Fréttatíminn - 10.09.2016, Blaðsíða 52
alla föstudaga
og laugardaga
Leikkonan Natalie Portman á von á öðru barni
sínu með eiginmanni sínum, Benjamin Millepied.
Janet Jackson hefur þyngst um 45 kíló
Söngkonan gengur með sitt fyrsta barn.
Janet Jackson gengur með sitt
fyrsta barn núna en hún er orðin
fimmtug. Meðgangan hefur ekki
gengið áfallalaust fyrir sig en hún
er rúmföst núna og hefur þyngst
svo mikið að það er farið að hafa
áhrif á heilsuna. Söngkonan hefur
þyngst um 45 kílógrömm það sem
af er meðgöngunni. Hollywood-
Life talaði við lækni sem sagði að
þegar konur væru komnar á þenn-
an aldur og yrðu ófrískar yrðu þær
að hugsa um mataræðið og þyngd-
ina því annar væri mikil hætta á of
háum blóðþrýstingi og sykursýki.
Janet hefur haldið sig innan dyra
því hún vill alls ekki að til henn-
ar sjáist þar sem „hún er að verða
svona feit.“
Rúmföst Janet Söngkonan
Janet Jackson hefur þyngst
um 45 kíló á meðgöngunni.
Mynd | NordicPhotos/Getty
Með Cody Kasch á
KFC
Lokakeppni Miss Universe
Iceland fer fram þann 12. septem-
ber næstkomandi í Gamla bíói.
Samfélagsmiðladrottningin
Manuela Ósk Harðardóttir er nú
að leggja lokahönd á undirbúning
keppninnar og dómarar eru farnir
að tínast til landsins. Þar á meðal
leikarinn Cody Kasch sem margir
muna kannski eftir úr þáttunum
Desperate Housewives. Manuela
tók að sjálfsögðu á móti kappan-
um á flugvellinum og fylgdi
honum upp á Center Hótel
Þingholt, þar sem allir aðstand-
endur keppninnar gista nú um
helgina og fram yfir keppni. Eitt
það fyrsta sem þau gerðu svo
eftir að Cody kom til landsins var
að skella sér á KFC og gæða sér á
kjúklingabitum.
Lay Low snýr aftur
Tónlistarkonan Lay Low, eða
Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir,
treður upp á Sagnakaffi í menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi
næsta miðvikudagskvöld. Þar
mun hún fjalla um innblástur í
lögum sínum og áhrifavalda. Þetta
mun vera í fyrsta sinn sem Lay
Low treður upp í höfuðborginni
síðan hún eignaðist sitt fyrsta
barn seint á síðasta ári. Lovísa og
sambýliskona hennar, Agnes Erna
Estherardóttir, eignuðust strák en
afar fáir vissu að Lovísa væri
barnshafandi. Lovísa,
Agnes og sonurinn,
Fróði Stefán, búa
á sveitabæ rétt hjá
Hveragerði. Allir
eru velkomnir
á tónleikana
í Gerðubergi.
Þeir hefjast
klukkan 20
á miðviku-
dags-
kvöldið
og að-
gangur er
ókeypis.
Nýtt
Nicorette Cooldrops munnsogstöflur (inniheldur nikótín) er notað við tóbaksfíkn. Það dregur úr fráhvarfseinkennum og reykingaþörf og auðveldar reykingamönnum að venja sig af
reykingum. Skammtar: Börn: Lyfið má einungis nota handa unglingum (12-17 ára) skv. ráðleggingum læknis. Börn yngri en 12 ára mega ekki nota lyfið. Fullorðnir: 2 mg henta reykingafólki
sem er lítið háð nikótíni. 4 mg þeim sem er mjög háðir nikótíni. Hámarksdagskammtur er 15 stk. Ekki á að nota lyfið lengur en 9 mánuði. Venjulega vegur ávinningur af að hætta að reykja þyngra
en áhætta sem fylgir nikótínmeðferð. Setja á 1 munnsogstöflu í munninn og láta hana leysast upp. Hvorki má tyggja hana né gleypa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju hjálparefnanna.
Þeir sem hafa aldrei reykt. Varnaðarorð: Reykingafólk með nýlegt hjartadrep, óstöðuga eða versnandi hjartaöng (þ.m.t. Prinzmetal), alvarlegar hjartsláttartruflanir, ómeðhöndlaðan háþrýsting, nýlegt
heilablóðfall og/eða óstöðugt blóðrásarkerfi skal einungis nota Nicorette undir eftirliti læknis. Gæta skal varúðar við notkun Nicorette hjá einstaklingum sem hafa fengið ofnæmisbjúg eða ofsakláða eða
eru með: háþrýsting, stöðuga hjartaöng, hjartabilun, æðasjúkdóm í heila, teppusjúkdóm í slagæðum útlima, sykursýki, ómeðhöndlað skjaldvakaóhóf, krómfíklaæxli, skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi, skeifugarnar-
eða magasár eða vélindabólgu. Aðgát í návist barna: Nikótínskammtar sem fullorðnir geta þolað geta valdið alvarlegum eitrunareinkennum og verið banvænir börnum. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Meðganga og brjóstagjöf: Eingöngu skal nota Nicorette í samráði við lækni. Nikótín berst yfir fylgju og getur haft áhrif á blóðrás og öndun fósturs. Nikótín berst í brjóstamjólk í magni sem getur haft áhrif á brjóstmylking.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., sími: 535-7000.
IS/NIC-L/K-2016-08-1
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki
Cooldrops
munnsogstöflur með mintubragði
nikótínlyf
Dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum
Dregur úr reykingaþörf eftir 5 mín. hið minnsta
Tvöfalt mintulag, (í töflukjarna og töfluhúð)
Kemur í handhægri öskju í vasastærð
Fæst 2 mg og 4 mg
Nicorette
í 20, 80 og 160 stk. pakkningum4
FACEBOOK.COM/KISSFMICELAND
ÍSAFJÖRÐUR
FM104,1
AKUREYRI
FM102,5
REYKJAVÍK
FM104,5