Fréttatíminn - 10.09.2016, Blaðsíða 60
Unnið í samstarfi við Icecare
Bio-Kult Infantis er vísinda-lega þróuð blanda af vin-veittum gerlum fyrir ung-börn og börn á öllum aldri.
Ásta D. Baldursdóttir hefur góða
reynslu af Bio Kult Infantis.
Bio-Kult fyrir börn inniheldur sjö
gerlastrengi af mismunandi mjólk-
ursýrugerlum. Gerlarnir styrkja
og bæta meltinguna auk þess
sem þeir innihalda hátt hlutfall af
Omega 3. Hver skammtur af
Bio-Kult Infantis inniheldur
50% af ráðlögðum skammti
af D3 vítamíni. Enginn við-
bættur sykur, litar-, bragð-
eða aukaefni eru í vörunni.
Omega 3 í duftformi
„Börn eru misjöfn eins og
þau eru mörg og erfitt
getur verið að fá þau til að
taka inn ýmis konar bæti-
efni og vítamín,“ segir Ásta
D. Baldursdóttir. „Son-
ur minn er 10 ára, hann er
kröftugur orkubolti og er á
einhverfurófinu. Mér hefur
reynst erfitt að fá hann til
að taka inn Omega 3 vegna
áferðarinnar á olíunni og
bragðsins, en hann er með
mjög næmt bragðskyn. Í
sumar sá ég síðan auglýs-
ingu um Bio-Kult Infantis
og það vakti athygli mína
að það inniheldur Omega 3 í
duftformi sem blandast út í
drykk eða mat. Ekki er verra
að það inniheldur líka 50%
af ráðlögðum skammti af D3
vítamíni og Preplex blöndu
sem styrkir meltinguna og kemur
Bio-Kult Infantis er blanda af
vinveittum gerlum fyrir ungbörn
og börn á öllum aldri.
Meltingargerlar fyrir börn
Ásta D. Baldursdóttir.
í veg fyrir niðurgang. Auk þess er
enginn viðbættur sykur, litar- eða
bragðefni í duftinu.“
Bio Kult fyrir börn og fullorðna
Ásta hefur gefið syni sínum Bio-
-Kult Original mjólkursýru gerlana
til að styrkja þarmaflóruna, en þá
uppgötvaði hún við lestur bókar-
innar Meltingavegurinn og geð-
heilsa eftir Dr. Natasha Camp-
bell-McBride. „Ég hef einnig sjálf
ágætis reynslu af
Bio-Kult Candea sem hefur hjálp-
að mér að ná jafnvægi á flórunni,“
segir Ásta. „Þar sem ég hef ágætis
reynslu af Bio Kult vörunum fyr-
ir okkur bæði ákvað ég að prófa
Bio-Kult Infantis fyrir son minn
og það gengur mjög vel. Gerlarnir
eru alveg bragðlausir, leysast vel
upp og fær hann eitt bréf á dag út
í drykk. Það er líka svo frábært að
þessar vörur þarf ekki að geyma
í kæli og því ekkert mál að taka
þetta með hvert sem er.“
Þ
að eru engar nýjar fréttir
að konur með barni verða
að næra sig vel. Hins
vegar getur það reynst
snúið enda langar sum-
ar konur bara að borða franskar
kartöflur með kokteilsósu eða ösku
þennan sérstaka tíma sem barn vex
og þroskast inni í þeim.
Sumar konur hugsa sér gott til
glóðarinnar og byrja að „borða fyr-
ir tvo“, þegar að því kemur að hýsa
splunkunýja mannveru. Það er hins
vegar ekki gott og í rauninni óþarfa
græðgi. Vissulega þurfa konur að
auka inntöku hitaeininga en nærri
lagi væri að segja að konur séu að
„borða fyrir 1 og 1/5“ – þar sem
einungis þarf að borða um það bil
300 hitaeiningum meira á dag en
vanalega meðan meðgöngu stend-
ur.
Ef þig grípur óseðjandi löngun
til að borða mold, krít, leir, ösku,
steypuryk eða annað sem ekki er
matur, ekki láta eftir þeim hvötum.
Löngunin gæti bent til þess að þig
skorti einhver næringarefni sem
hægt er að kippa í liðinn án þess að
innbyrða eitthvað sem seint gæti
talist fæðutegund.
Það er því miður ansi algengt að
konur upplifi óbærilega vanlíðan
vegna ógleði, aðallega fyrstu vik-
ur meðgöngunnar. Mörgum konum
reynist vel að hafa kex, saltstangir
eða morgunkorn við höndina á
náttborðinu og grípa í við fyrsta
hanagal. Þurrt nasl virðist virka til
að slá á einkennin. Best er að forð-
ast mjög feitan mat, djúpsteiktan og
mikið kryddaðan á þessu stigi máls-
ins, slíkur matur gerir ekkert annað
en að ýta undir ógleðina.
Margar konur þjást af harðlífi á
meðgöngu og þá er ekkert annað
að gera en að borða nóg af trefjum,
drekka 6-8 glös af vatni á dag og
fara í göngutúra. Talið við ljósmóð-
ur eða lækni ef harðlífið ágerist.
Athugið að ef þér hefur verið ráð-
lagt að taka járn á meðgöngunni þá
getur það haft mjög slæm áhrif á
hægðirnar. Ráðfærið ykkur við lyf-
jafræðing eða starfsfólk apóteksins
hvaða járn er best að taka í þessu
ástandi.
Sumar konur fá niðurgang á
meðgöngunni sem einnig er afar
hvimleitt. Stemmandi matur get-
ur hjálpað til eins og bananar, hvít
hrísgrjón og hafragrautur. Brjóst-
sviði er annað leiðindaástand sem
fylgir þessum tíma, sér í lagi þegar
líður á meðgönguna. Þá er bara að
hafa Rennie til taks, reyna að borða
margar litlar máltíðir yfir daginn og
takmarka koffeindrykki, kryddaðan
mat og sítrusávexti.
Það er langsamlega heillavæn-
legast að sleppa öllu áfengi á með-
göngu sem og sígarettum og harðari
ávanabindandi efnum. Sem betur
fer þarf vanalega ekki að brýna
þetta fyrir vanfærum konum en það
er þetta með góðu vísuna sem sjald-
an er oft kveðin og allt það.
Hvað sem öllu líður er skynsemin
er afar gott tól þegar kemur að öllu
því sem snýr að meðgöngunni, ekki
bara næringu. Slappa af og njóta, er
það ekki bara málið?
Láttu þér líða vel
Eitt og annað um næringu móður á meðgöngu.
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 20168 HEILSA MÓÐUR & BARNS
Meðgönguþjálfun og
þjálfun eftir fæðingu
Nánari upplýsingar er hægt
að finna á www.fullfrisk.com.
Skráningar og fyrirspurnir
í síma 661-8020 eða
dagmar@fullfrisk.com. í Sporthúsinu
Ný námskeið hefjast
19.09.16
Einnig er hægt að finna okkur á Facebook