Fréttatíminn - 16.07.2016, Qupperneq 40
alla föstudaga
og laugardaga
Farðu í útilegu
Það virðar vel til ferðalaga víða um land um helgina og það er um að gera að
pakka saman tjaldinu, halda á vit ævintýranna og sóla sig í sveitum landsins.
Deilt á Twitter
Útvarpsmaðurinn Svali lét
umdeilt tíst frá sér á dögunum.
Þar varpar hann fram þeirri
hugmynd að það hljóti að vera
kvenhormón í áfengi „því alltaf
þegar maður drekkur byrjar
maður að röfla og hættir að geta
keyrt.“ Sumum þótti tístið fyndið
en fleirum þótti skrifin úrelt og
karlrembuleg. Söngkonan Salka
Sól svaraði tístinu og sagði það
„frekar mikið sökkað tweet“ við
miklar undirtektir. Svali sagðist
ekki vera kominn lengra en þetta
og þótti tístið „hryllilega fyndið.“
Mick Jagger á von á sínu áttunda barni
Kærastan er 29 ára ballerína.
Nóg að gera Söngvarinn á von á sínu
áttunda barni með fjórðu konunni.
Söngvarinn og einn stofnenda
hljómsveitarinnar Rolling Stones,
Mick Jagger 72 ára, á von á sínu
áttunda barni með kærustu sinni,
samkvæmt The Sun. Kærastan hans
er 29 ára gömul ballerína og heit-
ir Melanie Hamrick. Þau hafa verið
saman í 2 ár. Þetta mun vera henn-
ar fyrsta barn en fyrir á Mick sjö
önnur börn, með fjórum konum.
Börnin heita Georgia, James, Jade,
Elizabeth, Lucas, Karis og Gabriel
og elsta barnið er 45 ára og yngsta
er 17 ára.
Mick hefur aðeins kvænst einu
sinni, en hann var kvæntur Bi-
anca Jagger og þau áttu eina dóttur
saman, Jade.
Mick er ekki sá eini í Rolling Sto-
nes sem er að fjölga mannkyninu
því Ronnie Wood eignaðist tvíbura
fyrir skemmstu.
Missti 50 kíló
Líkt og landsmenn þekkja er
Valdimar andlit Reykjavíkurmara-
þonsins í ár. En hann tók þá
ákvörðun að skera upp herör
gegn ofþyngd sinni, líkt og hann
segir sjálfur frá. Undirbúningurinn
gengur vel en söngvarinn tjáði að
hann hefði misst 50 kíló af fitu og
bætt á sig 27 kílóum af massa
síðan átakið hófst. Rúmlega
mánuður er til stefnu og hægt er
að fylgjast með ferðalagi kappans
á Snapchat undir minaskorun.
Vaggað og velt á
Nasa
Margt var um manninn á Nasa
þegar Emmsjé Gauti frumflutti
nýjustu plötuna sína Vagg og
velta. Dóri DNA átti sína innkomu
en hann er á meðal listamanna
sem koma fram á plötunni.
Fyrirliði íslenska landsliðsins,
Aron Einar, var augljóslega
ánægður með gestgjafa kvöldsins
og birti mynd af þeim saman og
sagði Gauta vera trylltan.
KÆLDU ÞIG UPP & NIÐUR Jóker er seiðandi og ljúffengur jarðarberjapinni
frá Kjörís, með salmíakfyllingu og hjúpaður sterkri
lakkrísdýfu. Sætt og sterkt í fullkomnu jafnvægi.
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT