Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.07.2016, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 16.07.2016, Blaðsíða 34
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Við erum að taka hjól-reiðakeppni yfir á Reykjavíkurmaraþon-plan,“ segir Kjartan Freyr Ásmundsson, markaðs- og þróunarstjóri Íþrótta- bandalags Reykjavíkur, sem stend- ur fyrir hjólreiðakeppninni Tour of Reykjavík sem fer fram þann 11. september næstkomandi. En skrán- ing hófst í vikunni. Boðið verður upp á þrjár vegalengdir í keppn- inni; 110 km, 40 km og 13 km, ásamt sérstakri barnabraut, þannig að allir ættu að geta tekið fundið erfiðleikastig við sitt hæfi. Lítil börn og keppnisfólk „Við minntumst á þetta við borgina, hvort það væri áhugi á því að halda svona viðburð og áhuginn var svo mikill, bæði frá borgarstjóra og Höf- uðborgarstofu, að það var ákveðið að slá strax til, en ekki bíða fram til 2017, eins upphaflega til stóð. Áhuginn á hjólreiðum hér á landi er líka gríðarlegur en það hefur aldrei áður verið haldinn hjólreiðaviðburð- ur af þessu tagi á Íslandi.“ Götum lokað í fyrsta skipti Kjartan bendir á að vissulega séu margir hjólaviðburðir af ýmsu tagi haldnir víða um land, en hann segir tvennt einkenna þennan nýja við- burð, sem ekki hefur verið gert áður. „Það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru lítil börn eða keppnisfólk, eða almenningur sem langar að taka hjólið sitt fram og hjóla 13 kílómetra á lokaðri braut í miðborg Reykjavíkur. Sem gerist mjög sjaldan.“ En að sögn Kjartans verð- ur einmitt ráðist í götulokanir í Reykjavíkurborg af áður óþekktri stærðargráðu. „Þessi borgarhring- ur sem allir fara er þannig að það er verið að fara að loka götum sem aldrei hefur verið lokað áður. Við hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur, sem höfum haldið marga viðburði, erum því mjög ánægð með viðbrögð hjólreiðafólks sem virðist vera mjög ánægt með að geta fengið að hjóla á götum borgarinnar með þessum hætti. Ég persónulega hef aldrei fundið fyrir meiri áhuga á einum viðburði áður,“ segir Kjartan sem mjög spenntur fyrir keppninni. Hann mun þó sjálfur ekki geta tekið þátt, enda þarf hann að sjá um að allt skipulag gangi upp. „Þetta er svo að sjálfsögðu allt unnið í góðu samstarfi við hjólreiðafélögin,“ bætir hann við. Verðlaun renna til Hjólakrafts Andvirði þátttökuverðlauna í Tour of Reykjavík munu renna til Hjóla- krafts, sem stendur fyrir hjólanám- skeiðum fyrir ungt fólk sem vill taka upp heilbrigðari lífsstíl. En Hjóla- kraftur hefur einmitt umsjón með barnabrautinni sem verður staðsett í Laugardalnum. „Við byrjum og end- um í Laugardalnum og ætlum að búa til góða fjölskyldustemningu þar. Vonandi verða einhverjir básar, tjöld og fjör. Þannig getur fólk komið þar saman, fjölskyldur og áhorfendur.“ Kjartan vonast líka til þess að það að hafa keppnina í september verði til að lengja hjólasumarið fyrir Ís- lendinga. „Fólk hættir oft að hjóla þegar skólarnir byrja, enda er þetta mikið fjölskyldusport. Við vonum að með þessu lengist tímabilið um þrjár til fjórar vikur og þetta verði hátíð hjólreiðafólks, eins og Reykjavíkur- mararþon er fyrir hlaupara. Hjólreiðakeppni fyrir alla Kjartan hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur er einn þeirra sem kemur að skipulagningu Tour of Reykjavík sem verður haldin í fyrsta skipti þann 11. september næstkomandi. Mikill áhugi Kjartan segist aldrei hafa fundið fyrir jafn miklum áhuga á áður á einum viðburði. Mynd | Hari110 kílómetrar Hér má sjá leiðina sem farin er í lengstu vegalengdinni. Þessi borg- arhringur sem allir fara er þannig að það er verið að fara að loka götum sem aldrei hefur verið lokað áður. …heilsa 6 | amk… LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016 Inulin hjálpar til við niðurbrot á innri fitu. Inulin – trefjar fyrir meltinguna Inulin er nýtt og 100% náttúrulegt bætiefni frá Natures Aid sem hefur slegið í gegn í Bretlandi. Inulin eru vatnsleysanlegar trefjar unnar úr kaffifífli sem bæta meltinguna og efla fjölgun vinveittra gerla í þörmunum. Unnið í samstarfi við Artasan Vatnsleysanlegar trefjar sem bæta meltingu og auðvelda hægðalosun. Inulin eru vatnsleysan- legar trefjar sem svipar til psyllum husk. Þessar trefjar finnast í lauk, blaðlauk, hvít- lauk, banön- um, spergli og í kaffifífli (sikoría) en í Inulin eru þær fyrst og fremst úr því síðastnefnda. Inulin er prebiot- ics sem þýðir að það er góður áburður eða fæða fyrir góðu gerlana í þörmunum og því góð leið til að styrkja ónæmiskerf- ið. Melting og innri fita • Inulin bætir meltinguna og með nægilegu vökvamagni auðveldar það hægðalosun. • Inulin eflir fjölgun vinveittra gerla í þörmunum og þá sér- staklega bifidobacteria. Hátt hlutfall þessara gerla hjálpar til við niðurbrot á trefj- um, fóðrar þarmaveggina og hafa einnig góð áhrif á ónæm- iskerfið. • Inulin hefur jákvæð áhrif á (heildar) kólesteról og þríg- lýseríð í blóði. • Innri fita er hættu- lega fitan sem við sjáum ekki en hún umlykur líffærin okkar og get- ur valdið miklu heilsutjóni ef það er of mikið af henni. Inulin hjálpar til við niður brot á þessari fitu. Þegar þessar trefjar koma í þarmana, verða til ýmis kon- ar fitusýrur sem hafa góð heilsufarsleg áhrif á okkur. Þetta eru t.d. aceta- te, proprionate og butyrate fitusýrur sem hjálpa til við niðurbrot á innri fitu og geta auð- veldað upptöku á steinefnum eins og kalki, magnesíum, fosfór, kopar, járni og sinki. Minna hungur-meiri hamingja Trefjar eru mikil heilsubót fyrir alla því það er allt of algengt að við fáum ekki nægilega mikið af þeim úr fæðunni. Þær taka pláss þegar þær drekka í sig vökva og hægja á meltingunni og draga þannig úr sveiflum á blóðsykrin- um. Við erum minna svöng og verðum glaðari. Fæða fyrir þarmaflóruna Inulin er, eins og áður sagði, prebiotics og því góð fæða fyrir þarmaflóruna. Hafa ber í huga að inulin er líka fóður fyrir óvin- veitta gerla og er t.d. ekki ráðlegt fyrir fólk með iðrabólgu (IBS) að nota efnið. Inulin er engu að síður afar gott og mikil heilsubót fyrir flesta. Það er á duftformi og bragðlaust og því auðvelt að strá því yfir graut, setja í þeyting eða blanda í vatn eða safa. Sölustaðir: Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Vesturlands, Austurbæj- arapótek, Garðsapótek og allar Hagkaupsverslanir. Inulin bætir meltinguna og eflir fjölgun vinveittra gerla í þörmunum.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.