Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 09.09.2016, Qupperneq 58

Fréttatíminn - 09.09.2016, Qupperneq 58
…vetrarfatnaður barna kynningar 14 | amk… FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016 Selja vinsæl ullarföt Salbjörg Ýr Guðjónsdóttir og Olga Ingrid Heiðarsdóttir í Ullarkistunni selja hin vinsælu ullarföt frá Janus og norska merkinu Safa. Mynd | Rut Ullarfatnaður er ómissandi fyrir íslenskan vetur Í Ullarkistunni fást norsku ullarfötin frá Janus sem henta ungbörnum, skólakrökkum og fullorðnum vel. Unnið í samstarfi við Ullarkistuna. Ullarkistan selur aðallega hin vinsælu norsku Janus ullar-föt sem eru nánast orðin að skólabúningi íslenskra leikskólabarna. Ullarfötin eru margvísleg og henta bæði ung- börnum, skólakrökkum, fullorðn- um og útivistarfólki. Þau eru rómuð fyrir þægilegheit, en ekki síður fallega hönnun svo hægt er að nota þau sem hversdags- fatnað, en ekki falin undir öðrum flíkum. Í septembermánuði er von á nýjum og spennandi vöru- línum í Ullarkistunni frá norsku merkjunum Janus og Safa með nýjum sniðum, mynstrum og litum. „Okkar bestu meðmæli eru þegar fólk kemur tilbaka og seg- ir að það verði að fá eitt sett í viðbót því barnið vill ekki fara úr ullarfötunum. Þetta segir okkur að börnunum líður vel í fötunum og velja þau sjálf,“ seg- ir Olga Ingrid Heiðarsdóttir hjá Ullarkistunni. Foreldar hennar stofnuðu verslunina fyrir 11 árum, en hún hét upphaflega Janusbúðin og byrjaði sem lítið söluhorn í þvottahúsi sem fjölskyldan rak saman á Barónsstíg. „Mamma er norsk og mundi eftir Janus fötunum frá því hún var krakki og langaði að prófa að setja þau á markað hér.“ Skemmst er frá því að segja að ullarfötunum var svo vel tekið að fljótlega varð hornið að heilli verslun, þvottahúsið lagð- ist af og fjölskyldan sinnir í dag alfarið sölu á ullarfatnaði og rek- ur verslunina Ullarkistan sem er bæði á Laugavegi 25 í Reykjavík og á Glerártorgi á Akureyri. Þar að auki rekur fjölskyldan verslun í Noregi sem Olga opnaði þegar hún var þar við nám. Vinsældir Janus ullarfatanna má meðal annars rekja til þess að úrvalið er mikið fyrir börn og fólk á öllum aldri, og hent- ar fyrir allar aðstæður. „Einu sinni voru ullarföt bara undirföt en nú er úrvalið mun meira og þetta er svo fallegt. Bæði eru margar mismunandi þykktir og mikið litaúrval. Til dæmis erum við með ullarföt með blúndu sem hafa alltaf verið gífurlega vinsæl. En úrvalið er mikið og til eru renndar peysur, heilgall- ar, samfellur, leggings, treyjur, húfur, vettlinga og fleira fyrir börnin. Fötin bjóða upp á að nýta kosti ullarinnar án þess að þurfa að fela hana undir öðrum fötum.“ Auk þess sem Olga rekur og starfar í Ullarkistunni, ásamt foreldrum sínum og systur, er hún jöklaleiðsögumaður og fæst mikið við útivist. Þar hafa ullar- fötin komið að góðum notum. „Ég hef prufað allar týpurn- ar og veit að þetta virkar og er því ekki í neinum vandræðum með að mæla með þeim við fólk. Fötin eru svo þægileg og mjúk, enda úr merino-ull sem er mjúk og veldur ekki kláða. Svo er þetta svo hlýtt og gott, algjör- lega ómissandi fyrir íslenskan vetur.“ Ullarfötin eru þvegin með ullarsápu í þvottavél á ullar- prógrammi þannig að þau eru auðveld í meðhöndlun, halda sér vel og duga lengi. Nú í september mánuði er von á nýjum vörulínum frá Janus og líka ullarmerkinu Safa sem er einnig frá Noregi. „Meira hefur verið lagt upp úr fallegri hönnun síðustu árin og er von á nýjum sniðum, litum og munstri,“ segir Olga. Vörur frá Safa hafa verið í versluninni frá síðustu jólum en þeir er þekktastir fyrir ullar- sokka, en eru einnig að koma með ýmiskonar ullarfatnað. Þar á meðal mikið af fatnaði úr ull og silki. „Sokkarnir frá Safa eru ávanabindandi. Þeir eru til dæm- is með sokka úr ull og silki sem halda hárréttu hitastigi á fótun- um og eru mjög þægilegir,“ segir Olga. „Við seljum þessar vörur fyrst og fremst vegna þess að að við vitum að þær eru góðar og við höfum ástríðu fyrir þessu.“ segir Olga. Fátt er fallegra en rjóð börn að leik úti í brakandi fersku lofti. Nú fer að kólna í veðri og þá þarf að athuga hvernig útifatamál standa á heimilinu. En það þarf líka að passa húðina, ekki síst kinnarn- ar og nebbann, svæði sem eru berskjölduð fyrir kuldanum. Sum börn eru afar viðkvæm fyrir kuld- anum og fá exembletti um leið og þau komast í snertingu við kalda loftið. Hægt er að koma í veg fyr- ir þennan roða og þennan þurrk með því að nota feitt kuldakrem. Jafnvel er nóg að bera hreinlega þunnt lag af vaselíni á kinnarn- ar áður en börnin fara út. Einnig er mikilvægt að bera rakakrem á börnin eftir bað og jafnvel fyr- ir svefninn til að viðhalda raka húðarinnar. Þá eru minni líkur á því að kuldaexem láti á sér kræla. Foreldrar þekkja það vel hversu mikilli gremju það getur valdið þegar börn vaxa upp úr fullkom- lega nýtilegum og heilum úti- göllum, úlpum og kuldaskóm. Í dag eru afar góð merki í gangi og flíkur eru vel brúkleg mun leng- ur en barnið er að vaxa upp úr þeim. Stundum gerist nauðsynlegt að kaupa ný útiföt og -skó hvert haust. Sum börn taka slíkan vaxt- arkipp að kaupa þarf 2 sett yfir veturinn. Þá eru góð ráð dýr því fjárútlátin eru víst næg fyrir. Margar leiðir eru til þess að losa sig við notaðan fatnað eða kaupa hann. Á Facebook eru nokkrar síð- ur þar sem hægt er að kaupa full- komlega nýtileg föt á lægra verði. Barnaföt – til sölu/óska eftir er mjög öflug síða og þar er hægt að selja, kaupa og óska eftir ákveðn- um fötum. Sumt er gefins, annað ódýrt – og enn annað kannski ekki svo – og fólk er gjarnan að semja um skipti af einhverju tagi. Aðrar síður sérhæfa sig í merkjavörum fyrir börn og enn aðrar einhverju sérstöku merki. Bland.is er einnig öflug auglýsingasíða þar sem hvers kyns fatnaður gengur kaupum og sölum á alls konar verði. Vitanlega er hægt að fara með notuð föt í Rauða krossinn og aðra nytjamarkaði og þar er gjarnan hægt að kaupa afar heillegan fatn- að. Þegar þið kaupið notaðan fatn- að, passið að skoða vel sauma og athugið með fóðrið. Kíkið á sólana á skónum og athugið hvort þeir séu nokkuð of eyddir, þreifið líka skóna að innan. Passið að franskir rennilásar virki enn vel. Þegar frostið bítur kinn Nýtum útifötin sem best
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.