Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.07.2016, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 16.07.2016, Blaðsíða 32
Var komin með ógeð og ætlaði að hætta Arna Stefanía náði frábærum árangri á sínu fyrsta stórmóti fullorðinna í frjálsum íþróttum um síðustu helgi. Henni fannst erfitt að upplifa bakslag eftir að vera talin rísandi stjarna á unglingsárunum og er glöð með að vera búin að ná sér aftur á strik. Hamingjusöm Arna er mjög glöð yfir því að vera loksins búin að ná sér almennilega á strik eftir nokkurra ára lægð. Hún segist hafa þrosk- ast mikið og sé hætt að hugsa um að sér geti gengið illa. Mynd | Hari Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Það bjuggust ekkert margir við einhverju af mér, enda er ég nýbyrj-uð í þessari grein. Ég var 36. á listanum og það voru 24 sem komust áfram í und- anúrslit. Það bjóst því enginn við því að ég kæmist áfram,“ segir Arna Stefanía Guðmundsdóttir grinda- hlaupari sem kom bæði sjálfri sér og öðrum á óvart með árangri sín- um á EM í frjálsum sem fór fram í Hollandi um síðustu helgi. Hún komst í undanúrslit í 400 metra grindahlaupi og bætti persónulegt met um hálfa sekúndu, en þetta var hennar fyrsta stórmót í flokki full- orðinna. Ætlaði að fá tvö hlaup „Þegar ég kom inn á völlinn þá ákvað ég bara að njóta þess að vera þarna. Ég var glöð og var ekkert að missa mig úr stressi. Ég var ánægð með að vera komin svona langt og allt annað var bónus. Svo kom ég önnur í mark og flaug inn í und- anúrslit,“ segir Arna glöð í bragði, en hún endaði í 18. sæti á mótinu. „Það veitir manni svo mikla ham- ingju þegar eitthvað gengur eftir sem maður er búin að vinna lengi að. Innst inni vissi ég alveg að ég gæti þetta en fólk í kringum mig var meira í því að segja mér að gera bara mitt besta og kannski draga aðeins úr væntingunum. En ég ætl- aði mér að fá tvö hlaup.“ Á góða möguleika Arna æfði áður sjöþraut en meiddist illa árið 2014 sem varð til þess að hún endurskoðaði keppnisgreinarn- ar sínar. „Ég og þjálfarinn minn, Ragnheiður Ólafsdóttir, ákváðum að prófa þessa grein í fyrra og það gekk strax mjög vel. Mér hefur alltaf þótt skemmtilegra að hlaupa en að kasta og stökkva. Og þegar maður er að finna sig vel í einhverri einni grein þá á maður bara að halda sig við hana. Ef ég fer aðeins niður í tíma þá er ég komin á mjög góð- an stað í heiminum. Ég held ég eigi góða möguleika á því að verða góð í þessu,“ segir hún nokkuð ákveðin. Barnastjarna og bakslag Strax sem unglingur þótti Arna mjög efnileg frjálsíþróttakona og var talin rísandi stjarna í sjöþraut- inni, en svo kom bakslag sem var henni erfitt. „Ég var hálfgerð barnastjarna þegar ég var 15 til 16 ára. Svo kom pása þangað til ég varð 18 ára og það var mjög erfitt tímabil. Þetta gerist oft með krakka, sérstaklega stelpur. Ég var bara að þroskast, að byrja í menntaskóla og svona. Var að hugsa svo mik- ið. Þegar ég var 15, 16 ára þá fór ég bara á mótin án þess að hugsa. En ég hef þroskast mikið og er hætt að hugsa um að mér gangi illa. Ég þarf samt að hugsa um matinn og svefn- inn og það kemur allt með auknum þroska.“ Ekkert gekk upp Arna var að því komin að hætta á sínum tíma, þegar ekkert var að ganga upp hjá henni. „Ég var kom- in með ógeð. Fannst allt snúast um þetta án þess að nokkuð gengi. Ég vissi það þegar ég mætti í hlaup að ég var ekki að fara að gera góða hluti, því formið var ekki gott. Ég var ekki á ná tíma sem ég hafði náð tveimur árum áður. Gleðin við að koma til baka er því ótrúlega mik- il og sterk. Ég byrjaði að koma til baka í fyrra og þetta er bara æði. Það er líka gott að finna að maður getur „performað“ á stórmóti, það er nefnilega svo auðvelt að „koxa“ þar,“ segir Arna og brosir. Hún er á blússandi siglingu núna og góður árangur gefur henni aukinn kraft og metnað til að standa sig enn bet- ur. „Ég held líka að það sé mun auð- veldra að fókusera á eina grein og ná hámarksárangri,“ bætir hún við. Stefnir á Tókýó 2020 Markmið Örnu er að komast á ólympíuleikana í Tókýó árið 2020, en hvað hún gerir eftir það er óvíst. Hún verður 21 árs í haust og á því nóg eftir sem íþróttamaður. „Ég verð bara 25 ára þegar næstu ólympíuleikar fara fram, sem þykir frekar ungt í þessari grein,“ segir Arna, en sumar konur eru að keppa langt fram á fertugsaldur. Arna segir það geta verið töluvert kostnaðarsamt að taka þátt í mótum erlendis. Frjálsíþróttasambandið borgar reyndar kostnaðinn við stórmót en til að ná árangri verður íþróttafólk reglulega að sækja minni mót erlendis, en þann kostnað þarf að greiða úr eigin vasa. „Stundum er hægt að fá styrki frá ÍSÍ, en þeir duga aldrei alveg. Ég er bara heppin að eiga góða foreldra sem styðja mig og hafa alltaf gert. Bæði fjárhags- lega og með því að fylgja mér á mót. Þau hafa mætt á öll mót frá því ég var pínulítil og ég held að það hjálpi mikið andlega að hafa einhvern sem stendur alltaf 100 prósent við bakið á manni,“ segir hún einlæg. Þarf að færa fórnir Arna lauk stúdentsprófi fyrir ári og í vetur starfaði hún í grunnskóla og við að þjálfa litla krakka sem voru að stíga sín fyrstu skref í frjálsum íþróttum. Í haust stefnir hún hins vegar á nám í lögfræði við HR. „Kærastinn minn er í lögfræði í HÍ og mér líst svo vel á það sem hann hefur verið að gera,“ útskýrir Arna sem er spennt fyrir því að takast á við nýtt verkefni í haust. Ljóst er að það verður nóg að gera hjá henni, enda æfir hún allt upp í átta, níu sinnum í viku. Sex sinn- um í viku með þjálfara og svo tekur hún léttari æfingar sjálf. Það gefst því ekki mikill tími til tómstunda- iðkunar og hún getur ekki leyft sér hvað sem er, en hún á stóran vina- hóp sem hún reynir að hitta eins og oft og hún getur. „Ég get ekki farið á tónleika með Beyoncé í London, því þá ruglast æfingarnar mínar. Ég var til dæm- is með miða á leikinn Ísland – Eng- land á EM í Frakklandi, en komst ekki. Ég var fyrst frekar fúl, en líf- ið mitt snýst bara um að hlaupa og þetta fer ekki saman. Stundum hugsa ég samt: „Djöfull er ég klikk- uð að vera að eltast við einhvern tíma og hoppa yfir grindur,““ segir hún kímin. „Ég fer heldur ekki með vinkonum mínum í verslunarferð til London, ég hef bara ekki tíma í það. En það kemur kannski seinna.“ Frekar leiðinlegt par Kærastinn hennar Örnu æfir hand- bolta með Val, og saman lifa þau og hrærast nánast alfarið í heimi íþróttanna. „Við gerum eiginlega ekkert annað á kvöldin en að rúlla okkur, borða hollan mat og fara snemma að sofa. Við erum frekar leiðinlegt par, þannig séð,“ segir Arna og skellir upp úr. „Við förum aldrei niður í bæ að djamma eða neitt slíkt og förum eiginlega aldrei út að borða. Við höfum til dæmis aldrei farið á Sushi Samba, sem er eitthvað sem öll pör hafa gert. En það er markmiðið að gera það þegar ég á afmæli. Og við höfum bætt okk- ur í að hitta vini í ís, bjóða í mat og svona.“ Arna telur að það geti verið erfitt fyrir íþróttafólk að vera í sam- bandi með einhverjum sem þekkir ekki álagið sem fylgir æfingum og keppni af eigin raun. „Ég held ein- faldlega að það myndi ekki ganga. Ég held að fólk átti sig ekki á því hvað maður getur verið eigingjarn og sjálfselskur þegar maður er að reyna að ná árangri. En við hjálp- um hvort öðru og bætum hvort ann- að. Við getum talað um það sem við erum að gera og skiljum hvort ann- að.“ …viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016 Ég var hálfgerð barnastjarna þegar ég var 15 til 16 ára. Svo kom pása þangað til ég varð 18 ára og það var mjög erfitt tímabil. Þetta gerist oft með krakka, sérstaklega stelpur. Ég var bara að þroskast, að byrja í menntaskóla og svona. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.