Fréttatíminn - 10.06.2016, Page 8
Fyrir fullorðna og börn, 4 ára og eldri.
Fyrirbyggir og
meðhöndlar einkenni
ofnæmisbólgu í nefi:
9 Hnerri
9 Nefrennsli
9 Kláði í nefi
9 Nefstífla
án
lyfseðils
á góðu
verði
Notkunarsvið: Glinor nefúði inniheldur natríumcromoglicat og er ætlaður við ofnæmisbólgu í nefi. Frábendingar: Ofnæmi
fyrir natríumcromoglicati, benzalkonklóríði eða einhverju hjálparefnanna. Varúð: Innihaldsefnið benzalkonklóríð getur valdið
ertingu í húð. Meðganga og brjóstagjöf: Engin skaðleg áhrif á fóstur hafa komið fram við notkun natríumcromoglicats.
Engu að síður skal forðast notkun á fyrsta þriðjungi meðgöngu og einungis skal nota lyfið á seinni stigum meðgöngu ef þörf
er á. Natríumcromoglicat skilst í litlu magni út í brjóstamjólk. Þessi útskilnaður er sennilega skaðlaus en einungis skal nota
lyfið hjá mæðrum með barn á brjósti ef þörf er á. Skömmtun: Fullorðnir og börn, 4 ára og eldri: Einn úðaskammtur í hvora
nös tvisvar til fjórum sinnum á dag. Algengustu aukaverkanir: Erting í nefslímhúð getur komið fram i upphafi meðferðar
en þessi áhrif eru skaðlaus og tímabundin. Lesið vandlega fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Desember 2015.
Nefúði við ofnæmi
Skólastjórnendur Ferða-
málaskóla Íslands veita vill-
andi upplýsingar um vægi
menntunar skólans, þetta
fullyrða nokkrir fyrrum
nemendur, formaður Félags
leiðsögumanna, fræðslu-
stjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, endurmenntun-
arstjóri Háskóla Íslands og
stjórnandi við Leiðsöguskól-
ann í Kópavogi
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Togstreita er í hópi leiðsögumanna
á Íslandi vegna þess að Félag leið-
sögumanna viðurkennir ekki
menntun frá Ferðamálaskóla Ís-
lands. Og vegna þess að aðrir skólar
sem bjóða upp á leiðsögunám segj-
ast ekki geta metið námið þaðan.
Útskrifaðir nemendur eru margir
ósáttir við þetta.
Ítrekað hefur verið reynt að ná
í Friðjón Sæmundsson skólastjóra
Ferðamálaskóla Íslands en án ár-
angurs. Allnokkrir fyrrum nem-
endur við Ferðamálaskóla Íslands
segjast í samtölum við Fréttatímann
hafa fengið ófullnægjandi og vill-
andi upplýsingar um skólagönguna.
Þeim hafi meðal annars verið sagt
að námið væri metið til eininga í
háskólum og þeir myndu fá aðild
að Félagi leiðsögumanna, en annað
hafi komið á daginn. Nokkrir þeirra
vildu fá að hætta í skólanum og færa
sig annað á miðjum námstíma, en
höfðu skuldbundið sig fjárhagslega
til að ljúka náminu.
Sumir þeirra hafa leitað til
menntamálaráðuneytisins. „Nem-
endur við Ferðamálaskóla Íslands
hafa óskað eftir upplýsingum um
hvort skólinn hafi fengið viðurkenn-
ingu og hvort kennt sé eftir viður-
kenndri námskrá. Gert er ráð fyr-
ir að þeim verði svarað í þessari
viku eða þeirri næstu,“ segir Þor-
geir Ólafsson, upplýsingafulltrúi
menntamálaráðuneytisins.
Ferðamálaskólinn er einkaskóli
og lýtur öðrum lögmálum en opin-
berir skólar sem bjóða upp á leið-
sögunám, eins og Endurmenntun
Háskóla Íslands og Leiðsöguskólinn
sem heyrir undir Menntaskólann í
Kópavogi.
Ómögulegt að meta námið
Stjórnendur í Félagi leiðsögumanna
og Leiðsöguskólanum í Kópavogi
hafa óskað eftir upplýsingum um
uppbyggingu námsins í Ferðamála-
skóla Íslands, til að geta metið hvaða
fög og einingar útskrifaðir nemend-
ur frá Ferðamálaskóla Íslands hafa
lokið. Sumir útskriftarnemendur úr
Ferðamálaskóla Íslands hafa óskað
eftir aðild að félaginu, aðrir hafa
viljað bæta við sig námi í Kópavogi.
Kristín Hrönn Þráinsdóttir hjá
Leiðsöguskólanum í Kópavogi seg-
ir að nemendur Ferðamálaskóla Ís-
lands hafi fengið misvísandi upplýs-
ingar um hvers virði námið þar sé.
„Fólk sem hefur útskrifast út
Ferðamálaskóla Íslands hefur kom-
ið til okkar og viljað fá námið metið
til eininga hjá okkur. Það hefur
haft hug á að stunda nám, til dæm-
is í gönguleiðsögn hjá okkur. Ég hef
þá kallað eftir áfangalýsingum og
gögnum um það nám sem nemend-
urnir luku í Ferðamálaskóla Íslands,
en það virðist ekki vera hægt að
nálgast slíkar upplýsingar. Enginn
af þessum umsækjendum hefur
skilað mér þessum göngum,“ segir
Kristín Hrönn.
Að sögn stjórnenda við Leið-
söguskólann í Kópavogi og Endur-
menntun hefur námið á báðum
stöðum lengst af verið byggt á við-
miðunarnámskrá um nám í leið-
sögn sem gefin var út af mennta-
málaráðuneytinu árið 2004. Sú
námskrá var felld úr gildi 1. ágúst
2015. Samkvæmt upplýsingum frá
menntamálaráðuneytinu hefur
Ferðamálaskóli Íslands ekki ósk-
að eftir viðurkenningu á námskrá
skólans.
Í gömlu viðmiðunarnámskránni
segir að inntökuskilyrði námsins
beri að vera 21 árs aldurstakmark
og stúdentspróf. Í Endurmenntun
Háskóla Íslands og Leiðsöguskólan-
um segja stjórnendur að þessi inn-
tökuskilyrði séu virt og aðeins fólk
með stúdentspróf eða sambærileg
próf fái inngöngu, auk þeirra sem
hafa mikla hagnýta reynslu.
Námið í Ferðamálaskóla Íslands
„er opið öllum þeim sem hafa áhuga
á að læra hvernig standa skal að
leiðsögn innlendra og erlendra
ferðamanna um Ísland,“ segir á
heimasíðu skólans.
Vilja ekki lækka kröfur
Formaður Félags leiðsögumanna
segir að af þessum sökum hafi félag-
ið ekki viljað veita útskrifuðum leið-
sögumönnum frá Ferðamálaskóla
Íslands aðild að félaginu, því óvíst
sé hvort námið sé viðurkennt af
menntamálaráðuneytinu og engar
upplýsingar fáist um uppbyggingu
námsins.
„Við höfum ítrekað reynt að ná
samtali við skólastjórnendur eða
koma á fundi með þeim, en án ár-
angurs. Margir fínir leiðsögumenn
hafa útskrifast frá Ferðamálaskóla
Íslands en við viljum vita hvern-
ig námið er uppbyggt. Við viljum
ekki lækka menntunarkröfur sem
gerðar eru leiðsögumanna, kröfur
um tungumálakunnáttu, öryggi
Leiðsögunám Stjórnendur Ferðamálaskóla Íslands sagðir veita misvísandi upplýsingar um vægi námsins
„Villt um fyrir nemendum“
„Mér finnst alvar-
legt að nemendur
frá Ferðamálaskóla
Íslands hafa ítrekað
hringt í okkur, eftir
að hafa skuldbundið
sig í nám sem hefur
ekkert vægi og Félag
leiðsögumanna
viðurkennir ekki.“
Kristín Jónsdóttir
Njarðvík, endur-
menntunarstjóri
Háskóla Íslands.
„Ég hef heyrt í nem-
endum sem hafa lýst
yfir óánægju með að
fá upplýsingar sem
ekki standast.“
María Guðmunds-
dóttir, fræðslustjóri
Samtaka ferðaþjón-
ustunnar.
Mynd | NordicPhotos/GettyImages
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016