Fréttatíminn - 25.11.2016, Side 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 25. nóvember 2016
sushisamba.is
VOLCANO RÚLLA
Gómsæt ebi rækja, aspas,
ferskur vorlaukur, masago
og spicy mayo ... hrikalega góð!
Djúsí
Sushi
Viðskipti „Þessar viðræður eru enn í gangi,“ segir
Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
en ranghermt var í blaðinu í gær að samningavið-
ræður, á milli Hafnarfjarðarbæjar og FM húsa vegna
rekstrarkostnaðar á skólabyggingu í eigu félagsins,
hefðu ekki tekist.
Haraldur segir fyrirhugaða sölu á þremur skóla-
byggingum í Hafnarfirði ekki setja þessar við-
ræður í uppnám en Fréttatíminn greindi
frá því í gær að FM hús ætla að selja
skólabyggingar í Garðabæ og Hafnar-
firði til fasteignafélagsins Regins
og tryggingafélagsins VÍS fyrir 3,7
milljarða króna. Á meðal eigna er
Áslandsskóli og tveir leikskólar.
Haraldur sagði í samtali við
Fréttatímann í gær að ákvörðunin kæmi sér á óvart,
en bærinn hefur unnið að því að semja við FM hús
um að lækka rekstrarkostnað vegna samningsins og
eru þær samningaviðræður byggðar á endurskoðun-
arákvæði í samningi, að sögn Haralds.
„Markmiðið er að eignast þessi hús,“ segir
Haraldur svo, en samningur vegna húsanna
var gerður í tíð meirihluta Sjálfstæðisflokks-
ins árið 2000.
Fréttatíminn biðst afsökunar á rangfærsl-
um varðandi samningaviðræðurnar.
| vg
Hafnfirðingar vilja eignast
skólabyggingarnar
Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, segir samningaviðræður
enn í gangi á milli FM húsa og Hafnar-
fjarðarbæjar.
Lögreglumál Eiríkur Fannar
Traustason er sagður hafa áreitt
konu ítrekað úr fangelsinu,
áður en hann fékk umdeilt leyfi
frá afplánun vegna sérstakra
fjölskylduaðstæðna. Ekki fæst
uppgefið hvort fangelsisyfirvöld
höfðu vitneskju um áreitið. 15 ára
stúlka kærði Eirík Fannar fyrir
nauðgun í haust en málið var
óklárað í kerfinu þegar fangels-
isyfirvöld veittu honum leyfi frá
afplánun á nauðgunardómi.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Fréttatíminn hefur heimildir fyrir
því að Eiríkur Fannar Traustason
hafi áreitt konu ítrekað úr fangels-
inu, áður en hann fékk sérstakt leyfi
frá afplánun vegna fjölskylduað-
stæðna. Ekki er vitað hvort fangels-
yfirvöldum var kunnugt um áreitið,
en það ku hafa verið ógnandi.
Eiríkur Fannar hlaut fimm ára
fangelsisdóm í Hæstarétti í byrjun
júní fyrir grófa nauðgun í Hrísey.
Hann fór inn í tjald hjá 17 ára gam-
alli stúlku, ýtti höfði hennar ítrekað
niður í svefnpoka hennar, hótaði að
drepa hana og sló hana í höfuð og
líkama. Stúlkan var franskur ferð-
langur en hún var ein á ferðalagi
um Ísland á reiðhjóli sínu. Eiríkur
Fannar játaði brot sín fyrir dómi og
samþykkti bótaskyldu. Honum var
gert að greiða stúlkunni 1,6 millj-
ónir í miskabætur.
Dómurinn mat
brot Eiríks „mjög alvarlegt.“
Auk þess kærði fimmtán ára
gömul stelpa hann fyrir nauðg-
un í haust. Málið er á borði hér-
aðssaksóknara Reykjavíkur en
stúlkan kærði málið hjá Lögreglu-
stjóranum á Norðurlandi eystra í
sumar. Barnavernd og Barnahús
hafa sömuleiðis komið að málinu.
Meðferð þessa máls var ekki lokið
þegar Eiríkur Fannar fékk að fara
í sérstakt tímabundið leyfi úr fang-
elsinu vegna alvarlega veikinda ný-
fæddra barna sinna.
Hann gengur enn laus og er nú
kominn til Akureyrar ásamt fjöl-
skyldu sinni. Leyfið hefur verið
gagnrýnt harkalega og þykir for-
dæmalaust. Helga Vala Helgadótt-
ir héraðsdómslögmaður sagði við
RÚV að allt liti út fyrir að fangels-
ismálayfirvöld hefðu gert mistök
þegar leyfið var veitt, í ljósi þess að
hann sætir annarri rannsókn fyrir
kynferðisbrot gegn barni. Arnbjörg
Sigurðardóttir, réttargæslumaður
stúlkunnar, sagði það hafa komið
sér mjög á óvart hversu opin heim-
ild fangelsismálayfirvalda sé, til
þess að gera hlé á afplánun fanga.
Hún sagði einnig að horfa verði á
eðli þeirra brota sem fangar sitji
inni fyrir, þegar þeim er veitt hlé
frá afplánun, og lögunum sé veru-
lega ábótavant.
Ekki náðist í Páll Winkel fangels-
ismálastjóra við vinnslu fréttarinn-
ar en hann hefur sagt í fjölmiðlum
áður að í þeim tilvikum, sem hlé á
afplánun fanga er samþykkt, séu
aðstæður viðkomandi mjög alvar-
legar. Slíkt sé aðeins gert í undan-
tekningartilvikum.
Eiríkur Fannar sakaður
um áreitni úr fangelsinu
Eiríkur Fannar er sagður hafa áreitt konu á meðan hann afplánaði dóm fyrir
nauðgun. Hann er nú í umdeildu leyfi. Mynd | Rut
Páll Winkel fang-
elsismálastjóri
segir að aðeins
sé samþykkt hlé
á afplánun fanga
þegar um
alvarlegar
aðstæð-
ur er að
ræða.
Útboð Umdeilt byggingarverk-
takafyrirtæki, Prima ehf, er aftur
með lægsta tilboð í útboði Reykja-
víkurborgar í gríðarlega stóra
framkvæmd við byggingu nýs skóla
í Úlfarsárdal. Fyrra tilboð fyrir-
tækisins þótti grunsamlega lágt og
samkeppnisaðilar saka fyrirtækið
um undirboð.
Reykjavíkurborg hyggst ráðast í fram-
kvæmd í Úlfarsárdal og leitar nú að
verktakafyrirtækjum til að byggja
þar nýja byggingu fyrir Dalsskóla.
Útboð var haldið fyrir nokkrum vik-
um og þótti bæði fulltrúum Reykja-
víkurborgar og samkeppnisaðilum
boð Prima ehf vera grunsamlega
lágt. Það nam 79% af kostnaðaráætl-
un framkvæmdarinnar. Ámundi V.
Brynjólfsson, á viðhalds- og fram-
kvæmdasviði, sagði þá að boðið hefði
kallað á sérstaka skoðun vegna þess
hve lágt það var, en vegna formgalla
á útboðinu þurfti að kalla aftur eftir
tilboðum í verkið. Þá var skilmálum
breytt og krafist meiri reynslu af fyr-
irtækjum sem vildu spreyta sig. Prima
ehf hefur ekki verið í neinum stórum
byggingaframkvæmdum á undan-
förnum árum. Fresturinn fyrir ný til-
boð í skólabygginguna rann út í gær,
fimmtudag, og var þá Prima ehf aftur
með lægsta boð. Í þetta sinn nam það
87% af kostnaðaráætlun.
Prima ehf hefur sterk tengsl við
verktakafyrirtækið Brotafl.
Brotafl átti langlægsta tilboðið í
verkhluta nýs Icelandair hótels við
Landsímareitinn sem gert var á árinu.
Verkfræðistofan Efla annaðist útboð
verksins í apríl og áætlaði kostnaðinn
92 milljónir króna. Tilboð Brotafls
var 59 milljónir eða 65% af kostnað-
aráætlun.
Sama dag og tilboðið var gert var
Sigurjón G. Halldórsson, forsprakki
Brotafls, hnepptur í gæsluvarðhald
grunaður um stórfelld skattalagabrot.
Á meðan hann var í varðhaldi tók
bróðir hans, Guðjón Júlíus Halldórs-
son, við stjórnarformennsku í fyrir-
tækinu Prima ehf, og tók yfir verkefni
Brotafls. Prima ehf var gamalt fyrir-
tæki sem hafði ekki verið starfandi
í mörg ár. Starfsmenn Brotafls voru
ráðnir til Prima og héldu áfram sömu
vinnu. Verkstjóri Brotafls, Ómar Raf-
nsson, stýrði framkvæmdunum fyrir
hönd Prima.
Héraðssaksóknari fer enn með
rannsókn á Brotaflsmálinu en ekki
hefur verið tekin ákvörðun um hvort
gefin verði út ákæra. | þt
Prima ehf reynir aftur við að byggja skóla
Verktakafyrirtækið Prima spratt upp
á grunni lokunar Brotafls. Mynd | Rut
Hluthafar Gunnvarar tóku 175 milljóna arð
Útgerðarfyrirtækið Hraðfrystihúsið-Gunnvör í Hnífsdal borgaði út 175
milljóna króna arð til hluthafa sinna í fyrra. Þetta kemur fram í árs-
reikningi félagsins sem nýlega var skilað til ársreikningaskrár Ríkis-
skattstjóra. Stærsti hluthafi fyrirtækisins er fyrirtækið Ísfirsk fjárfesting
sem er í eigu Ingu Steinunnar Ólafsdóttur og Kristjáns Jóhannssonar.
Framkvæmdastjóri Gunnvarar er Einar Valur Kristjánsson sem jafn-
framt er einn stærsti hluthafi þess. Gunnvör er tíunda stærsta útgerðar-
fyrirtæki landsins og er meðal hluthafa Morgunblaðsins. | ifv
„Einn orkufrekasti og hættulegasti
tíminn í lífsferli fuglanna er álegan,
tímabilið þar sem legið er á eggjum.
Á þeim tíma eru fuglar bundnir við
jörðina og geta ekki étið á meðan.
Hjá tegundum þar sem báðir for-
eldrar liggja á eggjum getur skipt
miklu fyrir afkomu unganna hvern-
ig álegutíma foreldra er skipt.“
Þetta segir José Alves, nýdokt-
or við Rannsóknasetur Háskóla Ís-
lands á Suðurlandi, en hann er einn
meðhöfunda að grein sem birtist í
Nature í dag. Tímaritið Nature er
meðal allra virtustu tímarita sinnar
tegundar í heiminum en það kem-
ur út vikulega og hefur raunvísindi
í háskerpu.
„Hins vegar virðist mismunandi
hætta á afráni skýra mun á álegu-
mynstri milli tegunda,“ segir José
og bætir við að tegundir sem reiði
sig á felubúning, t.d. rauðbrysting-
ur, sitji fastar á og lengur í einu.
„Þær eiga á hættu að koma upp um
staðsetningu hreiðursins þegar for-
eldrar hafa vaktaskipti og því getur
það minnkað líkur á afráni að sitja
sem fastast á hreiðrinu. Tegundir
sem sjást vel þar sem þær liggja á
hreiðri og ráðast að auki á afræn-
ingja, eins og t.d. tjaldur og spói,
skipta hins vegar oftar um hlut-
verk þar sem það hefur lítið gildi
að minnka virkni við hreiður.“
Þrautseigja fugla á hreiðri
dregur úr afráni
José Alves, nýdoktor við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi,
Sjávarútvegsmál