Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 09.09.2016, Side 6

Fréttatíminn - 09.09.2016, Side 6
Afgreiðslutími sjá www.dorma.is Holtagörðum, 512 6800 Smáratorgi, 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafjörður Fyrir þínar bestu stundir NATURE’S LUXURY heilsurúm Aðeins 142.490 kr. Nature’s Luxury heilsudýna með Classic botni. Stærð: 180x200 cm. Fullt verð: 189.900 kr. 25% AFSLÁTTUR Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. Aðeins 49.900 kr. Plano svefnsófi Click – Clack svefnsófi. Grátt og rautt slitsterkt áklæði. Svefnsvæði: 120 x 190 cm. Fullt verð: 59.900 kr. 10.000 króna AFSLÁTTUR Nettur Þú finnur nýja bæklinginn okkar á www.dorma.is Smáratorg | Holtagarðar | Akureyri | Ísafjörður www.dorma.is NATURE’S LUXURY heilsurúm Aðeins 142.490 kr. Nature’s Luxury heilsudýna með Classic botni. Stærð: 180x200 cm. Fullt verð: 189.900 kr. Fyrir þínar bestu stundir 25% AFSLÁTTUR Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. HELSINKI rúmgafl Rúmgafl fæst í svörtu og hvítu PU leðri og í gráu áklæði. Stærðir: 120, 140, 160, 180 cm.Verð að neðan miðað við rúmbreidd 120 cm. Fullt verð: 39.900 kr. 20% AFSLÁTTUR Aðeins 31.920 kr. 6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 9. september 2016 Bann við arði innleitt í heilsugæsluna Heilbrigðismál Læknir sem opnar einkarekna heilsugæslustöð furðar sig á arðgreiðslubanni innan heilsugæslunnar á höfuð- borgarsvæðinu. Sjúkra- tryggingar Íslands hafa eftirlit með arðgreiðslubann- inu. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Arðgreiðslubann úr einkarekn- um heilsugæslustöðvum á höfuð- borgarsvæðinu mun verða til staðar í hverjum nýjum samningi um slík- an rekstur sem Sjúkratryggingar Ís- lands gera hér eftir. Sjúkratryggingar Íslands tilkynntu í vikunni að búið væri að undirrita samninga um tvær einkareknar stöðvar á Bíldshöfða og Urriðhvarfi í Kópavogi. Samningarn- ir eru til fimm ára og gerð krafa um að heilsugæslustöðvarnar séu að meirihluta í eigu heilbrigðisstarfs- fólksins sem vinnur á þeim. Í svari frá heilbrigðisráðuneytinu kemur fram að arðgreiðslubannið eigi ekki við um gildandi samninga Sjúkratrygginga við einkareknar heilsugæslustöðvar, til dæmis Sala- og Lágmúlastöðina. „Þegar þeir samningar renna út er hins vegar miðað við að bann við arðgreiðsl- um verði áskilið í nýjum samn- ingum, þannig að rekstraraðilar heilsugæslustöðva á höfuðborgar- svæðinu sitji við sama borð óháð eignar- og rekstrarformi.“ Eigendur heilsugæslustöðvarinnar í Salahverfi greiddu sér til dæmis 194 milljóna króna arð út úr starfseminni á árun- um 2008 til 2014. Sjúkratryggingar Íslands munu sjá um að arðgreiðslubanninu verði framfylgt með eftirliti. Steingrím- ur Ari Arason, forstjóri stofnunar- innar, segir um þetta. „Við mun- um bara kalla eftir ársreikningum þessara fyrirtækja og fylgjast með því hvort það komi til arðtöku eða ekki.“ Einn af læknunum sem stendur að heilsugæslustöðinni í Urriðahvarfi, Teitur Guðmundsson, segir að hon- um þyki „sérstakt“ að þetta rekstr- arform sé tekið út fyrir sviga innan einkarekinnar heilsugæslu á Íslandi. „Þetta er öðruvísi en með öll önn- ur fyrirtæki í rekstri. En við ákváð- um að bjóða í þetta engu að síður og undirgöngumst þær kröfur sem samningurinn felur í sér.“ Teiti Guðmunds- syni lækni finnst arðgreiðslubannið skrítið en segir að hann undirgangist þær kröfur sem gerð- ar eru til nýju einka- reknu heilsugæslu- stöðvanna. Fjármál Skuldirnar sem hvíla á höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins tvöföld- uðust í fyrra. Ríkisbankinn Landsbankinn er lánveit- andi flokksins. Ríkisendur- skoðandi segir stofnunina ekki sinna eftirliti með lántökum stjórnmálaflokka, almennt séð. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Valhöll, höfuðstöðvar Sjálfstæð- isflokksins við Háaleitisbraut, er veðsett Landsbankanum fyrir 360 milljóna króna láni. Lánið var tek- ið fyrir tæpu ári og er nú eina lánið sem hvílir á húsnæðinu. Þetta kem- ur fram í veðbandayfirliti Valhall- ar. Með lánveitingunni tvöfölduð- ust skuldirnar sem hvíla á Valhöll. Verðmæti Valhallar nemur rúm- lega 480 milljónum króna, sam- kvæmt fasteignamati næsta árs. Landsbankinn er í meirihluta- eigu íslenska ríkisins og heldur Bankasýsla ríkisins, sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðu- neytið, á hlutabréfunum í honum. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er fjármála- og efnahagsráðherra og heyrir Banka- sýslan því undir hans ráðuneyti. Bjarni var einn þeirra sem skrif- aði undir lánið frá Landsbank- anum sem formaður Sjálfstæð- isflokksins. Meðal annarra voru Hanna Birna Kristjánsdóttir, Ragn- heiður Ríkharðsdóttir og Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Fréttatíminn reyndi að ná tali af Þórði vegna veðsetningar Valhallar en án ár- angurs. Með láninu voru þrjú eldri lán við Íslandsbanka greidd upp og fluttust þau af veðbókarvottorði Sjálfstæðisf lokksins í kjölfarið. Þessi lán voru upphaflega að verð- mæti 15, 40 og 125 milljóna króna. Tvö síðarnefndu lánin voru tek- in eftir hrunið árið 2008 og sagði Jónmundur Guðmarsson, þáver- andi framkvæmdastjóri Sjálfstæð- isflokksins, frá því í DV í janúar árið 2013 að veðsetning Valhall- ar tengdist ekki endurgreiðslu á prófkjörsstyrkjum til FL Group og Landsbanka Íslands sem veitt- ir voru fyrir hrun. „Umrætt lang- tímalán tengist á engan hátt endur- greiðslu styrkjanna. Almennar rekstrartekjur flokksins eru nýtt- ar til endurgreiðslu styrkjanna.“ Þá höfðu 18 milljónir af 55 milljónum krónum verið endurgreiddar út af styrkjunum. Endurgreiðsla styrkj- anna setti því strik í reikninginn í fjárhag Sjálfstæðisflokksins eftir hrun. Ekki hefur spurst til frekari endurgreiðslna eftir þetta en flokk- urinn hætti að svara fyrirspurnum um málið árið 2014. Fjármál íslenskra stjórnmála- flokka hafa verið talsvert til um- ræðu á Íslandi á síðstu árum, sérstaklega skömmu eftir efna- hagshrunið árið 2008. Prófkjörs- styrkir frá stórfyrirtækjum til stjórnmálamanna og stjórnmála- flokkanna vöktu þá mikla athygli. Öfugt við 50 milljóna króna lánið sem hvílir á höfuðstöðvum Fram- sóknarflokksins, sem sagt er frá á forsíðu Fréttatímans í dag, þá er hins vegar alveg ljóst hver lánveit- andi Sjálfstæðisflokksins er. Ríkisendurskoðun hefur eftirlits- hlutverk með ákveðnum þáttum í fjármálum stjórnmálaflokka, með- al annars styrkveitingum til flokka og frambjóðanda í aðdraganda kosninga. Sveinn Arason ríkis- endurskoðandi segir hins vegar að almennt séð fari stofnunin ekki í nákvæma greiningu á bókhaldi stjórnmálasamtaka, meðal annars lántökum þeirra hvers konar. „Okkar hlutverk er fyrst og fremst að kanna hvort fjármál flokkanna og frambjóðendanna séu innan þeirra marka sem löggjöfin setur.“ Þá skiptir almennt séð heldur ekki máli hver lánveitandi stjórnmála- flokkanna er. Valhöll veðsett fyrir 360 milljóna króna láni Myndlist Ekkja Ólafs Lár- ussonar, Sigrún Bára Frið- finnsdóttir, hefur gefið Nýlistasafninu mikið magn efnis úr vinnustofu Ólafs sem spannar tvo áratugi, frá og í kringum 1970-1990. Þar með talið hluta af persónulegu bókasafni hans, filmusafni, negatíf- ur og upptökur af gjörningum og margt fleira. Nýlistasafnið mun f lytja sýn- ingarrými sitt í Marshall-húsið út á Granda í byrjun næsta árs ásamt Kling og Bang galleríi og Ólafi El- íassyni. Sýningin, sem jafnframt mun opna nýtt rými safnsins við höfn- ina, verður yfirlitssýning á verk- um Ólafs ásamt heimildum um gjörninga hans og öðru efni sem ekki kom fyrir sjónir almennings á meðan hann lifði. Sýningin mun einnig innihalda verk úr safneign Listasafns Íslands og Listasafni Reykjavíkur ásamt verkum í einka- eign, frá vinum og vandamönnum Ólafs sem og söfnurum. Þess má geta að þann 10. septem- ber hefði Ólafur fagnað 65 ára af- mæli sínu, en hann lést 4. desember 2014. | vg Opna Marshall-húsið með verkum Ólafs Lárussonar Ólafur Lárusson lést í desember árið 2014. Skuldirnar sem hvíla á höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins, Valhöll, tvöfölduðust í fyrra þegar 360 milljóna króna lán var tekið hjá Landsbankanum. Mynd | Hari

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.