Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 09.09.2016, Side 54

Fréttatíminn - 09.09.2016, Side 54
Vin í amstri hversdagsleikans Hilton Reykjavík Spa er þekkt fyrir gæði og fagmennsku í nuddi, snyrtimeðferðum og heilsurækt. Persónulegt viðmót og glæsileg hönnun skapar afslappað andrúmsloft þar sem andleg og líkamleg vellíðan er í fyrirrúmi. Unnið í samstarfi við Hilton Reykjavík Spa Við viljum að okkar við-skiptavinir upplifi það að sál og líkami er eitt og gleymi ekki að gefa sér tíma til að slaka á,“ segir Ragnheiður K. Guðmundsdóttir, deildarstjóri Hilton Reykjavík Spa, sem er hluti af Hilton hótelinu. Öll aðstaða Hilton Reykjavík Spa býður upp á fullkomna slökun með heitum og köldum pottum, margvís- legum nudd- og snyrtimeðferðum í einstaklega notalegu umhverfi. Hilton Reykjavík Spa er þekkt fyrir margvíslegar nuddmeðferðir, allt frá hinu klassíska heilnuddi yfir í steinanudd og í Yuheimo meðferð. Sú síðastnefnda er austurlensk lækningameðferð við verkjum í líkama þar sem unnið er út frá hreyfingum líkamans með um 100 æfingum sem framkvæmdar eru í meðferðinni með bætt lífsgæði að markmiði. Yumeiho er einnig þekkt sem aðferð til að leiðrétta stöðu mjaðmabeina, nuddmeðferð og svæðanuddmeðferð. Meðferðin samanstendur af nuddi og æfing- um til að ná fram jafnvægi á liðleika líkamans og eyða óþægindum og verkjum sem hrjá nútímamanninn. Allir nuddarar Hilton Reykjavík Spa eru faglærðir og reynslu miklir á sínu sviði og koma frá ólíkum heimshornum. „Nudd er stór hluti af líkams- og heilsurækt. Það er bæði heillandi og lagfærandi fyrir líkamann, bæði fyrir þá sem eru að þjálfa og einnig þá sem takast á við krefjandi verkefni í leik og starfi. Margir eru komnir upp á lagið með það að sækja nudd reglulega til að vinna gegn kvillum, slaka á vöðum, draga úr bólgum, bæta heilsuna og auka vellíðan,“ segir Ragnheiður. Á „comfort Zone“ snyrtistofu Hilton Reykjavík Spa eru margar dásamlegar snyrtimeðferðir í boði, svo sem lúxus andlitsböð og vafn- inga meðferðir eins og litun og plokkun og handsnyrtingu. Fiðrildi nefnist meðferð sem er óhefðbund- in snyrti- og nuddmeðferð sem felst í því að sérstakar ilmkjarnaolíur eru notaðar til að skapa jafnvægi í líkamanum og veita djúpa slökun. Heitri olíu er dreypt á líkamann og er nuddað með léttum hreyfing- um. Heitum púðum með pressuð- um jurtum er svo komið fyrir víða um líkamann til að draga úr bólgum og örva hreinsun. Meðferðin veitir djúpa slökun. Fullbúin líkamrsæktarstöð er á Hilton Reykjavík Spa sem bæði er nýtt af meðlimum stöðvarinnar og hótelgestum, auk þeirra sem koma til að sækja sér nudd- eða snyrti- meðferð. „Ég mæli með því að fólk gefi sér góðan tíma til þess að njóta alls þess sem við höfum að bjóða. Það er gott að fara í pottana og gufu, kíkja í jógatíma eða ræktina og enda á góðri nudd- eða snyrtimeð- ferð og enda á því að rölta á slopp- num yfir í veitingasöluna og fá sér hvítvínsglas, vítamínríkt „boost“ eða gott kaffi,“ segir Ragnheiður. …heilsa kynningar 10 | amk… FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016 Fjölbreytt úrval Comfort zone snyrtistofan býður upp á margar dásamlegar snyrtimeðferðir. Veitingar Meðal nýjunga hjá Hilton Reykjavík Spa er veitingasala þar sem viðskiptavinir geta sest niður á sloppnum og fengið sér vínglas, „boost“ eða gott kaffi. Slakað á Á fallegum degi kjörið er að sitja úti í heitu pottunum og slaka á. Slökun Ragnheiður mælir með því að fólk gefi sér góðan tíma til að njóta alls þess sem Hilton Reykjavík Spa hefur að bjóða. Þjónusta Persónuleg og vönduð þjónusta er eitt aðalsmerki Hilton Reykjavík Spa. Huggulegt Umhverfi Hilton Reykjavík Spa er hannað til þess að fólk slaki á og líði vel. „Nudd er stór hluti af líkams- og heilsurækt. Það er bæði heillandi og lagfærandi fyrir líkamann“ Ragnheiður K. Guðmundsdóttir Deildarstjóri Hilton Reykjavík Spa

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.