Fréttatíminn - 16.07.2016, Qupperneq 37
„Við erum mjög mikil sófadýr og
finnst fátt betra en að hafa það
náðugt yfir góðu sjónvarpsefni.
Við verðum þó að viðurkenna að
við erum báðar með veikan blett
fyrir lélegum raunveruleikaþátt-
um og fylgjumst af kappi með The
Bachelorette um þessar mundir.
Vinnan okkar beggja krefst þess
að við afköstum miklu, svo það
getur verið fínt að koma heim og
slökkva á heilanum á sér stund-
um. Við höfum því líka fylgst með
Masterchef og Survivor, svo eitt-
hvað sé nefnt. Þess á milli horfum
við á nýjustu seríuna af Orange Is
The New Black, þar sem lesbískt
fangelsisdrama getur ekki klikkað.
Það eru nokkrar þáttaseríur sem
við höfum fylgst með sem standa
upp úr, eins og Breaking Bad, Mr.
Robot, How To Get Away With
Murder og The Jinx. Við horfðum
líka á Making a Murderer þegar
það kom út og klóruðum okkur í
höfðinu yfir því. Fyrir tveimur árum
horfðum við svo á allar seríurnar
af Friends saman þar sem Ingileif
hafði aldrei séð þær. Svo höfum
við mjög gaman af 30 Rock.
Við horfum of sjaldan á bíó-
myndir en fórum reyndar í bíó
um daginn á Me Before You. Það
brutust nú fram nokkur tár þá.
Nokkrum dögum seinna fórum við
svo aftur í bíó með stráknum okkar
og þá á Finding Dory. Hún var al-
veg frábær.“
Sófakartaflan
Ingileif Friðriksdóttir
og María Rut Kristinsdóttir
Slökkva á heilanum eftir vinnu
Mæðgurnar sem
margir muna eftir
Netflix Gilmore Girls.
Vafalaust
muna margir
eftir mæðg-
unum Lorelai
og Rory
Gilmore sem
birtust fyrst á
skjánum árið
2000. Allar sjö
þáttaraðirnar eru nú aðgengilegar
á Netflix og auðvelt að gleyma sér
í þeim tímunum saman. Lorelai er
einstæð móðir sem elur dóttur
sína upp í smábænum Stars
Hollow. Við fáum að fylgjast með
sorgum þeirra og sigrum ásamt
ævintýrum annarra litríkra
karaktera sem í bænum búa.
Sannsöguleg
mynd með Antonio
Banderas
RÚV Take the Lead laugardagur
klukkan 20.40.
Kvikmynd byggð á sannsögu-
legum atburðum um danskennara
sem fenginn er til þess að kenna
vandræðaunglingum dans. Ýmsir
hlutir flækja þó verkefnið, eins og
til dæmis brotin sjálfsmynd
unglinganna og viðhorf þeirra í
garð annarra. Með aðalhlutverk
fara Antonio Banderas, Rob
Brown og Yaya DaCosta.
Hæfileikar út
um allan heim
Stöð 2 Planet ś
Got Talent
sunnudagur
klukkan 20.
Virkilega
skemmtilegir
þættir fyrir
alla fjöl-
skylduna,
sérstaklega þá sem
fylgst hafa með Got Talent
þáttunum frá hinum ýmsu
löndum. Hér er farið yfir eftir-
minnilegustu atriðin og eins og
flestir vita þá eru keppendur í
þessum þáttum misjafnlega vel
undirbúnir fyrir þáttöku sína en
allir ætla þeir sér að slá í gegn.
Klassík með
Hugh Grant og
Julia Roberts
Netflix Notting Hill.
Dásamleg kvikmynd sem
margir hafa séð en hún er vel
þess virði að horfa á aftur. William
Tucker rekur fornbókabúð og dag
einn gengur ein helsta kvik-
myndastjarna heims, Anna Scott,
inn í búðina hjá honum. Stuttu
eftir að Anna yfirgefur búðina
rekst William aftur á hana á
götuhorni þar sem hann skvettir
ávaxtasafa yfir hana alla. Hann
býður henni að hafa fataskipti á
heimili sínu í næsta nágrenni og
þiggur hún boðið. Að loknum
fataskiptum þakkar Anna William
fyrir sig með kossi – og líf hans
verður aldrei samt.
Uppteknar konur Ingileif og María eru með veikan blett fyrir raunveruleikaþáttum á borð
við The Bachelorette, Masterchef og Survivor eftir langan vinnudag. Mynd | Hari
Eftir að bækurnar okkar Heilsuréttir ölskyldunnar
og Nýir heilsuréttir komu út kom í ljós að fólk hefur
því miður ekki alltaf tíma til þess að elda næringar-
ríkan mat frá grunni eins og það vildi gera, m.a.
til þess að forðast aukaefni og of mikinn sykur.
Þannig að fljótlega varð okkar næsta verkefni
að búa til heilsurétti án aukaefna, viðbætts
sykurs, eins og maturinn væri í raun matreiddur
í eldhúsinu heima, en samt hægt að kaupa
tilbúna úti í búð. Við höfum útbúið þrjá nýja
heilsurétti, Grænmetislagsagna, Gulrótarbu
og Indverskar grænmetisbollur. Bragðgóðir
réttir, fullir af þarflegum næringarefnum.
Bestu kveðjur, Berglind og Siggi.
Hollusturettir
…sjónvarp9 | amk… LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016