Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.07.2016, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 16.07.2016, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 16. júlí 2016 Það eru bara aðeins of margir Frakkar hérna,“ sagði leigu-bílstjórinn glottandi á leið frá f lugvellinum í Nice á dögunum þegar stefnt var að sigri Íslands á móti Englandi á leik- vanginum utan við borgina. Sjálfur var leigubílstjórinn eins franskur og þeir verða, hárlaus á kollinum og þráðbeinn og langur eins og baguetta. „Ég á við að hér eru að- eins of margir Parísarbúar,“ hélt hann áfram. „Þau þarna norður frá öfunda okkur af þessu afslappaða fjölmenningarlega andrúmslofti og auðvitað af allri sólinni og bláa sjón- um. Veðurfréttatímarnir í sjónvarp- inu í París setja alltaf rigningu yfir okkur, en hér er samt alltaf sól.“ Leigubílstjórinn hafði rétt fyrir sér. Sólin skein og þetta virkaði strax á mann sem afslöppuð borg. Faðmur hennar stóð opinn. Á næsta götu- horni við svefnstaðinn var matar- markaður með ferskt grænmeti og litríkt kjöt. Þarna komu kaup- mennirnir úr menningarheimi araba, viðskiptavinirnir úr mörgum öðrum áttum en samt úr þessum skemmtilega suðupotti sem borgin er. Viðskiptavinum var heilsað af virðingu og viðskiptin gengu líflega og fljótt fyrir sig. Matvörurnar voru allar ferskar og fallegar, rétt eins og samskipti fólksins þennan morgun. Það var stórkostlegt að fara til Frakklands og horfa á fótbolta og mannlíf. Auðvitað var spennustig- ið hátt, það fann maður helst heimkominn þegar slaknaði á öllu saman. Lögreglumennirnir brostu hlýlega þegar við þökkuðum þeim fyrir gæsluna á leiknum, en þeir slepptu ekki byssunni og takið um hana var þéttingsfast. Mótinu lauk og engin háalvarleg at- vik komu upp. Til stóð að Frakkland myndi nú reyna að slaka aðeins á. Hollande forseti tilkynnti á þjóðhá- tíðardaginn að neyðarlögin, sem hafa verið í gildi frá árásunum í Par- ís í nóvember síðastliðnum, myndu renna út í lok þessa mánaðar. Svo breyttist allt þann sama dag, á sjálf- an Bastilludaginn, suður í Nice. Eft- ir árásina hryllilegu boðar Hollande nú aukna hörku í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þetta einkennilega og sorglega stríð gegn ósýnilegum óvinum heldur áfram. Bastilludagurinn á sér uppruna í of- beldi. 14. júlí árið 1789 réðst æstur lýðurinn í París að Bastillunni, rammgerðu fangelsi sem var tákn fyrir kúgun yfirstéttarinnar, gamla valdsins. Brátt átti að kollvarpa öllu og nýtt upphaf varð skipun dags- ins. Franska byltingin hófst en hún kjarnaði þrjár af bestu hugmyndum sem við þekkjum og reynum flestöll að tileinka okkur: Frelsi, jafnrétti og bræðralag. Stolt Frakka yfir þessum hugmyndum skynjar maður greini- lega. Þeir mega líka eiga það að hug- myndirnar eru góðar eins og margt annað í franskri menningu. Árásin hryllilega, með vopnfylltum vörubíl í Nice í fyrradag, er ætluð sem yfirlýsing um það að Frakkar og Vesturlönd almennt fái ekki að slaka á. Til stendur að rækta áfram martröðina og viðhalda hræðslunni í brjóstum landsmanna. Árásin er byggð á dólga-hugmyndafræði þar sem allar málamiðlanir eru bannað- ar og enginn vilji er til samræðu og samstarfs. Slíkur dólgsháttur finnst víða, því miður. Hann er afsprengi skepnuskapar, fáfræði, heilaþvottar og hræðslu þess sem aðeins trúir á hnefaréttinn og sér varla fram fyrir eigið nef í hatri sínu. Í Nice skín sól. Það er engin rigning í kortunum. Eftir situr eitt stærsta, fjölbreyttasta og magnaðasta menn- ingarsamfélag Evrópu í sárum og einhvern veginn við öll líka. Mátt- leysið er átakanlegt og nístandi spurningar leita á hugann. Eftir stutt stopp í Nice er borgin í huga manns nokkurs konar paradís. Blátt hafið úti fyrir ströndinni leitar enn inn í draumana. Blái liturinn er ólýsanlegur og sjórinn er saltur. Þarna er gott að láta sig fljóta. Hand- an við sjónarrönd taka síðan við önnur stór lönd með öðrum áskor- unum og vandamálum, lönd eins og Túnis, Alsír og Marokkó, þaðan sem margir Frakkar koma. Minningarnar verða ekki auðveld- lega teknar af okkur. Stundum er maður þakklátur og glaður með það, stundum hryggur og leiður. Guðni Tómasson NICE Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.