Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 09.09.2016, Qupperneq 42

Fréttatíminn - 09.09.2016, Qupperneq 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 9. september 2016 Stelpur Filma! verður haldið í annað skipti nú í ár í samstarfi Riff og Reykjavíkurborgar. Þetta árið koma 12 erlendar stelpur á námskeiðið, frá Finnlandi og Færeyjum. Kynjahallinn í kvikmyndabransan­ um er alþjóðlegt vandamál að mati Söndru Guðrúnar, skipuleggjanda námskeiðsins: „Þeim í Fær eyjum og Finnlandi fannst þetta vera mjög áhugavert verkefni. Þau sem við hittum þar voru mjög með vituð um vandamálið. Það var mikill áhugi þegar það var auglýst eftir þátttakendum. Við viljum víkka sjóndeildarhringinn hjá bæði ís­ lensku og erlendu stelpunum, þær vinna saman, gista saman og ræða mikilvæg málefni.“ Byggt á Stelpur rokka Með Stelpur filma! er stuðlað að því að leiðrétta þennan kynjahalla með því að bjóða upp á rými þar sem stelpur er hvattar til kvikmynda­ gerðar með því að gefa þeim næði til að þroska sína hæfileika og mynda tengsl við kvenkyns fyrir­ myndir: „Markmið okkar er að leggja okkar að mörkum að reyna leiðrétta kynjaskekkju í kvikmynda­ bransanum. Hvetja stelpur til að koma og taka þátt. Þær hafa mikinn áhuga en það skilar sér t.d. ekki í kvikmyndaklúbbum framhalds­ skólanna. Það er af einhverjum ástæðum sem maður hefur ekki alveg skýringar á. Okkur datt í hug að þetta gæti verið einhver lausn,“ segir Sandra Guðrún. Er eitthvað sem þú vilt segja við stelp- ur á þessum aldri sem vilja koma? „Þessi bransi er jafnt fyrir stelpur og stráka, þú þarft ekki að kunna neitt, það þarf enginn að kunna neitt til þess að byrja á þessu námskeiði. Bara prófa sig áfram, maður lærir ekki nema að taka áhættuna.“ | hdó Stelpur filma! Kynjahallinn leiðréttur Kynjahallinn í kvikmynda- bransanum er alþjóðlegt vandamál. MC Drullusokkar er mótor hjólagengi, u pp- runnið í Vest mannaeyjum. Það var stofnað 4. maí 2006 og er því 10 ára í ár. Eina reglan til að gerast fé- lagi er að félags maðurinn þarf sannarlega að hafa átt heima í Vestmannaeyj- um. Finnur Bjarkason er undantekning reglunnar. Helga Dögg Ólafsdóttir helgadogg@frettatiminn.is Finnur ólst upp í Vík í Mýrdal og hefur búið þar í 79 ár, síðan hann fæddist, og hefur hjólað og trommað síðan hann man eftir sér. Hann skellir sér á hjólið mjög reglu­ lega en íhugar að hætta bráðum vegna aldurs. Mótorhjólaferillinn Finnur hefur verið á hjóli síðan hann var 13 ára. Kennari frá Vestmanneyjum, Símon Waag­ fjörð, kynnti honum starfsemi Drullusokka þegar hann kom og kenndi stærðfræði. „Hon­ um fannst leiðinlegt að vera hér einn, þannig við tókum okkur saman fjögur, ég og dóttir mín og tengda sonur og hann og við byrjuðum að hjóla,“ segir Finnur um kynni sín af genginu. Hljómsveitarárin „Fyrsta ballið sem ég spilaði á var árið fyrir fermingu sem var á hestamannaballinu í braggan­ um í Pétursey. Ég hætti nú að spila í ákveðinn tíma því ég var hættur að þekkja börnin mín, fór að vinna klukkan 7 á morgn­ ana og var ekki kominn heim fyrr en um 9, 10 á kvöldin. En svo byrjaði ég aftur eins og asni, það eru orðin 15 ár síðan en ég hætti núna um daginn endan­ lega, held að ég sé alveg hættur,“ segir Finnur um reynslu sína innan tónlistarbransans. Fjölskylda Finns er byrjuð að hafa áhyggjur af áhættuáhuga­ málum hans á háum aldri: „Dæt­ ur mínar eru búnar að biðja mig um að hætta að hjóla, svo ég detti ekki og drepi mig. Ég er alltaf á hjólinu en ég er að reyna að hætta til að þóknast dætrun­ um. Strákarnir hjóla samt með mér,“ segir Finnur og hlær. Dætur mínar eru búnar að biðja mig um að hætta að hjóla, svo ég detti ekki og drepi mig, segir Finnur Bjarkason. Mynd | Friðrik Þór Halldórsson 79 ára „drullusokkur“ Hvítur fagur páfagaukur er nú í fóstri hjá arkitektastofunni T.ark í Brautarholti. Þar hefur hann verið í pappakassa undanfarna daga. „Hann flaug að svölunum hjá okkur í kaffitímanum á miðviku­ dag. Við starfsmennirnir sáum hann koma og tókum hann inn. Við höfum reynt að búa ágætlega um hann, settum hann í pappa­ kassa og gáfum honum epli og vatn að drekka. Það stendur nú reyndar til að reyna að redda búri fyrir hann í dag. Ef enginn eigandi finnst þá má hann vera hér í smá stund,“ segir Sigríður Margrét Einarsdóttir, tímabundin fóstur­ móðir  fuglsins. Hvernig ber hann sig? „Honum líður ágætlega, svona eftir atvikum, en lætur í sér heyra inn á milli.“ Þeir sem telja sig þekkja fuglinn eru beðnir um að hafa samband við T.ark arkitektastofu. | þt Hvítur gári heldur nú til á arki- tektastofunni T.ark á meðan eiganda hans er leitað. Týndur páfagaukur í fóstri á arkitektastofu Finnur fær sér kaffi eftir hjó la ævintýrið í Vík. Mynd | Friðrik Þór Halldórsso n „Ég er að reyna að hætta til að þóknast dætrunum. Strákarnir hjóla samt með mér.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.