Fréttatíminn - 10.06.2016, Qupperneq 62
Unnið í samstarfi við
Bryggjuna brugghús
Það verður mikið um dýrðir á Bryggjunni brugghúsi á morgun, laugardaginn 11. júní. Þá verður glæsilegt
Moët on Ice partí þar sem
þessi vinsæli drykkur
verður á boðstólum.
Moët Ice Impérial
er fyrsta kampa-
vínið sem gert er
til að reiða fram
á klaka. Eins og
gefur að skilja er
þetta einstaklega
ferskur drykkur
sem smellpassar
nú þegar sumarið er
gengið í garð.
Á morgun fagnar Moët &
Chandon kampavínsframleið-
andinn 270 ára afmæli og af því
tilefni er alþjóðlegum Moët-degi
fagnað. Af þessu tilefni blæs
Bryggjan brugghús til partís í
samstarfi við Ölgerðina.
Moët on Ice partíið hefst klukk-
an 16 og munu fyrstu 50 gestirn-
ir fá að njóta bæði kampavíns og
annarra veitinga. Þá verður Moët
on Ice til í takmörkuðu upplagi.
Plötusnúður mun halda fjörinu
gangandi í partíinu til klukkan 20.
Þetta partí markar upphaf þema-
-mánaðar á Bryggjunni brugghúsi
því Bryggjan verður eini staður-
inn þar sem hægt er að fá Moët
on Ice út júní. Af þessu tilefni
hafa sérfræðingar staðarins sett
saman þriggja rétta matseðil
tengdan Moët on Ice sem verður í
boði út júní.
Glæsilegt kampavínspartí
á Bryggjunni brugghúsi
Fyrstu 50 gestirnir fá að njóta kampavíns og annarra veitinga og plötusnúður heldur uppi fjörinu
…matur
kynningar
14 | amk… FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Sumarstemning Glæsilegt partí verður á Bryggjunni brugghúsi á morgun, laugardag, þar sem Moët on Ice verður í boði í takmörkuðu upplagi.
Nautatartar með hleyptri
eggjarauðu, jarðskokkaflögum,
piparrótarsnjó og smjörsteiktu
rúgbrauði
Bjór: Myrkvi Nr.13
„Þetta er kaffibættur porter, en
það er Reykjavík Roasters sem
sérristar fyrir okkur kaffi sem við
völdum sérstaklega með þeim
fyrir bjórinn. Við völdum hann fyr-
ir forréttinn þar sem hann hefur
góða fyllingu og létta ristun til að
passa með nautinu og ekki síður
rúgbrauðinu.“
Stökksteiktur skarkoli með
rauðrófum, kapers, brúnuðu
sítrónusmjöri og kartöflum
Bjór: Fjólubláa Höndin
„Léttsýrður og brettaður blá-
berja-saison sem inniheldur
heilan helling af íslenskum aðal-
bláberjum. Við völdum þennan
bjór til að halda réttinum ferskum
og léttum, berjatónarnir pössuðu
vel inn í heildar bragðupplifunina
og sýran virkaði við að hreinsa
munninn af fitu milli bita. Þetta
gekk vel upp og þessi sigraði í
sinni lotu.“
Stikkilsberjapæ með vanillukremi
Bjór: Surtur Nr. 38
„Þetta er 10.8% vanillubættur
Imperial Stout. Hann er marg-
slunginn og ríkur af súkkulaðitón-
um og vanillan ýtir vel undir þá í
bragðupplifun. Hann passaði því
vel við vanillukremið og sætindin
í eftirréttinum og hentar reyndar
vel við marga sæta eftirrétti. Hitti
beint í mark.“
Matseðillinn var svo svona:
Miklar vinsældir
Bryggjan brugghús
var opnuð á síðasta ári
og hefur notið mikilla
vinsælda. Bryggjan er
sjálfstætt brugghús,
veitingastaður og bar
við höfnina í Reykjavík
sem leggur áherslu á
fersk hráefni og gæða
bjór af ýmsum tegund-
um sem dælt er beint úr
brugghúsinu.
„Það var sérstaklega gaman að fá
boð um þátttöku í Bryggeribråk
þar sem það hefur einmitt verið
eitt af megin markmiðum Borg-
ar frá stofnun að kynna fyr-
ir landsmönnum hversu góður
kostur bjór er með ýmiskonar
mat,“ segir Sturlaugur Jón Björns-
son, bruggmeistari í Borg brugg-
húsi.
Mæta Dönum í næstu umferð
Borg brugghús var á dögunum
valið til þátttöku í Bryggeribråk,
keppni brugghúsa á Norður-
löndunum í pörun á mat og bjór.
Á dögunum lagði Borg brugghús
hið norska Ego Brygghus að velli
í annarri umferð keppninnar og
hefur því tryggt sér sæti í fjórð-
ungsúrslitum. Ego Brygghus er
frá Fredrikstad og hafa brugg-
meistarar þess vakið athygli fyrir
áhugaverða og frumlega bjóra.
Borg mætir Svaneke-brugghúsinu
frá Borgundarhólmi í Danmörku í
næstu umferð keppninnar í sept-
ember.
Bjór hentar vel í paranir með mat
Sturlaugur segir að gaman hafi
verið að fylgjast með þróun í bjór-
menningu hér á landi undanfar-
in ár. „Bragðflóra bjórsins nær
yfir svo ótrúlega mikið svæði
og margar víddir en gjarnan er
Bjórinn er spennandi hluti
af matarmenningu
Borg brugghús er komið í fjórðungsúrslit í norrænni keppni í pörun á mat og bjór
og Sturlaugur bruggmeistari segir að bjórmenning sé sífellt að batna hér á landi
Íslenskur sigur. Bruggmeistararnir Sturlaugur Jón Björnsson, Valgeir Valgeirsson og Árni Long skáluðu fyrir góðum árangri í
Bryggeribråk, keppni brugghúsa á Norðurlöndunum.
talað um hann sem fjölbreyttasta
drykk sem völ er á. Það er einmitt
þessvegna sem hann hentar vel í
paranir með ólíkum réttum, eins
og sífellt fleiri matgæðingar eru
að komast að. Á svæðum þar sem
bjórmenning hefur verið hve mest
er þetta partur af almennri matar-
menningu líka,“ segir hann.
„Fyrir nokkrum árum sáu lang
flestir sama drykkinn fyrir sér hér
heima þegar þú sagðir bjór; sirka
5% ljósan lagerbjór með mjög sett-
legu bragði. Vitneskja um mismun-
andi bjórstíla og vinsældir þeirra
er að breyta þessu til muna og
trúlega að færa okkur bjórmenn-
ingu í fyrsta skipti, í það minnsta
frá bannárunum. Nú má sjá fólk
drekka allt frá fölgulum beiskum
IPA-bjórum yfir í ristaða stout og
portera með tveggja stafa áfengis-
prósentu, í villigerjaða súrbjóra og
allt þar á milli. Það er þessi breidd
sem gerir bjórinn svo spennandi
með ólíkum réttum, og svo auðvit-
að við matargerð líka.“