráð dýr. Ákveðið var í herbúðum Hönnu Birnu að leka trúnaðarskjölum úr ráðuneytinu sem vörðuðu lögreglurannsókn suð- ur í Keflavík. Allir muna hvað gerðist næst. Í fyrstu var það fullkomin afneitun, síðan reiði þar sem öllum öðrum var kennt um. Lögreglu var hótað, öskrað var á pólitíska andstæðinga, starfsfólk ráðuneytisins var nánast í herkví og ekki einu sinni ræstinga- fólkið var óhult fyrir ásökunum um að hafa lekið gögnunum. Þegar Hanna Birna fór loksins úr ráðuneytinu, var aðstoðarmaðurinn búinn að játa á sig glæpinn. Öll þjóð- in var komin með upp í kok. Enginn trúði lengur að Hanna Birna væri fórnarlamb í málinu nema Hanna Birna, ef marka má yfirlýsingu sem hún sendi frá sér af þessu tilefni. Hanna Birna tilkynnti um brott- hvarf sitt í pólitík með sínum hætti. Hún horfði bláeygð framan í mynda- vélarnar og sagðist ætla að yfirgefa stjórnmálin, þar sem hana langaði að leita nýrra áskorana. Hún neitaði því að lekamálið hefði haft úrslitaá- hrif. Hún brosti síðan þessu undir- furðulega og óneitanlega svolítið falska brosi, sem er svo minnistætt úr lekamálinu. Kannski er þetta einhver heldri manna leikur úr teboði Sjálfstæðis- flokksins, að tala í frösum, og brosa með munninum en ekki augunum. Það virkar ákaflega fyrirmannlegt í þeim kreðsum en þegar allt er kom- ið í óefni, hefur það sömu áhrif og þegar dýr lætur skína í vígtennurnar. Addio Hanna Birna Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. STJÓRNMÁLA- KONA KVEÐUR Gaman Ferðir fljúga með WOW air / www.gaman.is / gaman@gaman.is Gaman Ferðir bjóða upp á tónleikaferðir við allra hæfi. Kíktu á gaman.is og skoðaðu úrvalið. GAMAN Á TÓN- LEIKUM! BEYONCE London 1-3 júlí 149.900 kr. Verð á mann miðað við 2 í herbergi RIHANNA London 24-26 júní 119.900 kr. Verð á mann miðað við 2 í herbergi LIONEL RICHIE London 1-3 júlí 129.900 kr. Verð á mann miðað við 2 í herbergi Frá Frá Frá 14 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.