Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 78

Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 78
…EM 2016 14 | amk… föstudagur 10. júní 2016 Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is gæði – þekking – þjónusta FRÁBÆRIR OFNAR FRÁ TURBOCHEF Nánari upplýsingar á www.pmt.is eða í síma 567 8888 i3 TM i5 TM Hraðinn og þægindin koma ekki niður á gæðum matarins! SŏtaTM i1 TM Ofnarnir frá Turbochef eru einfaldir í notkun, taka lítið pláss og rafmagnsnotkun er í lágmarki. Þeir elda 10–12 sinnum jótar en hefðbundnir ofnar og þurfa ekki sérstaka loftræstingu 10 skærustu stjörnurnar á EM Það verður nóg af frábærum leikmönnum á stóra sviðinu í Frakklandi en þessir munu að líkindum verða í aðalhlutverki Cristiano Ronaldo Þjóð: Portúgal Númer: 7 Félagslið: Real Madrid. Aldur: 31 árs. Landsleikir/mörk: 125/56 Annar af tveimur bestu leikmönnum heims og óstöðvandi þegar hann er í sínu besta formi. Við Íslendingar vonumst að sjálfsögðu eftir því að hann skilji formið eftir heima. Kevin De Bruyne Þjóð: Belgía. Númer: 7 Félagslið: Manchester City. Aldur: 24 ára. Landsleikir/mörk: 41/13. Ótrúlega kraftmikill leikmaður sem bæði býr til mörk fyrir félaga sína og skorar þau sjálfur. Þegar hann er í stuði skiptir engu þó Hazard sé hættur að skora. Robert Lewandowski Þjóð: Pólland. Númer: 9. Félagslið: Bayern München. Aldur: 27 ára. Landsleikir/mörk: 76/34. Það tók Lewandowski langan tíma að finna sama form með landsliðinu og með félagsliðum sínum. En eftir að hann var gerður að fyrirliða fór hann að skora reglulega og þykir til alls líklegur nú. Gareth Bale Þjóð: Wales. Númer: 11 Félagslið: Real Madrid. Aldur: 26 ára. Landsleikir/mörk: 55/19. Dýrasti fótboltamaður heims nýtur þess að spila með landsliðinu og dregur jafnan vagninn þar. Hann skoraði 7 af 11 mörkum Wales í undankeppninni. Yevhen Konoplyanka Þjóð: Úkraína. Númer: 10 Félagslið: Sevilla. Aldur: 26 ára. Landsleikir/mörk: 53/13. Einn af þessum óútreiknanlegu leikmönnum. Hefur burði til að verða ein af stjörnum mótsins ef hausinn er í lagi, enda býr hann yfir miklum hraða og getur splundrað vörnum andstæðinganna. Andrés Iniesta Þjóð: Spánn. Númer: 6 Félagslið: Barcelona. Aldur: 32 ára. Landsleikir/ mörk: 108/12. Heilinn og hjartað í fallegu spili Spánverja. Leikmaður sem allir virðast elska. Jamie Vardy Þjóð: England. Númer: 11 Félagslið: Leicester. Aldur: 29 ára. Landsleikir/mörk: 8/3. Maðurinn sem fór frá því að spila í utandeildinni fyrir nokkrum árum í að vera stjarna í enska boltanum. Býr yfir ótrúlegum hraða og er þefvís á marktækifærin. Verður öskubuskusagan fullkomnuð? Thomas Müller Þjóð: Þýskaland. Númer: 13 Félagslið: Bayern München. Aldur: 26 ára. Landsleikir/mörk: 71/32. Hefur unnið allt sem hægt er að vinna og á samt tíu ár eftir í boltanum. Þrátt fyrir það tekst Müller að finna sér pláss á vellinum og dúkka upp á réttum stað og réttum tíma til að skora mikilvægustu mörkin. Paul Pogba Þjóð: Frakkland. Númer: 15. Félagslið: Juventus. Aldur: 23 ára. Landsleikir/mörk: 31/5. Margir spá því að Pogba verði stjarna mótsins og hann hefur sannarlega allt til að bera; tækni, yfirsýn og líkamsburði til að fara framhjá andstæðingum, leggja upp mörk og skora þau sjálfur. Zlatan Ibrahimovic Þjóð: Svíþjóð. Númer: 10. Félagslið: Samningslaus. Aldur: 34 ára. Landsleikir/mörk: 112/62. Skoraði 11 af 19 mörkum Svía í undankeppninni og dró þá til Frakklands nær einn síns liðs. Spurningin er hvort hann hafi krafta til að draga vagninn áfram en hvort aðrir stíga upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.