Fréttatíminn - 10.09.2016, Page 56
F
æðingarorlofið fer auð-
vitað að mestu leyti í
að kynnast nýfædd-
um einstaklingnum,
hugsa um hann og reyna
að nota stundir milli stríða til
að hvílast. Þannig ætti það að
minnsta kosti að vera. En það get-
ur verið gott, bæði fyrir móður og
barn, að fara eitthvað út af heimil-
inu, hitta annað fólk og rækta sál
og líkama.
Að fara í göngutúra með barna-
vagninn er eitthvað sem hægt er
að byrja að gera um leið og barnið
nær ákveðinni þyngd. Það er
einföld og góð líkamsrækt fyrir
móðurina og sum börn sofa aldrei
betur en þegar þau eru keyrð um
í vagni.
Margar kirkjur bjóða upp á
svokallaða mömmu- eða for-
eldramorgna, þar sem foreldrar
og börn geta komið saman og hitt
aðra foreldra og börn. Það er öll-
um foreldrum hollt að hitta annað
fullorðið fólk í fæðingarorlofinu,
sérstaklega fullorðið fólk í sömu
aðstæðum
Ungbarnasund er sívinsælt og
skemmtilegt bæði fyrir foreldra
og börn. Það er gott fyrir börn að
kynnast vatninu snemma, fá að
sprikla og fara í kaf.
Tónagull býður upp á tónlist-
arnámskeið fyrir börn allt frá
6 mánaða aldri. En þar koma
foreldrar og börn saman syngja,
dansa og spila á hljóðfæri.
Foreldrabíó er reglulega í boði í
kvikmyndahúsunum. Sýningarn-
ar eru þá haldnar á morgnana,
smá ljóstýra er í salnum, hljóðið er
lægra og enginn kippir sér upp við
barnsgrát og brjóstagjöf.
Mömmuleikfimi og jóga er tilvalið
fyrir móður til að koma sér af stað
í hreyfingu eftir barnsburð. En þar
eru börnin velkomin og taka jafn-
vel þátt í æfingum. Gott er samt
að hafa í huga að fara ekki of geyst
af stað.
Skemmtileg afþreying
í fæðingarorlofinu
Foreldrar og börn hafa gott af því að fara út úr húsi og hitta annað fólk.
N
iðurstöður
rannsóknar sem
birtist í nýjasta
tölublaði Lækna-
blaðsins sýna
fram á að mataræði barns-
hafandi kvenna fullnægir
ekki þörf fyrir næringar-
efni sem gegna lykilhlut-
verki við fósturþroska.
En þá er sérstaklega átt
við joð, D-vítamín og DHA.
Einungis 20 prósent kvenna
sem tóku þátt í rannsókn-
inni náðu lágmarksviðmiðum
trefjaneyslu, sem eru 25 grömm á
dag. Þá veitti viðbættur sykur að
jafnaði 12 prósent af heildarorku
fæðisins.
Í rannsókninni reyndist al-
mennt ekki vera mikill munur á
mataræði kvenna sem voru í kjör-
þyngd og þeirra sem voru of feitar
áður en þær urðu barnshafandi.
Hins vegar benda niðurstöðurn-
ar til þess að konur í kjörþyngd
fyrir meðgöngu neyti ívið minna
af óhollum fæðutegundum á borð
við gos- og svaladrykki og snakk.
En ljóst er af þessum niðurstöðum
að huga þarf betur að fæðuvali
kvenna fyrir og á meðgöngu, ekki
síst kvenna yfir kjörþyngd.
Vantar næringarefni
sem gegna lykilhlutverki
Huga þarf betur að mataræði kvenna fyrir og á meðgöngu.
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 20164 HEILSA MÓÐUR & BARNS
Fæst í apótekum, Lyfju, Apótekið, Lyf og Heilsu, Apótekarinn, Fjararkaupum,
verslunum Hagkaupa, 10-11 og Iceland Engihjalla. balsam.is
Það hefur aldrei verið
auðveldara
að fá börnin
með sér í lið…
Nauðsynleg vítamín fyrir litla kroppa sem eru
að stækka og þroskast frá degi til dags.
Henta öllum börnum frá 3 ára aldri.
Nú er ekkert mál að
taka inn vítamín því
þau eru lostæti
Bragðgóð,
skemmtileg og
hressandi
gúmmívítamín
fyrir klára
krakka
Glúten
FRÍTT
Soja
FRÍTT
ENGIN
mjólkENG
AR
hnet
ur
ENGIN
egg
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu og meltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is