Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.07.2016, Blaðsíða 7

Fréttatíminn - 16.07.2016, Blaðsíða 7
| 7FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 16. júlí 2016 „Þetta er skrautleg- ur, skemmtilegur og dálítið spaugilegur sjófugl, en ég tel samt að ef við myndum kjósa í dag um þjóðar- fuglinn þá yrði lóan hlutskörpust.“ Lundinn – dýrmætasti fugl Íslands 10 atriði um lundann sem þú þarft að vita, ef þú vilt teljast Íslendingur • Lundinn er kallaður prestur eða prófastur. Latneska fræðiheitið er Fratercula arctica og ungarnir heita kofa eða pysja. • Nefið er glæsilegast að sumri, viðhafnarbúningur settur upp í tilhugalífi. Á veturna er það litminna, fellur að hluta til af með fjöðrum. Það gerir líka skraut í kringum augun. • Í lundabölum eru lundahol-ur en fuglinn heldur tryggð við sína holu eftir að hann verður fullorðinn. • Holurnar eru að meðaltali 1,5 m á lengd. Þær jafna hita og vernda ungann sem er skilinn þar eftir 10 daga gamall svo að foreldrar komist bæði í fæðu- öflun. • Lundinn stundar ævilangt einkvæni. Æxlun á sér stað á sjó. • Lundinn er lúsugur (lundalúsin er í raun maur) og í lundabyggð þurfa menn að gæta sín á biti. Gúmmí- regngalli dugar vel ef gætt er að skálmum og ermum. • Enginn fugl hefur verið veiddur jafn mikið á Íslandi í gegnum tíðina. • Lundinn þarf að éta u.þ.b. hálfa líkamsþyngd á dag. • Lundinn tekur 10 vængja-slög á sekúndu og nær 70 km hraða. • Þróun lundans er að hluta hliðstæð þróun frænku hans í suðri, mörgæsar, enda er líkamsstaðan áþekk. verndar, segir að án nokkurs vafa sé lundinn orðinn verðmætastur ís- lenskra fugla. „Hingað kemur mik- ill fjöldi ferðamanna gagngert til að skoða fuglinn,“ bendir Jóhann Óli á. „Það hefur enginn reiknað það út en lundinn er örugglega búinn að slá út æðarfuglinn og tekjur af hon- um eru eflaust orðnar meiri en upp- safnaðar tekjur af æðardúninum.“ Eitt er víst að framleiðsla og inn- flutningur á alls kyns minjagripum sem tengjast lundanum eykst jafnt og þétt. Mörg fyrirtæki skipta t.d. á milli sín innflutningi á lundavör- um frá útlöndum, aðallega Kína. Erfitt getur reynst að meta umfang- ið, enda leikföng ekki flokkuð eftir dýrategundum í tollskýrslum. Toll- flokkurinn heitir bara „leikföng sem eru í líki dýra eða ómennsk.“ Kannski þarf að bæta við nýjum lundaflokki í tollskrána. Nýr þjóðarfugl? Á fyrsta áratug 21. aldar völdu landsmenn sér bæði þjóðarblóm (Holtasóley) og þjóðarfjall (Herðu- breið) og Jóhann Óli segir að þá hafi farið af stað umræða um þjóðar- fugl. Hins vegar hafi verið litið svo á að fálkinn ætti þann heiðurssess skilinn. „Við þessu hreyfði enginn mótmælum á þeim tíma,“ segir Jó- hann. Á listum yfir þjóðarfugla á netinu er fálkinn einmitt tengdur Íslandi. Fálkinn var í skjaldarmerki þjóðarinnar á árunum 1903-1919 og hann prýðir fálkaorðuna. Annar fugl sem sterklega kemur til greina sem þjóðarfugl er lóan, en ekki er fyllilega víst af hverju lundanum hefur vaxið ásmegin í þessu sam- bandi á síðustu árum. Jóhann Óli og þau hjá Fuglavernd eru þess fullviss að fálkinn sé enn þjóðarfugl Íslendinga á meðan Vestmannaeyingar tengja sig skilj- anlega lundanum. „Þó að einn stjórnmálaflokkur hafi stolið fálk- anum þá held ég að það sé engin ástæða til að skipta um þjóðar- Til leigu Bíldshöfði 9 110 Reykjavík www.heild.issími: 568 6787fyrirspurn@heild.is Heilsugæslustöð og heilsutengd starfsemi HEILD fasteignafélag dap Bíldshöfði 9 development architecture property Heilsugæslustöð og fyrirtæki með heilsutengda starfsemi hafa tryggt sér stóran hluta byggingarinnar að Bíldshöfða 9. Þar eru áhugaverð tækifæri fyrir tengda starfsemi. Bíldshöfðinn liggur sérstaklega vel að helstu samgönguæðum. Samkvæmt vinningstillögu að rammaskipulagi rís byggð fyrir 10 – 15 þúsund manns á Ártúnshöfða á næstu árum og liggur Bíldshöfði við mörk fyrirhugaðs íbúðarsvæðis. Enn eru lausir um 4.500 fm. Frátekið Heilsugæslustöð Frátekið

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.