Fréttatíminn - 10.09.2016, Blaðsíða 46
Markmið mikilvæg
Hafdís segir góð
markmið vera eina
helstu ástæðu fyrir
því að fólk haldi
áfram að mæta í
ræktina.
Hafdís Björg, einkaþjálfari og fitnessdrottning,
veit hvað hún syngur þegar kemur að
líkamsrækt.
góð ráð
fyrir þá sem
eru að byrja
í ræktinni
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Þegar fer að hausta flykkjast Íslendingar gjarnan inn í líkams-ræktarstöðvarnar. Hjá mörgum er það
einfaldlega hluti af því að koma
sér í rútínu eftir sumarið og friða
samviskuna eftir fríið. En það er
ekki nóg að mæta bara í ræktina,
það þarf að gera eitthvað og helst
gera það rétt, til að ná árangri. Þá
er ýmislegt annað sem gott er að
hafa bak við eyrað og tileinka sér
til að ná árangri, eins og að æfa
alltaf á sama tíma, gera plan, hafa
góðan æfingafélaga og fleira.
amk fékk Hafdísi Björgu Krist-
jánsdóttur, einkaþjálfara í World
Class og tvöfaldan Íslandsmeistara
í fitness, til að gefa lesendum, sem
eru að koma sér af stað í ræktinni,
nokkur ráð. Sjálf er hún 29 ára
gömul, þriggja barna móðir, mikill
dýravinur og stefnir á heimsmeist-
aramótið í fitness í nóvember. Hún
ætti því að vita hvað hún syngur
þegar kemur að líkamsrækt.
Markmið
Markmið eru megin ástæða fyrir
því að fólk heldur áfram og setur
hreyfingu í forgang. Langbest er
þó að setja sér eitt stórt markmið
sem maður bútar niður í smærri,
svo að leiðin að stóra markmiðinu
verði hvetjandi. Að ná litlu mark-
miðunum er stóri sigurinn.
Plan
Ekki bara mæta og gera eitthvað.
Það skiptir ekki máli hvað þú
kannt og hvað þú veist mikið um
æfingar, það er alltaf gott að hafa
plan. Hægt er að finna allskon-
ar æfingaplön á internetinu en
ég mæli þó alltaf með því að fólk
komi sér í samband við þjálfara
og finni út æfingaplan sem er
einstaklingsmiðað og hjálpar þér
að ná þínum markmiðum.
Að kynnast umhverfinu
Ef þú ert að byrja er gott að
fá leiðsögn um salinn og tækja-
kennslu. Að koma í fyrsta sinn inn
í líkamsræktarstöð getur verið
eins og að labba inn í frumskóg. Ef
upplifunin er slæm í fyrsta sinn er
mjög ólíklegt að þú fáir þig til þess
að mæta aftur, svo nýttu þér tækja-
kennsluna. Það eru lang flestar lík-
amsræktarstöðvar sem bjóða upp
á slíka þjónustu.
Rútína
Koma æfingartímanum í rútínu og
hafa þennan tíma heilagan. Ekki
plana klippingu á æfingartíma.
Ef þú ert alltaf að færa tímann
og rugla í rútínunni verður þetta
fljótt að detta upp fyrir og þú
verður farin að taka Bónus ferð-
irnar fram yfir góða æfingu áður
en þú veist af. Finndu þér tíma og
haltu rútínu.
Hvatning
Góður æfingafélagi, góð tónlist,
skemmtilegt umhverfi. Hvað
hvetur þig áfram? Finndu þína
hvatningu og þinn drifkraft. Það
getur verið æfingafélaginn sem að
dregur þig á æfingu þegar veðrið
segir þér að kúra aðeins lengur
eða leggjast upp í sófa og horfa á
einn þátt. Það getur verið eitt lag
sem virkilega kemur þér í gírinn
eða það getur verið bara þetta
yndislega skemmtilega umhverfi
sem þín líkamsræktarstöð hefur
upp á bjóða. Það skiptir ekki máli
hvað það er, finndu þitt.
5
Benecta hjálpar til við bólguúrvinnslu
…heilsa 6 | amk… LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
Benecta
• Hjálpar líkamanum að vinna
úr bólgum
• Styður við uppbyggingu
vefja s.s. brjósks, sina og
beina
• Hjálpar til við að viðhalda
heilbrigðu stoðkerfi
• Auðveldar hreyfigetu
Aukinn liðleiki og minni
verkir með Benecta
Benecta er íslenskt fæðubótarefni unnið úr rækjuskel, sem stuðlar að
úrvinnslu á bólgum í líkamanum og verndun vefja í stoðkerfi.
Benecta inniheldur kítínfá
sykrur sem eru unnar úr rækju
skel. Sykrungarnir bindast bólgu
próteinum í líkamanum og hjálpa
líkamanum að vinna úr bólgum og
styðja við uppbyggingu vefja og
auka þannig liðleika og hreyfi
getu. Með daglegri inntöku má
draga úr bólgum og óþægindum
og þannig auka úthald og orku.
Jafnframt stuðlar Benecta að
endurnýjun vefja (s.s. brjósks,
sina og beina) og hjálpar því
til við að viðhalda heilbrigðu
stoðkerfi.
Notkun Benecta
Dagleg inntaka af Benecta get
ur hjálpað líkamanum að vinna
úr bólgum hvort sem þær eru
af völdum álags eða hækkandi
aldurs.
Benecta er ætlað fullorðnum,
18 ára og eldri.
Skammtar: 2 hylki á dag fyrstu
mánuðina. Eftir það 12 hylki á
dag. Mælt er með því að taka
Benecta á fastandi maga. Ekki
Unnið í samstarfi við Vistor hf.
Ég hef verið með brjóskskemmdir í hné i mörg ár og hefur það orsakað bólgur og þreytuverki í
hnjám,“ segir Sigurður H. Stef
ánsson, fyrrum handboltakappi.
„Verkir og bólgur hafa verið mis
miklir eftir álagi en ég fann mik
inn mun á mér eftir að ég byrjaði
að taka Benecta. Það hefur komið
þannig fram að þreytuverkir eru
svo til farnir og liðleiki hefur auk
ist en áður var stundum erfitt að
beygja hnén. Er ekki frá því að
annar stirðleiki í líkamanum hafi
líka minnkað eftir að ég byrjaði
að taka Benecta,“ segir Sigurður
ennfremur.
Benecta
„Benecta styður við náttúru
lega viðgerðarferla í líkamanum
og hjálpar til við bólguúrvinnslu
og getur þannig stuðlað að auk
inni hreyfigetu,“ segir Guðný
Traustadóttir, markaðstengill hjá
Vistor hf.
Benecta fyrir betri líðan Sigurður H. Stefánsson „Verkir og bólgur
hafa verið mismiklar eftir álagi en ég fann
mikinn mun á mér eftir að ég byrjaði að
taka Benecta.“ Mynd | Rut
Benecta fæst í apótekum,
Heilsuhúsinu og Perform.is
skal taka meira en ráðlagðan dag
skammt (2 hylki).
Hvert hylki inniheldur 300mg
af kítínfásykrum sem unnar eru
úr rækjuskel. Engin aukaefni eru
í Benecta.
Benecta er ekki ætlað þunguð
um konum eða einstaklingum með
skelfiskofnæmi.
Íslensk framleiðsla
Benecta er framleitt af íslenska
líftæknifyrirtækinu Genís. Mikil
þróunarvinna og áralangar rann
sóknir liggja að baki vörunni
sem byggir á sérhæfðri þekk
ingu tengdri framleiðslu á lyfjum
og fæðubótarefnum unnum úr
rækjuskel. Þróun Benecta hefur
staðið yfir undanfarinn áratug í
samstarfi við íslenska og erlenda
vísindamenn.
Fæst í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.www.provision.is
Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með
sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað
við aldursbundinni augnbotnahrörnun.
Nú er vítamínið með endurbættri formúlu
sem gerir það enn betra en áður.
AUGNVÍTAMÍN
Augnheilbrigði
Við aldursbundinni
augnbotnahrörnun